
Dauðarefsingar

Fyrsti í fimmtán ár til að vera aflífaður með aftökusveit
Brad Sigmon var í gær aflífaður í Bandaríkjunum af aftökusveit. Aflífun með aftökusveit hefur ekki verið framkvæmd í Bandaríkjunum í fimmtán ár. Sigmond var dæmdur fyrir að myrða foreldra fyrrverandi kærustu sinnar árið 2001. Hann barði þau til bana með hafnaboltakylfu áður en hann tók fyrrverandi kærustu sína með valdi.

Valdi dauða með aftökusveit
Aftökusveit mun í næsta mánuði skjóta mann til bana í fyrsta sinn í Bandaríkjunum í fimmtán ár. Morðinginn Brad Sigmon fékk að velja hvort hann yrði tekinn af lífi með lyfjum, færi í rafmagnsstólinn eða færi fyrir aftökusveit og valdi hann síðasta kostinn.

Sýknaður eftir meira en 50 ár á dauðadeild
Iwao Hakamada, sem dæmdur var til dauða í Japan árið 1968, hefur verið formlega sýknaður. Enginn í heiminum hefur setið lengur á dauðadeild en Hakamada.

Hætt við aftöku vegna ítrekaðra mistaka
Aftöku raðmorðingjans Thomas Eugene Creech í Idaho í Bandaríkjunum var frestað um óákveðinn tíma í gær. Sú ákvörðun var tekin eftir að læknateymi mistókst að finna æð sem hægt væri að dæla lyfjablöndunni sem átti að draga hann til dauða í.

Fyrsta aftakan með köfnunarefnisgasi
Dæmdi morðinginn Kenneth Eugene Smith var tekinn af lífi í Alabama í nótt eftir að verjendur hans höfðu reynt allar mögulegar leiðir til að stöðva aftökuna.

Indverskir uppgjafarhermenn dæmdir til dauða í Katar
Átta indverskir uppgjafarhermenn hafa verið dæmdir til dauða í Katar. Mennirnir hafi verið teknir höndum á síðasta ári og lágu undir grun fyrir njósnir. Hvorki yfirvöld í Katar né Indlandi hafa gefið opinberlega út hverjar sakirnar eru.

Þrír hengdir vegna hryðjuverkarárásar í Baghdad árið 2016
Þrír voru hengdir í Írak í gær vegna hryðjuverkaárásar í Baghdad árið 2016. Um 300 létu lífið í árásinni, sem var sú mannskæðasta frá innrás Bandaríkjanna og bandamanna árið 2003.

Fyrsta konan tekin af lífi í Singapúr í nítján ár
Kona sem hlaut dauðarefsingu og var hengd í Singapúr í dag er fyrsta konan sem er tekin af lífi þar í landi í næstum tuttugu ár. Landið er með eina hörðustu vímuefnalöggjöf í heimi og beitir dauðarefsingunni óspart.

Alabama hefur aftökur að nýju þrátt fyrir að hafa klúðrað þremur í fyrra
Yfirvöld í Alabama í Bandaríkjunum hyggjast hefja aftökur á ný eftir að hafa klúðrað einni og þurft að hætta við tvær í fyrra. James Barber, 54 ára, verður tekinn af lífi með lyfjablöndu á föstudagsmorgun, þrátt fyrir mótmæli dóttur konunnar sem hann myrti.

Barnanauðgarar eiga nú yfir höfði sér dauðarefsingu í Flórída
Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída og mögulegur forsetaframbjóðandi, hefur undirritað lög sem útvíkka dauðarefsinguna í ríkinu. Hér eftir verður hægt að dæma þá sem eru fundnir sekir um að nauðga barni yngra en 12 ára til dauða.

Tekinn af lífi fyrir samsæri um innflutning á kílói af kannabis
Tangaraju Suppiah, 46 ára, hefur verið tekinn af lífi í Singapúr fyrir samsæri um smygl á kílói af kannabis. Tangaraju var hengdur í morgun, þrátt fyrir mótmæli Sameinuðu þjóðanna og aðgerðasinna.

Nýr varaformaður Íhaldsflokksins segir árangur dauðarefsingarinnar 100%
„Já. Það hefur enginn framið glæp eftir að hafa verið tekinn af lífi. Þú veist það, er það ekki? Árangurinn er 100%.“ Þetta sagði nýskipaður varaformaður Íhaldsflokksins, Lee Anderson, í viðtali við Spectator sem birt var í gær.

Æðsti leiðtogi Íran sagður hafa náðað tugþúsundir fanga
Æðsti leiðtogi Íran, Ayatollah Ali Khamenei, er sagður hafa náðað tugþúsundir fanga, þar af fjölda sem var handtekinn fyrir að mótmæla gegn stjórnvöldum. Ríkismiðlar segja náðanirnar háðar skilyrðum.

Annar fangi tekinn af lífi í tengslum við mótmælin í Íran
Írönsk stjórnvöld tóku af lífi annan mann í tengslum við umfangsmikil mótmæli í landinu. Maðurinn var sakaður um að hafa stungið tvo varaliðsmenn til bana og reynt að flýja. Mannréttindasamtök saka klerkastjórnina um sýndaréttarhöld sem sé ætlað að ógna mótmælendum.

Faðir tók morðingja sonar síns af lífi í opinberri aftöku
Talsmaður Talíbana í Afganistan segir föður fórnarlambs morðingja, hafa tekið morðingjann af lífi í opinberri aftöku á íþróttaleikvangi. Fjöldi áhorfenda var viðstaddur, þeirra á meðal leiðtogar Talíbana.

