
Play

Auglýsa eftir hundrað flugliðum og fimmtíu flugmönnum
Flugfélagið PLAY leitar nú að um hundrað flugliðum til starfa fyrir næsta vor, bæði í framtíðar- og sumarstörf. Jafnframt stendur til að auglýsa eftir um fimmtíu flugmönnum í næstu viku.

Starfsmenn Play mættu ekki til að gefa skýrslur vegna flugrekstrarhandbóka WOW
Eini tilgangurinn með málshöfðun USAerospace Partners Inc. vegna flugrekstrarbóka WOW var að „halda áfram þeim leikþætti sem sóknaraðili og fyrirsvarsmenn hans hafa haldið uppi með reglubundnum hætti“ frá stofnun flugfélagsins Play.

Play nælir í sölusérfræðing frá Icelandair
Tatiana Shirokova hefur verið ráðin forstöðumaður sölusviðs Play og mun hún bera ábyrgð á sölu- og dreifingarmálum félagsins. Sölusvið er hluti af sölu- og markaðssviði og tekur Tatiana til starfa þann 1. október. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Play.

Play bætir við sig nýjum áfangastað í vetraráætluninni
Flugfélagið PLAY hefur bætt Amsterdam í Hollandi við vetraráætlun sína. Flogið verður tvisvar í viku, á mánudögum og föstudögum, frá og með 3. desember.

Hafa samið um leigu á fjórum vélum til viðbótar
Play hefur undirritað samning við alþjóðlega flugvélaleigusalann GECAS um leigu á þremur A320neo flugvélum og einni A321NX flugvél.

Sprenging á íslenska hlutabréfamarkaðnum þroskamerki
Hvergi í heiminum hafa hlutabréf hækkað eins mikið í verði á undanförnu ári en á Íslandi. Hagfræðingur segir þetta skipta miklu fyrir framgang íslensks atvinnulífs en minnir á að hlutabréfakaupum fylgir áhætta.

Halda vitnaleiðslur yfir starfsfólki Play vegna horfinna flugrekstrarhandbóka WOW
Héraðsdómur Reykjaness hefur fallist á að halda vitnaleiðslur yfir fjórum einstaklingum tengdu flugfélaginu Play vegna meintrar óheimilar notkunar Play á flugrekstrarhandbókum WOW air.

Bein útsending: Ársfjórðungsuppgjör Play
Play mun birta uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung á opnum kynningarfundi sem hefst klukkan 8:30.

Sjóðsstaða sterkari en áætlað var þrátt fyrir fjórðu bylgjuna
Handbært fé frá rekstri flugfélagsins Play er meira en áætlanir gerðu ráð fyrir eftir fyrri árshelming. Þá er sjóðsstaða sterkari og eftirspurn eftir flugi sögð vaxandi.

Jóhann Óskar ráðinn yfirflugstjóri PLAY
Jóhann Óskar Borgþórsson hefur verið ráðinn yfirflugstjóri hjá flugfélaginu PLAY. Jóhann hefur komið víða við í fluggeiranum en hann hefur starfað hjá fjórum öðrum flugfélögum ásamt því að hafa setið í stjórn Félags íslenskra atvinnuflugmanna.

Framkvæmdastjóri sölusviðs Play hættur
Þórður Bjarnason, framkvæmdastjóri sölusviðs flugfélagsins Play, er hættur hjá félaginu eftir að hafa verið sagt upp störfum.

Segir starfsfólki Play engir afarkostir settir
Forstjóri flugfélagsins Play segir að engum starfsmönnum félagsins hafi verið settir afarkostir í tengslum við áframhaldandi starf í haust og vetur. Tillaga um að bjóða fastráðnum starfsmönnum að lækka starfshlutfall til að fleiri gætu haldið vinnu hefði mælst vel fyrir, en það væri engin skylda.

Starfsmönnum Play boðið 50 prósent lægra starfshlutfall í vetur
Stjórnendur Play funduðu með starfsmönnum félagsins í síðustu viku en á fundinum var meðal annars rædd sú tillaga að flugmenn og flugliðar tækju á sig allt að 50 prósent lækkun á starfshlutfalli gegn fastráðningu í vetur.

Hafa skilað inn umsókn um Bandaríkjaflug: „Mikið regluverk og þarf að plana vel“
Flugfélagið Play hefur skilað inn umsókn til bandarískra flugmálayfirvalda um heimild til farþegaflutninga milli Íslands og Bandaríkjanna.

Verkföll eru það síðasta sem ferðaþjónustan þarf á að halda
Verkföll hjá flugumferðarstjórum væru það síðasta sem ferðaþjónusta og flugiðnaður landsins þarf á að halda að sögn Birgis Jónssonar, forstjóra PLAY. Félag íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF) ákveður í dag hvort ráðist verði í verkfallsaðgerðir á þriðjudaginn í næstu viku og skoða hvort greiða eigi atkvæði um frekari verkfallsaðgerðir á næstunni.

