Skoðanir
1 2 3 4 5 6 7 … 75 ›
Kirkja og klúbbur Það er vandi að bera saman rekstur, kostnað og tekjur fyrirtækja og þá sérstaklega þegar fyrirtækin eru ólík. Niðurstaðan fer því alveg eftir því hvað höfundurinn velur að bera saman. Örn Bárður hefur í tveimur greinum borið saman tekjur Nesklúbbsins og ríkiskirkjunnar. Þar er saman ólíku að jafna og er fallið til að valda misskilningi og koma á misklíð. Skoðun 21.12.2012 17:19
Að grípa gæsina Jón Bjarnason hefur myndað meirihluta í utanríkisnefnd Alþingis með leiðtogum Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins um að hætta aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Það merkilega við þá tillögu er að hún segir meiri sögu um innanlandspólitíkina en utanríkisstefnuna. Hún varpar ljósi á ríkisstjórn sem hefur ekki vald á þeim hlutum sem hún vélar um. Fastir pennar 21.12.2012 17:09
Hvað segðu menn þá? Það er hárrétt sem fram kom í grein hér í blaðinu í gær að Orkuveita Reykjavíkur á margt ógert til að endurvinna traust. Við starfsfólkið gerum okkur fulla grein fyrir því og að mörgu leyti höfum við leitað til uppruna veiturekstursins til að finna fjölina okkar. Skoðun 20.12.2012 17:28
Regluverk þarf gegn kvótahoppi Við inngöngu í Evrópusambandið, án undanþága eða sérlausna vegna sérstakra aðstæðna hérlendis, mundu íslensk stjórnvöld undantekningalaust þurfa að hlíta reglum ESB um fiskveiðar en aðildarríkin hafa framselt sambandinu mikil völd á því sviði. Skoðun 20.12.2012 17:28
Erasmus-áætlunin 25 ára Tuttugu og fimm ára afmæli Erasmus-áætlunarinnar er haldið hátíðlegt um Evrópu alla í ár, en hún er hluti af menntaáætlun Evrópusambandsins á háskólastigi. Rúmlega 2.500 íslenskir háskólastúdentar hafa tekið hluta af námi sínu við evrópska háskóla á vegum hennar, en íslenskir háskólar fengu aðild að Erasmus-áætluninni árið 1992. Á síðustu árum hafa að meðaltali um 200 íslenskir stúdentar farið utan á hverju ári. Skólaárið 2010-2011 voru yfir 500 erlendir Erasmus-stúdentar við nám í íslensku háskólum og er það metfjöldi. Skoðun 20.12.2012 21:42
Aukið á réttaróvissu Þjóðlendulögin frá 1998 eru að mörgu leyti einkennileg lagasetning. Megintilgangur þeirra var sá að greiða úr þeirri réttaróvissu sem ríkti um eignarhald á hálendi Íslands, eða eins og segir í 2. grein: „Íslenska ríkið er eigandi lands og hvers konar landsréttinda og hlunninda í þjóðlendum sem ekki eru háð einkaeignarrétti.“ Komið var á sérstakri nefnd, „Óbyggðanefnd“, sem rannsaka skyldi þessi mál og gera kröfur fyrir hönd ríkisins. Skoðun 20.12.2012 17:28
Að dæma fólk í örbirgð Mjög erfitt, ef ekki ómögulegt, er fyrir lífeyrisþega og annað lágtekjufólk að láta enda ná saman. Á þetta einkanlega við um þá sem hafa engar eða litlar aðrar tekjur en greiðslur úr almannatryggingakerfinu og félagslega aðstoð. Tekjuskerðingar eru mjög miklar og þá sérstaklega hjá tekjulægsta hópnum. Við þeirri spurningu hvernig fólk á að geta framfleytt sér á ráðstöfunartekjum á bilinu 156-173 þúsundum króna á mánuði fást engin svör. Þá eru ónefndir þeir sem vegna búsetu erlendis fá enn lægri greiðslur. Skoðun 20.12.2012 17:28
