
Fram

Sjáðu ungar hetjur bjarga Fram og Stjörnunni
Hinn 15 ára gamli Viktor Bjarki Daðason reyndist hetja leiksins þegar Fram gerði 1-1 jafntefli við stjörnum prýtt lið Vals á Hlíðarenda í gær, og Stjarnan vann dramatískan sigur á Fylki. Mörkin úr leikjunum má nú sjá á Vísi.

„Það er mikill efniviður í Fram“
Leikmenn Fram gáfust ekki upp á móti Val í 4. umferð Bestu deildar karla í kvöld. Fram jafnaði leikinn á 90. mínútu og endaði leikurinn 1-1. Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, var ánægður með baráttu sinna manna undir lok leiks.

Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni
Fram nældi í stig á Hlíðarenda í Bestu deild karla í knattspyrnu í kvöld. Það var táningurinn Viktor Bjarki Daðason sem skoraði á 90. mínútu og sá til þess að leiknum lauk með 1-1 jafntefli.

„Það var ekkert annað í hausnum á mér“
„Ég var eiginlega að upplifa sama mómentið aftur. Ég bara tók boltann og ég var að fara að skora, það var ekkert annað í hausnum á mér,“ sagði Elín Klara Þorkelsdóttir, leikmaður Hauka, eftir sigur á Fram í framlengdum leik.

Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu
Haukar unnu 28-25 sigur á Fram í undanúrslitum Olís-deildar kvenna í handbolta í kvöld eftir framlengdan leik að Ásvöllum.

„Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“
Fram er lent 2-0 undir í einvígi sínu gegn Haukum í undanúrslitum Olís-deildar kvenna eftir 28-25 tap í kvöld. Annan leikinn í röð fór leikurinn alla leið í framlengingu. Einar Jónsson, þjálfari Fram, var ekki sáttur með sínar konur á lykilaugnablikum í leiknum.

Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum
Bestu deildarlið Fram, Fylkis og Vestra tryggðu sér í dag öll sæti í sextán liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta ásamt B-deildarliði Grindvíkinga.

„Ég hefði bara átt að taka leikhlé“
Einar Jónsson, þjálfari Fram, var niðurlútur eftir fjögurra marka tap, 27-23, á móti Haukum í kvöld. Leikurinn var fyrsti leikurinn í undanúrslitum Olís-deildar kvenna og fór hann fram í Lambhagahöllinni, heimavelli Fram.

Uppgjör, viðtöl og myndir: Fram - Haukar 23-27 | Gestirnir sterkari undir lokin
Haukar sigraði Fram í framlengdum leik í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Olís-deildar kvenna í handbolta í Úlfarsárdal í kvöld. Fram skoraði ekki mark í framlengingunni og endaði leikurinn með fjögurra marka sigri Hauka, 27-23.

Skellur fyrir KR: Jóhannes fótbrotinn
Jóhannes Kristinn Bjarnason, leikmaður KR, er með brotið bein í fæti eftir leik liðsins við Fram í gær. Hann verður frá í tólf vikur.

Sjáðu Bergkamp-móttöku Björns Daníels og Hornfirðinginn unga klára KR
FH og Fram unnu sína leiki í Bestu deild karla í fótbolta í gær og Framarar, undir stjórn Rúnars Kristinssonar, urðu þar með fyrstir til að vinna KR-liðið í sumar. Nú má sjá mörkin úr leikjunum inn á Vísi.

„Björninn er ekki unninn þó við séum komnir með sex stig“
Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, sigraði sína gömlu lærisveina í KR á AVIS-vellinum í dag. Leikurinn var hluti af þriðju umferð Bestu deildar karla og þrátt fyrir afar haustlegar aðstæður í Laugardal þá var létt yfir Rúnari eftir leik.

Uppgjör, viðtöl og myndir: KR - Fram 0-1 | Lærisveinar Rúnars lögðu KR
Fram vann frækinn sigur á KR á Avis-vellinum í Laugardal í Bestu deild karla í dag. Leikurinn endaði 1-0 fyrir Fram og með sigrinum jafnar liðið stigafjölda KR í deildinni en bæði lið eru með sex stig eftir þrjár umferðir í Bestu deild karla í knattspyrnu.

„Þá prófaði ég það í fyrsta skipti“
Rúnar Kristinsson segir sérstakt að mæta uppeldisfélagi sínu KR í dag en hans menn í Fram eiga leik við KR-ingana síðdegis í Bestu deild karla. Rúnar segir synd að leikurinn geti ekki farið fram í Vesturbænum en stefnir á sigur gegn sínum gömlu félögum.