Fjörutíu og níu dæmdir til dauða fyrir múgæðisaftöku
Fjörutíu og níu einstaklingar hafa verið dæmdir til dauða í Alsír fyrir að hafa tekið þátt í múgæðisaftöku árið 2021. Fórnarlambið var listamaður sem hugðist aðstoða við að slökkva gróðureld en var myrtur þegar múgurinn ákvað að hann hefði kveikt eldinn.

Dauðadæmdir menn fá ekki að leita til alríkisdómstóla með ný sönnunargögn
Hæstiréttur Bandaríkjanna komst í gær að þeirri niðurstöðu að fangar sem héldu fram sakleysi sínu gætu ekki lagt fram ný sönnunargögn í málum sínum, þrátt fyrir að sýnt hefði verið fram á að vörn þeirra hafi ekki verið fullnægjandi vegna vanhæfra lögmanna.

Aftökur sjaldan færri en fjölgaði mikið milli ára
Kippur var í fjölda aftaka í fyrra eftir að þeim fækkaði umtalsvert í kórónuveiruheimsfaraldrinum árið 2020. Mest fjölgaði þeim í Íran og Sádi-Arabíu. Þrátt fyrir það voru sögulega fáir teknir af lífi í fyrra.

Eiginkona hins dauðadæmda var fræg söngkona
Eiginkona danska mannsins sem hlaut dauðadóm í Nígeríu í gær var þekkt söngkona þar í landi. Málið hefur vakið mikla athygli í Nígeríu.

Danskur ríkisborgari dæmdur til dauða í Nígeríu
Danskur karlmaður var í dag dæmdur til dauða í Nígeríu fyrir að hafa myrt eiginkonu sína og barn þeirra. Sjö ár eru síðan dauðadómi var framfylgt í landinu.

Velur aftökusveit framyfir rafmagnsstólinn
Maður sem situr á dauðadeild í Suður Karólínu hefur ákveðið að aftökusveit muni taka hann af lífi í stað þess að setjast í rafmagnsstólinn. Aftakan verður sú fyrsta í ríkinu í meira en áratug.

Þrír dauðadæmdir fangar teknir af lífi í Japan
Þrír dauðadæmdir fangar hafa verið teknir af lífi í Japan og er um að ræða fyrstu aftökurnar í landinu frá í desember 2019. Japan er í hópi fárra iðnríka, auk Bandaríkjunum, þar sem enn er notast við dauðarefsingar.

Segja ómannúðlegt að vera tekinn af lífi samdægurs
Tveir fangar á dauðadeild hafa sótt mál gegn japönskum stjórnvöldum vegna framkvæmdar á dauðarefsingunni. Málið snýst þó ekki um aftökuna sjálfa, þar sem menn eru hengdir, heldur að boðað sé til hennar samdægurs.

Skalf og kastaði upp í aftöku í Oklahoma
Hinn sextíu ára gamli John Marion Grant var tekinn af lífi í Oklahoma í Bandaríkjunum fyrr í dag. Grant hlaut dauðadóminn fyrir að hafa stungið starfsmann mötuneytis í fangelsi árið 1998. Áður hafði hann verið dæmdur í 130 ára fangelsi fyrir rán.

Neitaði að stöðva aftöku manns með miklar heilaskemmdir
Mike Parson, ríkisstjóri Missouri í Bandaríkjunum, neitaði í gær að fella niður dauðadóm fangans Ernest Johnson. Þúsundir höfðu skrifað undir áskorun um að dauðadómurinn yrði felldur niður, auk þess sem tveir þingmenn hefðu kallað eftir því og einnig páfinn.

Aftökur og aflimanir hefjast á ný
Fangelsismálaráðherra Afganistan, Nooruddin Turabi, segir að aftökur og aflimanir verði teknar upp á nýtt, nú þegar talíbanar eru aftur við stjórn í landinu. Þær verði þó mögulega ekki framkvæmdar fyrir opnum tjöldum.

Kínverskur áfrýjunardómstóll staðfestir dauðadóm yfir Kanadamanni
Áfrýjunardómstóll í Kína hefur staðfest þyngingu á dómi yfir Kanadamanni úr fimmtán ára fangelsi í dauðadóm fyrir að hafa reynt að smygla tæplega 230 kílóum af metaamfetamíni frá Kína til Ástralíu árið 2014.

Föngum gert að velja á milli aftökusveitar eða rafmagnsstóls
Ríkisstjóri Suður-Karólínu í Bandaríkjunum staðfesti lög sem gera föngum á dauðadeild að velja á milli þess að vera teknir af lífi fyrir aftökusveit eða í rafmagnsstól. Lögunum er ætlað að koma aftökum fanga aftur af stað en þær hafa stöðvast vegna skorts á lyfjum sem eru notaðar í banvænar sprautur.

Dæmdur til dauða fyrir morð á frönskum fjallgöngumanni
Dómstóll í Alsír hefur dæmt mann til dauða vegna mannráns og morðs á frönskum fjallgöngumanni í landinu 2014.

Harmleikur konu sem var beitt hryllilegu ofbeldi í æsku eða þaulskipulagt morð?
Diane Mattingly segir að það sé eitt augnablik úr æsku hennar sem fylli hana djúpu þakklæti en líka miklu samviskubiti.