Bandaríkin
122 123 124 125 126 127 128 129 130 … 334 ›
Saka Bandaríkin um að reyna að veikja Íran í skugga mótmæla Yfirvöld í Íran hafa sakað bandarísk stjórnvöld um að nýta sér mótmælin sem nú standa yfir vegna dauða ungrar konu til að veikja Íran og segjast munu bregðast við. Ekkert lát er á mótmælunum sem hófust um þar síðustu helgi en á fimmta tug hafa látist samkvæmt opinberum tölum. Erlent 26.9.2022 12:36
Ian sækir í sig veðrið á leið til Kúbu Hitabeltisstormurinn Ian stefnir nú hraðbyr á Kúbu og sækir í sig veðrið á leiðinni. Óveðrið hefur nú náð fellibylsstyrk en er enn að verða öflugri. Talið er að Ian muni ná landi á vesturhluta Kúbu í nótt og ná landi í Flórída seinna í vikunni. Erlent 26.9.2022 11:53
Rihanna mun stíga á stokk í hálfleikssýningu Ofurskálarinnar Búið er að staðfesta að Rihanna muni stíga á stokk í hálfleikssýningu Ofurskálarinnar sem fram fer 12. febrúar á næsta ári. Sport 25.9.2022 23:01
Leiðir skilja hjá enn einu Bachelor parinu Bachelor þátttakendurnir Clayton Echard og Susie Evans tilkynntu aðdáendum Bachelor heimsins um sambandsslit sín á Instagram í gær. Parið hafði verið saman síðan seríu Echard sem Bachelor lauk. Bíó og sjónvarp 24.9.2022 13:17
Louise Fletcher er látin Bandaríska leikkonan góðkunna, Louise Fletcher er látin, 88 ára að aldri. Fletcher var einna þekktust fyrir hlutverk sitt sem hjúkrunarfræðingurinn Ratched í kvikmyndinni Gaukshreiðrinu, eða One Flew Over the Cuckoo‘s Nest, frá árinu 1975. Bíó og sjónvarp 24.9.2022 10:06
Brad Pitt stígur inn í húðvörubransann Brad Pitt hefur nú sett á flug sína eigin húðvörulínu en vörurnar segir hann henta öllum kynjum. Lífið 23.9.2022 23:25
Kanye biður Kim afsökunar Kanye West hefur beðið fyrrverandi eiginkonu sína, Kim Kardashian, afsökunar á öllu því stressi sem hann hefur valdið henni. Hann segist geta borið erfiðleika sína með Kim saman við erfiðleika sína með Adidas. Lífið 23.9.2022 07:31
Raisi hætti við viðtalið eftir að Amanpour neitaði að bera höfuðklút Forseti Írans, Ebrahim Raisi neitaði að mæta í viðtal við fréttakonu CNN, Christiane Amanpour vegna þess að hún neitaði að bera höfuðklút á meðan á viðtalinu stæði. Erlent 22.9.2022 21:14
Telur forseta geta aflétt leynd með huganum einum Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, réttlætti vörslu sína á aragrúa leyniskjala með því að forseti gæti aflétt leynd af gögnum með því einu að hugsa um það í sjónvarpsviðtali í gær. Þá kallaði hann málaferli gegn honum í New York pólitískar nornaveiðar. Erlent 22.9.2022 11:51
Twitch bannar fjárhættuspilastreymi Frá og með 18. október næstkomandi munu notendur streymissíðunnar Twitch ekki geta streymt frá því þegar þeir stunda fjárhættuspil á netinu, nema að vefsíðan sem þeir nota sé skráð í Bandaríkjunum. Fjárhættuspilastreymi hafa aukist gríðarlega í vinsældum upp á síðkastið. Viðskipti erlent 22.9.2022 11:23
Stefna ríkisstjóra fyrir að senda þá á sumardvalareyju Venesúelskir hælisleitendur sem ríkisstjóri Flórída í Bandaríkjunum lét fljúga með frá Texas til lítils sumardvalarstaðar í Massachusetts hafa stefnt honum fyrir blekkingar og mismunun. Lögmaður þeirra sakar ríkisstjórann um notfæra sér þá sem pólitísk peð. Erlent 22.9.2022 09:15