Faðmaðu hvolp Ef þú ert að lesa þessi orð þýðir það að heimurinn fórst ekki í nótt. Það er ágætt – margir eru langt komnir með jólaundirbúninginn og það er ekki heldur búið að afgreiða rammaáætlun á Alþingi. Það væri synd ef ragnarök spilltu því góða máli. Kannski trúðu ekki margir þessum heimsendaspám en við hljótum samt að geta notað tækifærið til að gleðjast yfir því að framhald verði á jarðvist okkar um sinn og jafnvel endurmetið okkur aðeins í leiðinni. Bakþankar 20.12.2012 17:28
Endurteknar rangfærslur um erfðabreytt matvæli Í nýlegri grein í Fréttablaðinu heldur Sandra B. Jónsdóttir (Sandra Best) uppteknum hætti og ber á borð fyrir lesendur rangfærslur um erfðabreytt matvæli. Skoðun 20.12.2012 17:28
Hvernig líður þér um jólin? Jólin eru tími barnanna. Á jólunum gerum við okkur dagamun, klæðum okkur upp og eigum samveru með fjölskyldu og vinum yfir gjöfum, hátíðarmat, bókum og spilum. Væntanlega geta allir foreldrar tekið undir þá ósk að börn fái að njóta hamingjuríkra jóla. Hins vegar getur það reynst snúið í nútíma samfélagi að uppfylla allar þær væntingar sem gerðar eru til jólahaldsins. Margt getur spilað þar inn í, eins og bág fjárhagsstaða, vinnuálag, ýmiss konar vandamál í fjölskyldu eða erfiðar minningar tengdar jólum. Því jólin eru líka tími tilfinninga og minninga. Skoðun 20.12.2012 17:28
Umræða um einelti á vitlausri braut Ég hugsa að það sé best að ég komi með fyrirvara hér. Einelti er nokkuð sem enginn einstaklingur ætti að þurfa að ganga í gegnum. Það er viðurstyggð og þjóðfélagið allt þarf að taka sig saman í andlitinu. Að því sögðu er ég á því að umræðan um einelti sé á miklum villigötum. Skoðun 20.12.2012 17:28
Allir að hamra inn nagla Ég er aurvaldssinni. Það er svona míní-auðvaldssinni. Mér finnst það ekki endilega óendanlega magnað að til sé fólk sem hefur orðið ríkt af því að breyta rafmagni í ál eða fundið olíu og tekist að selja hana. Skoðun 20.12.2012 17:28
Misskilningur verður blaðagrein Grein Hreiðars Más Hermannssonar í Fréttablaðinu þann 18. desember, „Þegar viðskipti verða fjárfesting“, byggir að miklu leyti á þeim grundvallarmisskilningi að eignir Íbúðalánasjóðs eigi að leigja út á kostnaðarverði. Skoðun 20.12.2012 17:28
Virðing fyrir næstu kynslóð Ein af frumskyldum þeirra sem byggja jörðina hverju sinni er að skila henni áfram til niðja sinna í jafngóðu ástandi og við henni var tekið, þ.e. að nýting á gæðum jarðar hverju sinni dragi ekki úr möguleikum þeirra sem landið erfa á að nýta og nota. Fastir pennar 20.12.2012 21:42
"Man pabbi þinn eftir þér?“ Árið 2009 greindist pabbi minn með Alzheimer-sjúkdóminn, þá aðeins 49 ára gamall. Það var mikið áfall enda ég þá aðeins 19 ára gömul að klára stúdentinn. Ég hafði áður unnið á hjúkrunarheimili og hélt ég væri ágætlega undirbúin undir framhaldið en það kom annað á daginn. Skoðun 20.12.2012 17:28
Hvað hefur eyðilagt rammaáætlun? Grunnáhersla Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs er verndun landsins ásamt skynsamlegri og sjálfbærri nýtingu landsins gæða. Oft höfum við sem deilum þeirri lífssýn orðið fyrir óréttlátri gagnrýni og fordómum fyrir skoðanir okkar en þó aldrei í þeim mæli sem á síðustu vikum í umræðu um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða eða rammaáætlun. Skoðun 19.12.2012 17:09