„Mjög krefjandi“ að hitta á rétt framboð flugferða
Icelandair hefur að undanförnu þurft að fella niður hluta af áætlun sinni í flugferðum fyrir haustið vegna áhrifa ferðatakmarkana hvers konar.

„Maður skynjar ósamstöðu milli ráðuneytis og almannavarna“
Fjöldi ferðamanna hefur leitað til flugfélagsins Play undanfarið með fyrirspurnir um reglur á landamærum. Forstjóri Play segir að mikil óvissa ríki um aðgerðirnar og gagnrýnir hann ósamræmi á landamærum.

Play stundvísasta flugfélagið á Keflavíkurflugvelli
Flugfélagið Play flutti 9.899 farþega í júlí og var sætanýting 41,7 prósent. Nýtingin er sögð vera í takt við væntingar stjórnenda þennan fyrsta mánuð félagsins í fullum rekstri.

Frá frumkvöðlaráðgjöf í Ástralíu til Play
Jóhann Pétur Harðarson hefur verið ráðinn lögfræðingur flugfélagsins Play.

Þriðja og síðasta vél Play í bili á leið til landsins úr Texas-sólinni
Þriðja flugvél flugfélagsins PLAY er nú á leið til landsins og mun lenda á Keflavíkurflugvelli síðdegis. Vélin, sem ber skráningarnúmerið TF-PLB, lagði af stað klukkan 10:30 í morgun frá Amarillo í Texas en þar var hún máluð í einkennislitum félagsins. Áætluð lending í Keflavík er klukkan 18:10.

Play tekur á móti nýrri farþegaþotu í næstu viku
Flugfélagið Play mun taka á móti þriðju Airbus A321neo farþegaþotu sinni í næstu viku. Þessa daganna er unnið að því að klára undirbúning áður en flugvélin kemur til Íslands og reikna stjórnendur með að taka hana til notkunar snemma í ágúst.

Örfáum án Covid-prófs vísað frá hjá Play í dag
Örfáum hefur verið vísað frá flugi á vegum flugfélagsins Play í dag, þar sem þeir gátu hvorki sýnt fram á PCR-próf né antigen hraðpróf við Covid við innritun.

„Við erum ekki landamæraeftirlit“
Þeir sem ekki geta framvísað neikvæðu kórónuveiruprófi við byrðingu í flug með flugfélaginu Play, verður ekki hleypt um borð á leið til Íslands. Forstjóri félagsins segir ákvörðunina innan lagalegs ramma enda sinni flugfélagið ekki landamæraeftirliti.

Enginn kemst um borð hjá Play án neikvæðs Covid-19 prófs
Frá og með fimmtudeginum 29. júlí mun Play ekki fljúga með farþega til Íslands sem ekki geta framvísað vottorði um neikvætt Covid-19 próf við innritun.

Hyggst sniðganga Play eftir erfiða reynslu sona sinna
Leikstjórinn og handritshöfundurinn Ragnar Bragason ber flugfélaginu Play ekki vel söguna og hyggst sniðganga félagið eftir að ungum sonum hans var meinað að fara um borð í vél þess til Kaupmannahafnar í dag. Að sögn Play var um mannleg mistök að ræða.

Örtröð á Keflavíkurflugvelli í morgun
Fullt var út úr dyrum og gott betur en það á Keflavíkurflugvelli í morgun. Sextán flugvélar hófu sig á loft fyrir klukkan níu í morgun og 34 vélar til viðbótar fljúga utan síðar í dag.

Lögregla steig inn í rifrildi ferðamanna og starfsmanna flugvallarins
Lögregla og öryggisverðir þurftu að skerast í leikinn þegar til rifrildis kom milli tveggja tilvonandi flugfarþega annars vegar og þjónustuaðila á vegum Play á Keflavíkurflugvelli hins vegar.

Skúli hefði viljað sjá lægra verð hjá Play
Skúli Mogensen, stofnandi og fyrrverandi forstjóri WOW air, segist hafa viljað sjá flugfélagið Play bjóða upp á lægri fargjöld með það fyrir augum að standast aukna samkeppni úr öllum áttum. Skúli reiknar með því að framboðið í flugi til og frá Íslandi nái nýjum hæðum sumarið 2022.

Verð á hlutabréfum Play rauk upp í morgun
Hlutabréfaverð flugfélagsins Play hefur hækkað mikið í fyrstu viðskiptum eftir að félagið var skráð í Kauphöllina í morgun. Þegar best lét í morgun höfðu bréfin hækkað um 41 prósent í verði, miðað við útboðsgengið 18, sem var gengi almennra fjárfesta.

Þota frá Play lenti í fyrsta sinn á Reykjavíkurflugvelli
Forráðamenn flugfélagins Play og Kauphallar Íslands fögnuðu því í tólf þúsund feta hæð yfir hálendi Íslands í dag að fyrirtækið er að fara á hlutabréfamarkað. Hin hefðbundna bjölluhringing var tekin upp til að sýna á föstudag þegar markaðsviðskipti hefjast með bréf félagsins.