Nancy Pelosi og Katrín Jakobsdóttir funduðu á Capitol Hill Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings funduðu í dag í Washington D.C., höfuðborg Bandaríkjanna. Innlent 21.9.2022 21:00
Stýrivextir ekki verið hærri í Bandaríkjunum síðan í kreppunni 2008 Seðlabanki Bandaríkjanna hækkaði stýrivexti í dag um 0,75 prósentustig í tilraun til að berja niður verðbólguna sem herjar í landinu. Viðskipti erlent 21.9.2022 18:40
Saka Trump og börn hans um umfangsmikil fjársvik Letitia James, ríkissaksóknari New York-ríkis, hefur höfðað mál gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, og þremur elstu börnum hans, þeim Donald Trump yngri, Ivönku Trump og Eric Trump. Þau eru sökuð um umfangsmikil skatt- og bankasvik. Erlent 21.9.2022 18:29
Fer aftur í mál við Trump vegna meintrar nauðgunar Rithöfundurinn E. Jean Carroll ætlar aftur í mál við Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, vegna meintrar nauðgunar. Carroll skrifaði um meint atvik í bók sinni What Do We Need Men For? A Modest Proposalsem kom út árið 2019 en Trump sakaði hana um að ljúga um atvikið til að selja fleiri eintök af bókinni. Erlent 21.9.2022 06:38
Bachelor keppandi sakaður um að brjóta gegn tveimur konum DeMario Jackson, sem gerði garðinn frægan í raunveruleikaþáttunum Bachelorette og Bachelor in Paradise, hefur verið sakaður um að brjóta á tveimur konum. Báðar segja hann hafa haft mök við sig án samþykkis þeirra. Lífið 20.9.2022 23:56
Neita að reyna að sanna hvort Trump hafi svipt leynd af gögnunum Alríkisdómari sem fenginn var til að fara yfir opinber og leynileg gögn sem starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) tóku af Donald Trump, fyrrverandi forseta, í ágúst þrýsti á dómara Trumps í dómsal í dag. Hann vildi að þeir færðu sannanir fyrir því að Trump hefði svipt leynd af gögnum sem hann tók með sér úr Hvíta húsinu og hvaða gögn um væri að ræða. Erlent 20.9.2022 22:53
Rannsaka hreppaflutninga vonarstjörnu repúblikana á hælisleitendum Lögreglustjóri í Texas ætlar að kanna hvort að lög hafi verið brotin þegar ríkisstjóri Flórída lét fljúga tugum venesúelskra hælisleitenda þvert yfir landið til Massachusetts í síðustu viku. Vísbendingar hafa komið fram um að fólkið hafi verið beitt blekkingum um hvað biði þess þar. Erlent 20.9.2022 21:03
Trump skipar Íslandi í flokk þriðja heims ríkja Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, gagnrýnir að Bandaríkjaforseta hafi verið skipað á bekk með þriðja heims leiðtogum við útför Bretadrottningar í gær. Bandarísku forsetahjónin sátu rétt fyrir aftan þau íslensku í kirkjunni. Trump telur að Bandaríkin hafi mátt þola vanvirðu sökum þessa. Erlent 20.9.2022 10:36
Lögreglubíll varð fyrir lest með handtekna konu í aftursætinu Kona sem lögregluþjónar í Colorado í Bandaríkjunum handtóku á föstudaginn slasaðist þegar lögreglubíll sem hún var í varð fyrir lest. Hún var ein í bílnum en lögregluþjónarnir höfðu lagt honum á lestarteinum, án þess að taka eftir því. Erlent 20.9.2022 08:00
