
HönnunarMars

„Ávallt meðvituð um að við gætum þurft að hætta við allt“
„Það er ótrúlegur léttir að geta sagt að HönnunarMars í júní hafi farið fram úr björtustu vonum teymisins og við eru í skýjunum með hversu frábærlega vel til tókst með hátíðina,“ segir Þórey Einarsdóttir stjórnandi hátíðarinnar.

Fögnuðu komu nýju línunnar Cheer Up!
Fatahönnuðurinn Hildur Yeoman fagnaði línu sinni Cheer Up! á HönnunarMars um helgina og var fullt út úr dyrum í versluninni. Hildur hannaði sérstaka djammtoppa úr afgangsefnum sem seldir voru til styrktar UN Women en þeir seldust upp.

Íslensk hönnun í allt sumar
HönnunarMars fór fram dagana 24. til 28. júní en þó hátíðinni hafi formlega lokið á sunnudag þá eru margar sýningar opnar áfram í sumar og jafnvel fram á haust. Þeir sem misstu af HönnunarMarsí ár geta því kynnt sér listann hér fyrir neðan í fréttinni.

Fjölskylduvænn HönnunarMars: Búningar, tónlistarhringur og ilmsturta
Í dag er síðasti dagur HönnunarMars og margir borgarbúar munu flakka á milli sýningarstaða. Sýningar hönnuðanna eru fjölbreyttar og allir ættu að geta fundið sér eitthvað við hæfi. Það eru samt nokkrar sýningar sem henta einstaklega vel fyrir alla fjölskylduna.

Dagskrá HönnunarMars: Dagur fimm
Í dag er síðasti dagur HönnunarMars hátíðarinnar. Við minnum á að alla dagskránna er hægt að nálgast á heimasíðu HönnunarMars og þar er hægt að finna gagnvirkt kort sem sniðugt er að til að skipuleggja sýningarflakk dagsins.

Nýta tóm verslunarrými í miðborginni til að sýna hönnun í gegnum glugga
Hönnuðir og húsnæðiseigendur í miðbænum leiða saman hesta sína og gefa gestum og gangandi tækifæri á að skoða alls kyns hönnun núna í tilefni HönnunarMars sem lýkur í dag. Í gegnum tíu glugga víðs vegar um miðborgina hefur vegfarendum verið boðið að staldra við, líta inn um glugga og fá innsýn í fjölbreytilegan heim hönnunar.

Studio 2020 á HönnunarMars: Hönnunarspjall þrjú
Í hönnunarspjallþætti dagsins verður farið yfir sýningar og viðburði dagsins áður og það sem framundan er á HönnunarMars. Garðar og Hlín Helga ræða í dag við Arnhildi Pálmadóttur arkitekt, Eygló Margréti Lárusdóttur fatahönnuð og stofnanda vörumerkisins EYGLÓ, Baldur Helga Snorrason arkitekt og Arnar Inga Viðarsson, grafískan hönnuð.

„Þakklát fyrir hvern dag sem við getum verið að þessu“
Hönnunarteymið AGUSTAV er skipað hjónunum Ágústu Magnúsdóttur og Gustav Jóhannssyni. Þau taka þátt í HönnunarMars í ár og sýna bæði í Hafnarborg og í nýlegri verslun sinni á Skólavörðustíg 22. Þau vinna með við og nýta hvern einasta viðarbút sem þau fá alveg í þaula.


Hönnun og myndlist mætast í einu og sama efninu
Á sýningunni efni:viður í Hafnarborg í Hafnarfirði er viður í forgrunni. Um er að ræða sýningu sem tvinnar saman innanhúshönnun, vöruhönnun og upplifunarhönnun.

Gefa matarafgöngum nýtt líf við matarborðið
Hjón í Hafnarfirði gefa matarafgöngum nýtt líf við matarborðið í sýningu sem er hluti af HönnunarMars. Þau lita textílefni úr lauki og lárperu svo úr verða fallegir dúkar.

Stafrænn gagnagrunnur í vefnaði opnaður formlega á HönnunarMars
Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta og menningarmálaráðherra opnaði á HönnunarMars nýjan stafrænan gagnagrunn í vefnaði. Gagnagrunnurinn er á vegum Textílmiðstöðvar Íslands, og fór formlega opnunin fram á sýningunni Hefðbundin munstur í stafrænni framtíð.

Studio 2020 á HönnunarMars: Hönnunarspjall tvö
Í hönnunarspjallþætti dagsins verður farið yfir sýningar og viðburði dagsins áður og það sem framundan er á HönnunarMars hátíðinni með vel völdum einstaklingum, sem og lifandi samtal um hönnun í ljósi hamfarahlýnunar, hraðra tækniframfara, samfélagsbreytinga og nú síðast covid 19.

Dagskrá HönnunarMars: Dagur þrjú
Hátíðin HönnunarMars 2020 er í fullum gangi og lýkur á sunnudag. Helgin í borginni verður stútfull af íslenskri hönnun og áhugaverðum viðburðum og sýningum.

Verðlaunasýningar á Hafnartorgi vöktu athygli
Félag íslenskra teiknara opnaði tvær alþjóðlegar verðlaunasýningar á Hafnartorgi í tilefni af HönnunarMars 2020. Um er að ræða farandsýningu Art Directors Club of Europe þar sem verðlaunuð verk víðsvegar að úr Evrópu verða til sýnis og Tolerance Project listamannsins Mirko Ilic.