Opið bréf til alþingismanna Ég undirrituð, Hafdís Óskarsdóttir, get vart orða bundist eftir að stjórnendur Dróma hf. sáu sér leik að hrósa eigin vinnubrögðum í heilsíðuauglýsingum allra stærstu dagblaðanna. Með tilvísun til úttektar FME á afmörkuðum atriðum, sem varða vinnubrögð Dróma, er því haldið fram að FME staðfesti „faglega og góða starfshætti Dróma“. FME sá hins vegar ástæðu til að árétta að ekki bæri „að skilja þá niðurstöðu svo að allsherjar heilbrigðisvottorð hafi verið gefið út um starfsemi félagsins eða viðskiptahætti þess“. Skoðun 19.12.2012 17:09
Heimsendir 21.12.2012? Spádómar um að heimsendir sé í nánd hafa fylgt mannkyninu frá órófi alda. Á enskri tungu kallast heimsendir meðal annars „apocalypse“, samanber heiti kvikmyndarinnar Apocalypse Now eftir Coppola. Orðið er komið úr grísku, en löngu fyrir upphaf tímatals okkar voru á reiki heimsendakenningar sem kallast einu orði „apokalyptík“. Skoðun 19.12.2012 17:09
Ímyndað skuldafangelsi Að undanförnu hafa fjölmiðlar greint frá samantekt Jóns Ævars Pálmasonar verkfræðings, um að fólk sem er fætt á árunum 1970 til 1989 (23-42 ára), skuldi 81,7 milljörðum króna meira en það á. Hávær minnihluti fór af hjörunum og sagði stöðuna ótrúlega. Við þyrfti að bregðast með almennum aðgerðum til að leiðrétta þetta hróplega óréttlæti. Frelsa þyrfti þennan hóp, sem á að byggja upp framtíðarþjóðfélagið, úr skuldafangelsinu. En er þessi staða óeðlileg? Nei, það er hún alls ekki. Fastir pennar 19.12.2012 17:09
Stórskipahöfn í Vestmannaeyjum Stjórnmálamenn tala sífellt um það að skapa störf og þegnarnir spyrja þá, hvaða störf ætlið þið að skapa. Það virðist vera einhver misskilningur hjá stjórnmálamönnum að hið opinbera skapar ekki störf til að hleypa blóði í atvinnulífið. Skoðun 19.12.2012 17:09
Ungbörn í ótilgreindri stöðu Sem barn heyrði ég sagt að maður nokkur væri óstaðsettur í hús og spurði ég í sakleysi mínu hvað hefði komið fyrir fyrir hann. Mér var sagt að hann hefði lent í hálfgerðu limbói. Þrátt fyrir ungan aldur grunaði mig strax að hér væri ekki átt við limbódansinn skemmtilega heldur eitthvað öllu alvarlegra. Þetta rifjaðist fyrir mér þegar ég heyrði af því hvað sumum trúfélögum krossbrá við að frétta að nú ættu ungbörn á hættu að lenda í ótilgreindri stöðu ef frumvarp um jafna stöðu trúfélaga verður samþykkt óbreytt. Skoðun 19.12.2012 17:09
Af hverju ekki að tryggja lýðræði í sjóðunum? Í grein minni þann 21. júlí 2012 undir fyrirsögninni Gegnsæið í lífeyrissjóðum kom fram að 17 milljónir króna renna til Fjármálaeftirlitsins í eftirlitsstörf frá Gildi. Athygli er vakin á þessu þar sem lífeyrissjóðurinn Gildi þarf ekki einu sinni að afhenda fundargerðir síðasta ársfundar, bjóða sjóðsfélögum að hlýða á fundargerðir, eða að láta bera ársreikninga Gildis upp til samþykktar, í skiptum fyrir þessar 17 milljónir króna. Skoðun 19.12.2012 17:09
Er sjósund fyrir mig? Fyrir tæpu ári kynntist ég sjósundi. Góð vinkona mín, Kolbrún Karlsdóttir, hafði stundað það um nokkurt skeið og hvatti mig til að koma með. „Þú þarft ekkert að koma út í, bíddu bara í heita pottinum á meðan ég fer út í sjó,“ sagði hún. Skoðun 19.12.2012 17:09
