Sá sem situr í stól Klopp í kvöld er með hæstu þjálfaragráðu UEFA Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. desember 2019 13:00 Neil Critchley hefur unnið fyrir Liverpool í sex ár. Getty/Nick Taylor
Það verður enginn Jürgen Klopp á hliðarlínu Liverpool í kvöld þegar liðið mætir Aston Villa í átta liða úrslitum enska deildabikarsins. Þetta verður fyrsti leikur aðalliðs Liverpool í fimmtíu mánuði þar sem einhver annar en Klopp stýrir liðinu. Jürgen Klopp tók við Liverpool í október 2015 og hefur stjórnað öllum leikjum aðalliðsins á þeim fjórum árum og tveimur mánuðum sem hann hefur starfað sem knattspyrnustjóri félagsins. Klopp er hins vegar staddur í allt annarri heimsálfu í kvöld því hann er með aðalliðið í Katar þar sem Liverpool liðið mætir Monterrey frá Mexíkó í undanúrslitum heimsmeistarakeppni félagsliða. Neil Critchley will throw Anfield’s kids into the most daunting test of their lives with a message from Jurgen Klopp: Play in the Liverpool way. “They need tough challenges and the team that takes to the pitch will take so much from the experience.”https://t.co/j5aVvbavsc— Anfield Watch (@AnfieldWatch) December 16, 2019 Maðurinn sem situr í „stól“ Klopp á Villa Park heitir Neil Critchley og er 41 árs gamall Englendingur sem er þjálfari 23 ára liðs félagsins. Knattspyrnuferill Neil Critchley var ekki upp á marga fiska en hann spilaði einn leik fyrir Crewe Alexandra tímabilið 1999-2000 og þrjá leiki fyrir utandeildarliðið Leigh RMI tímabilið á eftir. Eini byrjunarliðsleikurinn kom í bikarleik með Leigh. Neil Critchley skipti yfir í þjálfun og snéri til baka til Crewe og varð þar yfirmaður knattspyrnumála árið 2007. Hann er einn af sextán þjálfurum í Englandi sem hafa klárað hæstu þjálfaragráðunum hjá UEFA. Critchley kom til Liverpool árið 2013 og tók fyrst við átján ára liði félagsins sem hann þjálfaði í fjögur ár. Neil Critchley varð síðan þjálfari 23 ára liðsins árið 2017. Nú kemur stóra tækifærið og hann fær á sig sviðsljósið í kvöld. "One game like this is worth a million training sessions." Neil Critchley is one of the most qualified coaches in Europe. Tomorrow, the LFC U23 boss is the LFC senior manager for the day. https://t.co/kHIkDjyW5l— Chris Bascombe (@_ChrisBascombe) December 16, 2019 „Þetta er stórt tækifæri fyrir okkur alla, mig meðtalinn. Ég er mjög stoltur yfir því að fá að stýra liðinu en ég þarf líka að fá stolt frá mínum leikmönnum að sýna hvað í þeim býr,“ sagði Neil Critchley á blaðamannafundi fyrir leikinn. Jürgen Klopp sjálfur tók samt ekki ákvörðunina um hver myndi stýra Liverpool liðinu í kvöld. „Það voru augljóslega einhverjir háttsettari en ég sem tóku þá ákvörðun. Félagið þurfti að taka ákvörðun og þeir komust að þessari niðurstöðu. þetta er einstakar kringumstæður og ég held að þetta hafi ekki gerst áður,“ sagði Jürgen Klopp. Forráðamenn Liverpool hafa ekki aðeins mikla trú á Neil Critchley því enska sambandið valdi hann sérstaklega til að vera einn fyrstu Englendingum til að taka hæsta þjálfaraprófið hjá UEFA. Leikur Aston Villa og Liverpool hefst klukkan 19.45 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. With Liverpool fielding two different playing squads in the League Cup and Club World Cup in the space of 24 hours, the club’s stand-in manager Neil Critchley said that the young side he will field to face Aston Villa will be well-prepared pic.twitter.com/6neGkmOz4S— Reuters (@Reuters) December 16, 2019
Enski boltinn Mest lesið Fær ekki að spila á Íslandi vegna gamals dóms: „Ekki ógn við þjóðina“ Körfubolti Liverpool mætir PSG og Madrídarliðin eigast við Fótbolti Dagmar ofuramma og heimsmethafi: „Maður springur bara út“ Sport Ratcliffe þekkti ekki fyrirliða kvennaliðsins Enski boltinn Sjáðu markið: Tók Orra enga stund að stimpla sig inn Fótbolti Zlatan segir skammarverðlaunin verðskulduð Fótbolti Bætti skólamet pabba síns Körfubolti „Vafasamir dómar sem féllu gegn okkur í þessu einvígi“ Fótbolti Hrósa Ísaki fyrir þroska, hreinskilni og auðvitað að vera góður í fótbolta Sport „Vissi ekki hvað þessi sársauki þýddi“ Handbolti Fleiri fréttir Ratcliffe þekkti ekki fyrirliða kvennaliðsins Arsenal aldrei aflað meira en tapaði samt þremur milljörðum Hafa verið þrettán ár af lygum „Frábær leikur en ég er ekki ánægður með úrslitin“ Jafntefli niðurstaðan í frábærum leik á Villa Park Kostaði Man. United meira en 2500 milljónir að reka Ten Hag og Ashworth Casemiro fer ekki fet Arsenal lét heitasta framherjann í frönsku deildinni fara fyrir „slikk“ Antony með fleiri mörk í febrúar en allt Man. United liðið Segir að Amorim þurfi 2-3 félagaskiptaglugga til að laga hópinn Sektaðir fyrir að öskra á Michael Oliver Arnór laus úr prísund Blackburn Biður til Guðs að Arsenal taki titilinn Pep varð fyrst hræddur um Haaland en er nú vongóður Gleymdi að gefa konunni gjöf á Valentínusardaginn Guðlaugur um Rooney: „Hann missti traustið gagnvart mér“ Maddison var að sussa á Roy Keane Ekki unnið heimaleik í 105 daga þangað til Man United kom í heimsókn Enginn lagt upp fleiri mörk en Ederson Hetjan Maddison: Er hérna til að skapa færi og skora mörk Man City fór létt með Liverpool „Staða okkar í töflunni veldur mér áhyggjum“ Dagný og Hlín komu við sögu í sigrum West Ham og Leicester Maddison tryggði langþráðan heimasigur Diaz kom Liverpool í toppmál Armstrong til Man United frá PSG Leeds mun banna stuðningsfólk sem syngur and-palestínska söngva Nistelrooy og Keown grófu stríðsöxina og slógu á létta strengi „Mundum hverjir við erum“ Gott gengi Everton undir stjórn Moyes heldur áfram Sjá meira