Útlandastemning í borginni og Hafnartorg vaknaði til lífs
Þórey Einarsdóttir núverandi stjórnandi HönnunarMars og Sara Jónsdóttir fyrrverandi framkvæmdastjóri hátíðarinnar voru á meðal viðmælanda í Hönnunarspjalli Studio 2020 á Vísi í dag.

Nýttu matarafganga veitingastaða í hönnun nýrrar heimilislínu
Hjónin Ýr Káradóttir og Anthony Bacigalupo sýna einstaka heimilislínu á HönnunarMars í ár, sem unnin er í samstarfi við keramik listamann og valda veitingastaði staðsetta í nærumhverfi þeirra í Hafnarfirði.

Studio 2020 á HönnunarMars: Hönnunarspjall eitt
Í hönnunarspjallþættinum verður farið yfir sýningar og viðburði HönnunarMars hátíðarinnar með vel völdum einstaklingum á meðan hátíðin stendur yfir sem og samtal um hönnun í ljósi hamfarahlýnunar, hraðra tækniframfara, samfélagsbreytinga og nú síðast covid 19.

Íslensk hönnun í sinni litríkustu mynd
Haldið var sérstakt HönnunarMars opnunarhóf í verslun EPAL í Skeifunni í gær. Fullt var út úr dyrum og var greinilega mikill áhugi hjá fólki að kynna sér íslenska hönnun. Á HönnunarMars í Epal verður til sýnis úrval af áhugaverðri hönnun eftir fjölbreyttan hóp íslenskra hönnuða.

„Skemmtilegt að sjá hvernig hið forna sameinast hinu nýja“
Textílfélagið opnaði í gær sýninguna Nýju fötin keisarans á Kolagötu á Hafnartorgi. Félagið hefur tekið þátt í HönnunarMars frá upphafi og er þetta framlag þeirra í ár.

Dagskrá HönnunarMars: Dagur tvö
HönnunarMars fer fram um helgina, dagana 24. til 28. júní. Alla dagskránna er hægt að nálgast á heimasíðu HönnunarMars og sömuleiðis er þar að finna gagnvirkt kort sem hægt er að nýta sér til að skipuleggja sýningarflakk hátíðarinnar.

Borgarstjóri afhjúpaði listaverk á Lækjartorgi í dag
Hátíðin HönnunarMars hófst formlega í dag. Á dagskrá eru áttatíu sýningar og hundrað viðburðir um allt höfuðborgarsvæðið. Meðal þess sem hægt er að sjá er handspritt unnið úr sítrónum á síðasta söludegi og handtöskur úr gömlum gjafaborðum.

Íslensk hönnun er íslensk hönnun þó að hún sé framleidd erlendis
Fatahönnuðurinn Hildur Yeoman sýnir litríka og bjarta línu á HönnunarMars sem hófst formlega í dag.

Afhjúpa sex metra speglahlið á milli Bankastrætis og Austurstrætis
Í dag verður hönnunarverkið Torg í spegli afhjúpað á Lækjartorgi. Hönnuðir verksins eru Arnar Ingi Viðarsson og Valdís Steinarsdóttir og er það hluti af HönnunarMars 2020. Torg í Speglun er hönnunarverk sem þjónar hlutverki almenns áningarstaðar og sem innsetningarverk sem brýtur upp sjónlínur áhorfendans.

HönnunarMars hófst í dag
Hátíðin HönnunarMars hófst formlega í dag. Á dagskrá eru áttatíu sýningar og hundrað viðburðir um allt höfuðborgarsvæðið.

Dagskrá HönnunarMars: Dagur eitt
Hátíðin HönnunarMars 2020 er formlega hafin. Í dag brestur hátíðin á í 12 sinn og í fyrsta sinn í júní. Hér má sjá opnanir og viðburði á HönnunarMars í dag.

Íslensk flík: Klæðumst því sem okkur er næst
#íslenskflík er verkefni Fatahönnunarfélags Íslands sem miðar að því að kynna íslenska fatahönnun og vekja athygli á því framúrskarandi hugviti og þeim fjölbreyttu vörum sem hér er að finna.

Hönnunarmars hefst í dag
Hátíðin í ár verður með breyttu sniði. Áhersla verður lögð á smærri sýningar og hönnuðina sjálfa en stórir viðburðir á borð við opnunarhóf og málstofur fara fram á næsta ári.

Greina tonn frá Rauða krossinum til að sýna neyslumenningu Íslendinga
Í dag opnaði sýningin FLOKK TILL YOU DROP í Hönnunarsafni Íslands. Sýningin er hluti af HönnunarMars í ár og er „ádeila á úrelta orðatiltækið shop till you drop.“ Verkefnið stuðlar að því að auka vitundarvakningu um neyslumenningu Íslendinga

HönnunarMars miðlað með nýjum hætti til að veita innsýn í hugarheim hönnuða á óvissutímum
HönnunarMars kynnir Studio 2020. Dagskrá Studio 2020 samanstendur af fjölbreyttum viðtölum, beinum útsendingum og streymi, gjörningum og hlaðvarpi.