Húsnæðislán, Svíþjóð og Ísland Íslendingar búa við léleg lánakjör og lántöku á Íslandi fylgir mikil áhætta. Eftir að hafa búið og átt hús í báðum löndum vil ég gera hér skil á muninum. Skoðun 19.12.2012 17:09
Bandalag stórfyrirtækja og verkalýðshreyfingar með samþykki allra stjórnmálaflokka Við hrunið haustið 2008 keypti ég lítið fyrirtæki sem ég hef rekið síðan og gengið ágætlega. Á þeim tíma hef ég kynnst á eigin skinni hvernig bandalag verkalýðshreyfingarinnar og stórfyrirtækja (sem stjórna Samtökum atvinnulífsins) hafa búið til kerfi sem er óskilvirkt, óarðbært og hindrar efnahagslegar framfarir sem svo sár þörf er á, sérstaklega nú eftir hrun. Allir stjórnmálaflokkar hafa stutt bandalagið og styrkt það í sessi í gegnum tíðina, enda hagsmunir þeirra að viðhalda því vegna áhrifa í verkalýðsfélögum og félögum atvinnurekenda. Núverandi stjórn styður þetta bandalag af meiri eldmóð en allar fyrri ríkisstjórnir. Skoðun 19.12.2012 17:09
Gagnlegir sögulærdómar Árið 1956 var mynduð vinstrisinnuð ríkisstjórn á Íslandi undir forystu framsóknarmannsins Hermanns Jónassonar. Auk Framsóknarflokksins stóðu Alþýðubandalagið og Alþýðuflokkurinn að stjórninni; Sjálfstæðisflokkurinn einn var skilinn eftir í stjórnarandstöðu, eftir að hann hafði átt aðild að öllum ríkisstjórnum í tólf ár. Skoðun 19.12.2012 17:09
Brýtur LÍN landslög? Frá 1. nóvember 2007 hefur vísitala neysluverðs hækkað um 43,7% frá upptöku laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, svokallaðra MiFID-reglna. Verður því að leiðrétta öll verðtryggð námslán sem seld hafa verið námsmönnum sem því nemur. Námsmenn hafa engar forsendur til að meta þá áhættu sem fylgir verðtryggðum námslánum og ætla Hægri grænir, flokkur fólksins, að berjast fyrir fullri leiðréttingu á þessum verðtryggðu afleiðusamningum, þ.e. öllum virkum útgefnum námslánum. Skoðun 19.12.2012 17:09
Í dóm Ég var kallaður til sem vitni í dómsmáli nú nýverið. Uppi var einhver ágreiningur milli manna og talið að ég kynni mögulega að varpa ljósi á afmarkaðan þátt sem hugsanlega auðveldaði dómaranum að gera sér atvik ljós og kveða upp sinn dóm. Bakþankar 19.12.2012 17:09
ESB ákveður leyfilegan heildarafla Ef til inngöngu Íslands í Evrópusambandið kæmi yrði sú meginbreyting á umhverfi íslenska kvótakerfisins að ákvarðanir um leyfilegan heildarafla íslenskra útgerða yrðu teknar af ráði landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra ESB-ríkjanna í Brussel. Í þessu fælist framsal á valdi sem íslenska ríkið fer með í dag. Skoðun 18.12.2012 17:53
Ferðasjóður íþróttafélaganna Á fundi ríkisstjórnar Íslands í mars 2006 var samþykkt að koma á fót Ferðasjóði íþróttafélaga, sem ætlað var að jafna aðstöðumun og efla íþrótta- og forvarnarstarf. Íþróttahreyfingin hafði þá í áratug barist fyrir því að slíkur sjóður yrði stofnaður, ekki síst með tilliti til bætts öryggis iðkenda á ferðalögum á vegum íþróttafélaga. Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands var falin umsjón og umsýsla sjóðsins. Skoðun 18.12.2012 17:30