Sleppt úr fangelsi átta árum eftir útgáfu Serial Morðdómi Adnan Syed hefur verið snúið við af dómara eftir að saksóknarar fundu nýjar vísbendingar sem tengjast morði fyrrverandi kærustu hans. Mál Syeds varð frægt um heiminn allan eftir að fjallað var um það í hlaðvarpinu Serial sem birt var árið 2014. Erlent 19.9.2022 22:51
Skemmdirnar á Púertó Ríkó sagðar hörmulegar Fellibylurinn Fíóna olli hörmulegum skemmdum á eyjunni Púertó Ríkó í dag. Ríkisstjóri eyjunnar segir eyðilegginguna hvað versta í þéttbýli og að minnst einn sé látinn. Enn sé þó ekki búið að ná að fullu utan um eyðilegginguna. Erlent 19.9.2022 19:05
Gefa ekki upp hvort þeir muni sætta sig við kosningaúrslit Á annan tug frambjóðenda Repúblikanaflokksins í þing- og ríkisstjórakosningum í haust vilja ekki taka af tvímæli um hvort þeir samþykki úrslitin þegar talið hefur verið upp úr kjörkössunum. Stór hluti flokksins afneitar enn úrslitum forsetakosninganna árið 2020. Erlent 19.9.2022 15:26
Segir að heimsfaraldrinum sé lokið Joe Biden Bandaríkjaforseti segir að kórónuveiran sé enn vandamál en að staðan hafi breyst og að heimsfaraldrinum sé lokið. Erlent 19.9.2022 06:34
Hundruð þjóðarleiðtoga væntanlegir og rándýr öryggisgæsla á svæðinu Búist er við hundruðum þjóðarleiðtoga og hátt settum embættismönnum til London vegna útfarar Elísabetar II Bretlandsdrottningar. Kostnaður við öryggisgæslu við útförina geti numið meira en 6,4 milljónum punda. Erlent 18.9.2022 15:02
Cardi B játar líkamsárás á strippstað Rapparinn Cardi B játaði í dag að hafa skipulagt árás og ráðist á starfsmann strippstaðarins Angels í New York árið 2018. Cardi taldi að einn starfsmanna barsins væri viðhald eiginmanns hennar, Offset. Lífið 16.9.2022 12:57
Flugu farandfólki óvænt til Martha's Vineyard Ríkisstjórar Texas og Arizona í Bandaríkjunum, sem eru Repúblikanar, hafa um mánaða skeið sent farandfólk með rútum til borga í Bandaríkjunum, án þess að láta Demókratana sem stjórna þar vita. Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, tók þetta skrefinu lengra á dögunum og flaug um fimmtíu manneskjum frá Texast til Martha‘s Vineyard í Massachusetts. Erlent 16.9.2022 09:19
Blake Lively á von á fjórða barninu Leikkonan Blake Lively á von á barni númer fjögur með eiginmanni sínum til tíu ára, leikaranum Ryan Reynolds. Lively sýndi heiminum að hún ætti von á barni nú fyrr í dag þegar hún steig á rauða dregilinn á Forbes viðburði. Lífið 15.9.2022 21:30
Ævi og ferill Whitney Houston til sýnis í væntanlegri kvikmynd Fyrsta stikla kvikmyndarinnar „I Wanna Dance With Somebody“ sem byggð er á lífi og starfi söngkonunnar Whitney Houston hefur litið dagsins ljós. Í stiklunni má sjá búta af leiðinni sem Houston fór að þeirri gríðarlegu frægð sem umkringdi feril hennar og mikilvæg augnablik úr hennar einkalífi. Bíó og sjónvarp 15.9.2022 18:12
Hringdi eftir hjálp en var skotinn til bana af lögregluþjónum Foreldrar ungs mans frá Colorado í Bandaríkjunum krefjast þess að lögregluþjónar verði ákærðir fyrir að bana honum. Hinn 22 ára gamli Christian Glass var skotinn til bana í júní eftir að hann hringdi í neyðarlínuna og bað um hjálp eftir að hann festi bíl sinn. Erlent 15.9.2022 09:39