
Norðurlandaráð

Dagur Norðurlandanna – fögnum mergjuðum árangri!
Norrænt samstarf er alveg magnað fyrirbæri. Við tökum því flest sem sjálfsögðu og gefnu og tölum nánast aldrei um það. Það bara er þarna og það er gott. Soldið eins og amma eða afi. Og sannarlega er það gott og gengur að mörgu leyti vel, svo engann þarf að undra að stuðningur almennings sé nær órofa, í öllum þeim átta löndum sem að því koma.

Kristín og Anna tilnefndar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Kristín Eiríksdóttir og Anna María Bogadóttir eru meðal þeirra rithöfunda sem tilnefndar eru til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2024.

Bryndís nýr forseti Norðurlandaráðs
Bryndís Haraldsdóttir var kjörin forseti Norðurlandaráðs fyrir árið 2024 og Oddný G. Harðardóttir varaforseti í lok Norðurlandaráðsþings í Ósló fyrr í dag.

Hótar að draga Grænland úr Norðurlandaráði
Forsætisráðherra Grænlands, Múte B. Egede, hótaði í ræðu sinni á Norðurlandaráði í gær að draga Grænland úr ráðinu. Hann hélt því fram að tækifæri sjálfstæðra landa og heimastjórnarlanda séu ekki jöfn og að samskipti fari ekki fram á jöfnum grundvelli.

Rán hlaut barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs
Rán Flygenring, rithöfundur og umhverfissinni, hlaut í kvöld barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir myndabókina Eldgos.

„Hvert land verður að bera ábyrgð á atkvæði sínu“
Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, segir aldrei hafa komið til greina að sitja hjá í atkvæðagreiðslu um ályktun Jórdaníu um vopnahlé á Gasa á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Hann segir hverja Norðurlandaþjóð verða að taka ákvörðun fyrir sig. Þjóðirnar séu þegar á heildina er litið sammála.

Á ferð með mömmu tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs
Kvikmyndin Á ferð með mömmu sem kom út í fyrra í leikstjórn Hilmars Oddssonar hefur verið tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2023.

Biden segir Bandaríkin og Norðurlönd deila sögu og framtíðarsýn
Forsætisráðherra segir leiðtoga Norðurlandanna hafa átt mjög frjálslegan og opinn fund með forseta Bandaríkjanna í Helsinki í dag. Auk öryggismála hafi meðal annars verið rætt um jafnréttis- og loftslagsmál ásamt málefnum Norðurslóða. Bandaríkjaforseti segir ríkin deila sameiginlegri sýn um frelsi og samvinnu.

Utanríkisráðherrar Norðurlanda funduðu á Ísafirði
Utanríkisráðherrar Norðurlanda funduðu í Edinborgarhúsinu á Ísafirði í morgun. Innrás Rússa var til umræðu og ræddi Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra þá ákvörðun sína að leggja niður starfsemina í sendiráði Íslands í Moskvu sem tilkynnt var um í liðinni viku.

Fiðlubogasnillingar tilnefndir til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs
Fiðluleikarinn Elfa Rún Kristinsdóttir og hljómsveitin Sigur Rós eru tilnefnd til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2023. Tilkynnt verður um verðlaunahafann í Ósló þann 31. október. Þetta kemur fram á vef Norðurlandaráðs.

Kollhnís og Eldgos tilnefndar
Bækurnar Kollhnís eftir Arndísi Þórarinsdóttur og Eldgos eftir Rán Flygenring eru tilnefningar Íslands til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2023. Verðlaunin verða afhent í Osló í lok október.

Bein útsending: Aðgerðir á vinnumarkaði í heimsfaraldri
Norræn ráðstefna stendur nú yfir á Grand Hótel um það hvað Norðurlöndin geta lært af þeim aðgerðum sem þau gripu til á vinnumarkaði vegna heimsfaraldursins. Ráðstefnan hefst klukkan 9 og stendur til klukkan 16 og er haldin í tilefni af formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni. Hægt er að fylgjast með beinu streymi í spilara að neðan.

Guðni og Ragnar tilnefndir til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Ljósgildran eftir Guðna Elísson og Laus blöð eftir Ragnar Helga Ólafsson eru á meðal þeirra verka sem tilnefnd eru til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2023.

„Ljóst að yfirstandandi atburðir hafa stórskaðað samstarf norðurskautsríkja“
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra er stödd í Tromsø í Noregi en þar stendur yfir norðurslóðaráðstefnan Arctic Frontiers. Innrás Rússlands í Úkraínu og afleiðingar hennar fyrir norðurslóðasamstarf voru efst á baugi í umræðum utanríkisráðherra Íslands, Noregs og Svíþjóðar og ráðuneytisstjóra finnska utanríkisráðuneytisins á ráðstefnunni í dag.

Norðurlönd – afl til friðar
Samstarf Norðurlanda hvílir á sterkum menningarlegum, sögulegum og samfélagslegum tengslum. Norrænt samstarf byggir á þeirri sýn að þegar löndin leggja krafta sína saman skili það auknum árangri í að takast á við mikilvægustu áskoranir samtímans.

