Kjaraviðræður 2023-24
11 12 13 14 15 16 17 … 17 ›
Hvetur félagsmenn til að halda aftur af hækkunum Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda skorar á félagsmenn að halda aftur af verðhækkunum og taka þannig þátt í að þjóðarsátt náist milli SA og breiðfylkingar innan ASÍ. Fyrirtækin eigi auðveldara með slíkt dragi hið opinbera úr boðuðum hækkunum. Forsvarsmenn félagsins hittu forystu VR í morgun. Innlent 12.1.2024 12:01
Kjarafundur í dag og Efling fundar sérstaklega með SA Kjarasamningsviðræður Samtaka atvinnulífsins og breiðfylkingar stéttarfélaga halda áfram í dag. Samningsfundur hefst klukkan eitt eftir hádegi en þangað til mun samninganefnd SA funda sérstaklega með samninganefnd Eflingar. Innlent 12.1.2024 08:50
Verður stórfyrirtækjum hlíft við „sáttinni“? „Á Íslandi er samfélagssáttmáli um jöfnuð... ekki bara í þeim kjarasamningum sem við gerum heldur líka í skattkerfinu okkar...“ sagði framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í grein í Morgunblaðinu á nýársdag. Skoðun 11.1.2024 09:30
Hafnarfjörður mun endurskoða gjaldskrár Vonir standa til að næstu kjarasamningar muni tryggja stöðugleika og lága verðbólgu til langs tíma. Þess vegna höfðu bæjaryfirvöld í Hafnarfirði frumkvæði að því í byrjun desember að lýsa yfir mögulegri endurskoðun á gjaldskrám bæjarins. Með því móti vill sveitarfélagið hvetja til ábyrgrar samningagerðar á vinnumarkaði. Skoðun 11.1.2024 08:00
Alvarlegar afleiðingar standi aðilar ekki við sitt Formaður VR segir að samningaviðræður breiðfylkingar ASÍ við SA á því stigi nú að farið sé að ræða einstök atriði. Hann segist hafa trú á viðræðunum þrátt fyrir fyrri reynslu, allir aðilar þurfi að standa við sitt. Innlent 10.1.2024 14:39
Pallborðið: Hvað felst í þjóðarsátt og fyrir hverja er hún? Kjaraviðræður, kjarasamningar og möguleg þjóðarsátt verða til umfjöllunar í Pallborðinu klukkan 13 í dag, sem sýnt verður í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi. Innlent 10.1.2024 11:26
Íhuga að fara fyrir dómstóla fái SVEIT ekki sæti við borðið Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði segir fráleitt að samtökin fái ekki sæti við borðið í yfirstandandi kjaraviðræðum. Félagsmenn samtakanna skapi hátt í sex þúsund störf á veitingamarkaði en fái ekkert um kjarasamninga að segja. Innlent 9.1.2024 13:01
Yfirstandandi kjaraviðræður og þjóðarsátt – fyrir suma Legið hefur fyrir um langt skeið að Samtök atvinnulífsins (SA) fara ekki með umboð þeirra 170 fyrirtækja sem eru aðildarfélög Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT). Félagsmenn SVEIT búa til um 5.500 störf á veitingamarkaði og fráleitt að hefðir eða reglur annarra hagsmunafélaga haldi SVEIT frá kjaraviðræðum og kalli það þjóðarsátt. Skoðun 9.1.2024 10:30
Katrín hringdi í Sonju: Verður þetta eitt stórt borð eða mörg minni? „Hún var í raun að óska eftir fundi, eins og ég skildi það, til að heyra okkar áherslur í aðdraganda kjarasamninga. Og ég var svona að fara yfir það,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, um samtal sitt við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í morgun. Innlent 8.1.2024 12:45
Samningur sem gagnast öllum Kolbrún Halldórsdóttir formaður BHM gagnrýnir aðkomu ASÍ félaganna sem nú standa að samningagerð á almenna markaðinum í nýlegri grein. Hið sama gerir Þórarinn Eyfjörð formaður Sameykis í grein í dag. Skoðun 8.1.2024 11:02