Eftir 376 leiki með KR mætir Rúnar KR í fyrsta sinn á Íslandsmóti
Þetta er sérstakur dagur fyrir einn ástsælasta lifandi KR-inginn. Við erum auðvitað að tala um sjálfan Rúnar Kristinsson. Í dag mætir hann KR í fyrsta sinn í leik á Íslandsmóti.

Gummi Ben: Hann fær boltann í lærið Jóhann Ingi
Framarar héldu að þeir hefðu komist í 1-0 á móti Íslandsmeisturum Víkings í Bestu deildinni í gær en markið var dæmt af. Guðmundur Benediktsson og sérfræðingar hans fóru yfir þennan umdeilda dóm í Stúkunni í gærkvöldi.

Sjáðu sigurmark Víkinga og mark Framara sem var dæmt af
Íslandsmeistarar Víkinga eru við lið Breiðabliks og KR á toppi Bestu deildar karla í fótbolta eftir 1-0 sigur á Fram á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal í gærkvöldi.

„Djöfull hlýtur að vera óþolandi að spila á móti þessum gaur“
Víkingar unnu torsóttan útisigur á Fram í Bestu deild karla 0-1 í kvöld. Arnar Gunnlaugsson var fyrst og fremst ánægður með stigin þrjú.

„Allir sem eru búnir að sjá þetta aftur segja mér hvernig þetta hefði átt að vera“
Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, var að vonum svekktur með 0-1 tap síns liðs gegn Víkingi í kvöld. Þjálfaranum, ásamt mörgum öðrum, fannst Fram eiga meira skilið úr leiknum.

Uppgjörið og viðtal: Fram - Víkingur 0-1 | Íslandsmeistararnir áfram með fullt hús
Arnar Gunnlaugsson hefur nú stýrt Víkingsliðinu í tólf leikjum í röð í deild eða bikar án þess að tapa á móti Rúnari Kristinssyni. Nú unnu Víkingarnir hans Arnars 1-0 útisigur á Fram-liðinu hans Rúnars í Bestu deild karla í knattspyrnu.

Arnar hefur ekki tapað fyrir Rúnari í meira en þrjú ár
Rúnar Kristinsson hafði gott tak á Arnari Gunnlaugssyni þegar Arnar var að byrja sem þjálfari en það hefur heldur betur snúist við undanfarin ár.

Valur fyrsta lið inn í undanúrslit
Valur varð fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Olís deildar karla með tveimur öruggum sigrum gegn Fram. 41-23 í fyrri leik og 24-36 sigur í dag.

Markið tekið af Kennie Chopart
Kennie Knak Chopart fær ekki markið skrá á sig í sigurleik Fram á móti Vestra í fyrstu umferð Bestu deildar karla um síðustu helgi.

„Boltinn slysaðist einhvernveginn alltaf inn í dag“
Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, segir að það sé varla hægt að biðja um betri leið til að hefja úrslitakeppni Olís-deildar karla en með 18 marka sigri.

Uppgjörið: Valur - Fram 41-23 | Ójafn Reykjavíkurslagur á Hlíðarenda
Valur vann afar öruggan átján marka sigur er liðið tók á móti Fram í fyrsta leik átta liða úrslita Olís-deildar karla er úrslitakeppnin hóf göngu sína í kvöld, 41-23.

„Þeir bara fokkuðu því upp, því miður“
Einar Jónsson, þjálfari Fram, var eðlilega ósáttur við spilamennsku sinna manna eftir 18 marka tap í fyrsta leik úrslitakeppninnar í Olís-deildinni í handbolta.

Úrslitakeppni handboltans hefst í kvöld
Átta liða úrslit Olís deildar karla í handbolta hefjast í kvöld með tveimur leikjum.

Dýrast að sjá Gylfa eða vera seinlátur Vesturbæingur
Gríðarlegur áhugi var á fyrstu umferð tímabilsins í Bestu deild karla í fótbolta og vel mætt á leikina. Það getur þó kostað allt að 3.500 krónur að fá miða á völlinn.

Stafrófið ræður röð fjögurra efstu liðanna í Bestu deildinni
Blikar sitja í toppsæti Bestu deildar karla í fótbolta eftir 2-0 sigur á FH í gærkvöldi. Þrjú önnur lið eru þó með jafnmörg stig og sömu markatölu. Þá er bara eitt sem ræður röðinni.

Sjáðu fyrsta mark Gylfa og þegar KR skoraði beint úr hornspyrnu
Gylfi Þór Sigurðsson var í aðalhlutverki í fyrsta leik sínum í Bestu deildinni í fótbolta í gær. Fyrsta mark hans í deildinni, markasúpuna í leik Fylkis og KR, og önnur mörk gærdagsins má nú sjá á Vísi.