Ellemann nýr framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar
Danski þingmaðurinn Karen Ellemann mun taka við störfum framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar 1. janúar 2023. Hún tekur við starfinu af hinni finnsku Paulu Lehtomäki.

Öryggis- og friðarmál miðpunktur umræðunnar á Norðurlandaráðsþingi
Forsætisráðherra segir öryggis- og varnarmál vera miðpunkt umræðunnar á þingi Norðurlandaráðs sem nú væri haldið í skugga innrásar Rússa í Úkraínu. Ísland muni leggja áherslu á friðarmál undir formennsku hennar í ráðherraráði ríkjanna með alþjóðlegri friðarráðstefnu í Reykjavík á næsta ári.

Félagslegar áherslur Norðurlanda verða að fylgja loftslagsaðgerðum
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir Norðurlöndin deila gildismati og framtíðarsýn og styðji öll Úkraínu eftir innrás Rússa.

Dýrið hlaut kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs
Dýrið hlaut Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2022 sem afhent voru fyrr í kvöld. Verðlaunin eru talin ein eftirsóttustu kvikmyndaverðlaun í Evrópu.

„Alræðisöfl virðast vera að eflast“
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók þátt í leiðtogaumræðum á þingi Norðurlandaráðs í dag. Umræðuefnið var framtíð norræns samstarfs og hlutverk Norðurlanda í umheiminum. Þingið sem er hið 74. í röðinni stendur fram á fimmtudag.

Norrænt samstarf í 100 ár!
Norræna félagið á Íslandi fagnar í dag að eitt hundrað ár eru liðin frá stofnun félagsins. Þau voru satt best að segja ekki mörg sem sáu tilgang eða mikið vit í hugmyndinni um norrænt samstarf þegar félagið var stofnað 29. september árið 1922, enda kanski ekki von.

Bókmenntahátíðir eru „hæklass“ útgefendaböll
Nú er blásið til mikillar bókamessu í Gautaborg, eftir að allt slíkt hefur legið í láginni á Covid-tímum og því mikil eftirvænting meðal bókmenntafólks. Fulltrúar Íslands verða rithöfundarnir Einar Kárason og Guðrún Eva Mínervudóttir.

Sigurlíkur Íslands tvisvar sinnum meiri í ár
Fimm kvikmyndir eru tilnefndar til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2022 sem fagna 20 ára afmæli í ár. Dýrið í leikstjórn Valdimars Jóhannssonar er fulltrúi Íslands í ár og berst meðal annars um nafnbótina við Volaða land, kvikmynd í leikstjórn Hlyns Pálmasonar, sem er fulltrúi Danmerkur.

Bára og Sóley tilnefndar til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs
Bára Gísladóttir og Sóley Stefánsdóttir eru tilnefndar til tónlistarverðlauna Norðulandaráðs 2022. Alls voru gefnar út tólf tilnefningar en verðlaunin munu fara fram þann 1. nóvember í Helsingfors í tengslum við þing Norðurlandaráðs.

Stríð gegn alþjóðlegu samstarfi
Á þemaþingi Norðurlandaráðs sem haldið var nú í vikunni fór eðlilega mest fyrir umræðu um innrás Rússa í Úkraínu . Sendiherra Úkraínu var sérstakur gestur þingsins auk fulltrúa frá þingum Eystrasaltsríkjanna.

Sterkari í sameinaðri rödd
Samstarf Norðurlanda er eitt umfangsmesta og elsta svæðasamstarf í heimi og hefur metnað til þess að verða sjálfbærasta og samþættasta svæði heims. Það á rætur sínar að rekja aftur til 1952 sem gerir þetta 70. samstarfsárið.

Nýtt ár, nýir tímar
Lista- og menningarstofnanir gegna mikilvægu samfélagslegu hlutverki. Rými listarinnar eiga að vera staðir opnir öllum þar sem fólk hefur möguleika á að eiga við og ræða mikilvæg málefni á fordómalausan máta.

Elísabet og Steinar Bragi tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Rithöfundarnir Elísabet Jökulsdóttir og Steinar Bragi eru í hópi þeirra fjórtán höfunda sem hafa verið tilnefndir til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Verðlaunin verða hafhent í Helsinki í Finnlandi 1. nóvember. Elísabet er tilnefnd fyrir Aprílsólarkulda og Steinar Bragi fyrir Truflunina.

Leiðtogar Norðurlanda heita auknu samstarfi í öryggismálum
Leiðtogar norrænu ríkjanna lögðu áherslu á aukið samstarf um neyðarviðbúnað og annan viðbúnað á fundi Norðurlandaráðs í dag. Ríkin búi sig undir alls konar neyðarástand og kreppur, hvort sem þær eru af völdum manna eða náttúru.

Norðurlöndin hefðu getað unnið meira saman í faraldrinum
Sigurður Ingi Jóhannsson samstarfsráðherra Norðurlandanna segir að Norðurlöndin hefðu getað haft með sér meira samstarf á tímum covid faraldursins. Öryggis- og varnarmál hafi fengið aukna athygli í samstarfi Norðurlandanna á undanförnum árum.