Þjóðarsátt – um hvað og fyrir hverja? Kjarasamningar starfsfólks hjá ríkinu og sveitarfélögum sem eru innan BSRB, BHM og KÍ renna flestir út þann 31. mars næstkomandi en kjarasamningar verkalýðsfélaga innan ASÍ og á almenna markaðnum renna út um næstu mánaðarmót. Það er mikilvægt að vel takist til við samningaborðið því stétta- og verkalýðsfélögin og bandalög þeirra verða að ná góðum árangri fyrir félagsfólk sitt. Launafólk verður að fá fullvissu um að kjarasamningar hverju sinni séu skref fram á við, bæði í beinhörðum launagreiðslum og öðrum þáttum sem hafa mikil áhrif á afkomu fólks og gangverk samfélagsins í heild. Skoðun 8.1.2024 06:00
Raunhæfar kjarabætur í sjónmáli Að hækka laun án þess að til hafi orðið aukin verðmæti, þýðir ekki kjarabætur heldur verðbólgu með tilheyrandi tjóni fyrir alla, sérstaklega þá sem síst skyldi. Það nægir ekki að hafa góðar tekjur ef föstu útgjöldin eru hærri. Ef bæta á kjörin þarf að auka það sem er til skiptanna. Skoðun 7.1.2024 09:01
Samvinnuverkefni um lægri verðbólgu og vexti Jákvæður tónn var sleginn í kjaraviðræðum Samtaka atvinnulífsins og stærstu stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði þegar sameiginleg yfirlýsing var send út nú rétt fyrir áramót. Í yfirlýsingunni er sérstaklega tiltekið mikilvægi þess að semja til lengri tíma svo auka megi fyrirsjáanleika og stöðugleika í efnahagslífinu. Skoðun 7.1.2024 06:31
Stjórnvöld ætli að leggja sitt af mörkum náist hagstæðir langtímakjarasamningar Forsætisráðherra segir að stjórnvöld muni leggja sitt af mörkum takist að ná langtíma kjarasamningi milli SA og ASÍ sem miði af því að ná verðbólgu og vöxtum niður. Verkalýðsforingjar voru bjartsýnir eftir fund með ráðherrum í dag. Innlent 5.1.2024 20:01
„Talsverðar óskir“ Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags-og vinnumarkaðsráðherra, segir fund með fulltrúum verkalýðshreyfingarinnar sem fram fór í Ráðherrabústaðnum í morgun hafa verið góðan. Innlent 5.1.2024 15:01
„Þetta hefur ekkert með þjóðarsátt að gera“ Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis og fyrsti varaformaður BSRB, segir ekkert samráð hafa verið haft við heildarsamtök opinberra starfsmanna í tengslum við yfirstandandi viðræður Samtaka atvinnulífsins og nokkurra leiðtoga verkalýðshreyfingarinnar. Innlent 5.1.2024 06:37
Bjartsýnn fyrir fund með stjórnvöldum á morgun Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segist vongóður fyrir fund verkalýðsforystunnar með stjórnvöldum á morgun. Forsætisráðherra boðaði verkalýðsforystuna til fundarins. Innlent 4.1.2024 22:31
„Við erum bara að vinna vinnuna“ Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að fundað sé stíft í Karphúsinu og sú staða verði áfram næstu daga. Breiðfylking stéttarfélaga og SA nálgist verkefnið af mikilli einlægni. Innlent 4.1.2024 14:24
„Við þurfum að vera duglegri að flokka, þá lækkar þetta aftur“ Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir sveitarfélögin hafa reynt að halda aftur af sér hvað varðar verðhækkanir á þessu ári. Sveitarfélögin vilja taka meira þátt í samtalinu þegar kemur að launahækkunum. Innlent 3.1.2024 22:21
Kjarasamningar og þjóðarsátt Þær kjaraviðræður sem nú eru í gangi á milli þorra aðildarfélaga ASÍ og Samtaka Atvinnulífsins eru afskaplega mikilvægar og skiptir miklu máli að vel takist til. Bæði er verðbólga allt of há og jafnframt er vaxtastig í landinu algjörlega óviðunandi. Skoðun 3.1.2024 21:00
Víða verðhækkanir þrátt fyrir skýr skilaboð frá SA og ASÍ Bjartsýni ríkir hjá hjá samninganefndum SA og ASÍ um yfirstandandi kjaraviðræður þar sem kallað er eftir þjóðarsátt. Hið opinbera og atvinnulífið þurfi að halda aftur af hækkunum svo það takist. Formaður verkalýðsfélags segir að á 20 ára ferli hafi hann ekki séð annan eins samtakamátt. Víða hafa þó verið miklar verðhækkanir frá áramótum eða eru boðaðar á næstunni. Innlent 3.1.2024 19:01
Lagt upp með fjögurra ára samning Breiðfylking stéttarfélaga og Samtök atvinnulífsins hafa til skoðunar fjögurra ára kjarasamning. Launatölur hafa verið lagðar á borðið en formaður VR segir launaliðinn algjört aukaatriði þegar kemur að mögulegum ávinningi verkafólks. Stjórnvöld þurfi að stíga skrefið inn í viðræðurnar. Innlent 3.1.2024 12:40
Bleiki fíllinn í postulínsbúðinni Ég vil hrósa aðilum vinnumarkaðarins fyrir ábyrga nálgun í upphafi kjaraviðræðna. Verðbólgu og vaxtabölið er bleiki fíllinn í postulínsbúðinni. Lífsgæði og afkoma flestra ráðast að mestu af þessum þáttum og sveitarfélögin eru ekki stikkfrí. Skoðun 3.1.2024 12:00
Árið 2023 í myndum: Skjálftar á skjálfta ofan Það var titringur víða í samfélaginu árið 2023. Hatrammar kjaradeilur settu mark sitt á árið og tekist var á um hvalveiðar, útlendingamál og valdheimildir lögreglu, svo eitthvað sé nefnt. Innlent 2.1.2024 08:47
47% þjóðarsátt? Það var einbeittur hópur forystufólks atvinnurekenda og stéttarfélaga sem settist niður með ríkissáttasemjara á milli jóla og nýárs. Stefnan skal sett á „þjóðarsátt“, þrátt fyrir að meirihluti launakostnaðar í hagkerfinu liggi utan samningssviðs aðila og að stór hluti þjóðarinnar sé í öðrum stéttarfélögum. Skoðun 1.1.2024 08:30
Sameinast með SA í áskorun gegn verðhækkunum Samtök atvinnulífsins ásamt samfloti landssambanda og stærstu stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði skora á fyrirtæki og opinbera aðila að halda aftur af verð-og gjaldskrárhækkunum. Innlent 28.12.2023 14:30
Vilja útvíkka veikindaréttinn til veikinda nákominna Útvíkkun veikindaréttarins, þannig að hann nái einnig til þess þegar fólk þarf að sinna veikum fjölskyldumeðlimum, verður líklega meðal baráttumála í komandi kjaraviðræðum. Innlent 28.12.2023 06:29
Samningsaðilar samstíga eftir fyrsta fundinn Fyrsti fundur nýrrar breiðfylkingar langflestra félaga ASÍ og Samtaka atvinnulífsins fór fram hjá ríkissáttasemjara í morgun. Samningsaðilar segja mikla samstöðu um að ná samningum, sem stuðla að hjöðnun verðbólgu, hratt og vel. Innlent 22.12.2023 12:55
Söguleg breiðfylking stefnir að því að keyra niður vexti og verðbólgu Ný breiðfylking með um 93 prósent félagsmanna Alþýðusambandsins hefur sameinast um kröfur og markmið í nýjum kjarasamningum til þriggja ára. Formaður Eflingar segir stefnt að hóflegum launahækkunum til að keyra niður vexti og verðbólgu hratt og örugglega. Ef allt gangi að óskum verði hægt að ganga frá tímamóta samningum snemma á næsta ári. Innlent 21.12.2023 18:31
Gleðilegt að verðbólga virðist hjaðna fyrr en spáð var Verðbólga er minni í desember en greiningardeildir bankanna gerðu ráð fyrir og mælist nú 7,7 prósent samkvæmt vísitölu Hagstofunnar. Hagfræðingur Landsbankans segir gleðiefni að verðbólgan virðist vera að hjaðna hraðar en spáð hafði verið. Viðskipti innlent 21.12.2023 11:27