Viðskipti erlent
19 20 21 22 23 24 25 26 27 … 334 ›
Úrskurður dómara í deilu Apple og Epic sagður mikið högg fyrir tæknirisann Dómari í máli tölvuleikjaframleiðandans Epic gegn bandaríska tæknirisanum Apple hefur úrskurðað að Apple megi ekki koma í veg fyrir að framleiðendur smáforrita beini notendum að öðrum greiðslugáttum en þeirri sem Apple býður upp á. Fréttamiðlar ytra slá því upp að úrskurðurinn sé mikið högg fyrir Apple. Viðskipti erlent 10.9.2021 21:01
Svíar ætla að hætta að niðurgreiða stóra tengitvinnbíla og dýra rafbíla Sænsk stjórnvöld ætla að herða verulega losunarskilyrði fyrir ívilnunum til kaupa á vistvænni bifreiðum. Hætt verður að niðurgreiða stærri tengitvinnbíla og dýra rafbíla. Viðskipti erlent 9.9.2021 11:21
Saksóknarar lýstu stofnanda Theranos sem gráðugum svikahrappi Réttarhöld yfir Elizabeth Holmes, stofnanda Theranos sem átti að umbylta blóðrannsóknum, hófust í Kaliforníu í gær. Saksóknarar lýstu Holmes þar sem gráðugum svikahrappi en verjendurnir sögðu hana ástríðufullan lítilmagna. Viðskipti erlent 9.9.2021 10:04
Lofaði tæknibyltingu en svarar til saka fyrir svik og pretti Búast má við fjölmiðlasirkus þegar réttarhöld yfir Elizabeth Holmes, stofnanda nýsköpunarfyrirtækisins Theranos, hefjast í Kaliforníu í dag. Holmes boðaði byltingu í tækni við blóðprufur en gæti nú átt yfir höfði sér áralangt fangelsi fyrir stórfelld svik og blekkingar. Viðskipti erlent 8.9.2021 00:02
Allianz til rannsóknar í Þýskalandi og Bandaríkjunum Yfirvöld í Þýskalandi hafa Allianz, eitt stærsta fjármálafyrirtæki landsins til rannsóknar. Rannsóknin snýr að fjárfestingarsjóðum fyrirtækisins í Bandaríkjunum sem margar lögsóknir þar í landi snúa að þessa dagana. Viðskipti erlent 7.9.2021 09:20
Heimsins ódýrasta Michelin-máltíð missir stjörnuna Götubitastaðurinn Hawker Chan í Singapúr nýtur nú ekki þeirrar virðingar að vera Michelin-stjörnu veitingastaður, eftir að nýjasta útáfa Michelin-handbókarinnar fyrir Singapúr var uppfærð í upphafi mánaðarins. Viðskipti erlent 4.9.2021 20:40
Framleiðandi Oxycontins leystur upp og eigandinn greiðir milljarða Skiptaréttur í Bandaríkjunum lagði blessun sína yfir sátt sem lyfjafyrirtækið Purdue Pharma gerði við hóp ríkja og sveitarfélaga. Sáttin felur í sér að Sackler-fjölskyldan sem auðgaðist á ópíóíðafaraldrinum lætur af eignarhaldi sínu og greiðir milljarða til að glíma við faraldurinn. Viðskipti erlent 2.9.2021 10:07
Börnum bannað að spila meira en þrjá tíma í viku í Kína Börn í Kína mega einungis spila netleiki í þrjá tíma á viku. Leikjafyrirtækjum hefur verið gert að ganga úr skugga um að börn geti ekki spilað slíka leiki nema frá klukkan átta til níu að kvöldi á föstudags, laugardags og sunnudagskvöldum. Viðskipti erlent 30.8.2021 13:25
Apple slakar á klónni gagnvart minni hugbúnaðarfyrirtækjum Samkomulag sem tæknirisinn Apple hefur gert við hóp hugbúnaðarfyrirtækja gerir þeim síðarnefndu kleift að rukka viðskiptavini snjallforrita þeirra beint í stað þess að nota greiðslukerfi Apple. Málaferli standa nú yfir þar sem Apple er sakað um samkeppnisbrot vegna viðskiptahátta forritaverslunar fyrirtækisins. Viðskipti erlent 27.8.2021 10:45
Seldi launabónusinn fyrir 95 milljarða króna Tim Cook forstjóri Apple hagnaðist um 750 milljónir dollara eða 95 milljarða króna þegar hann seldi fimm milljónir hluta í fyrirtækinu, sem hann fékk sem launauppbót eftir að hafa verið forstjóri Apple í tíu ár. Viðskipti erlent 27.8.2021 06:38
OnlyFans dregur í land: Klámið áfram leyft Breska vefþjónustan OnlyFans, sem hefur verið hvað þekktust fyrir að miðla klámi, hefur hætt við áform um að banna klám. Fyrr í mánuðinum tilkynnti þjónustan að klámfengið efni yrði bannað á miðlum hennar, þó nekt yrði áfram leyfð. Viðskipti erlent 25.8.2021 14:03
Alitalia gjaldþrota Ítalska flugfélagið Alitalia tilkynnti um gjaldþrot í dag og mun hætta starfsemi þann 15. október. Öllum flugferðum eftir þá dagsetningu verður því aflýst. Viðskipti erlent 25.8.2021 12:46
Airbnb býður afgönsku flóttafólki fría gistingu Heimagistingaþjónustan Airbnb hefur tilkynnt að hún muni taka á móti 20 þúsund afgönskum flóttamönnum gjaldfrjálst til að hjálpa þeim að koma undir sig fótunum um allan heim. Viðskipti erlent 24.8.2021 19:46
Nýttu sér réttindi fyrir 2,1 milljarð Hluthafar Icelandair nýttu sér áskriftarréttindi á nýjum hlutabréfum í félaginu fyrir alls 2,1 milljarð. Viðskipti erlent 23.8.2021 14:07
Guðfaðir sudoku-þrautanna er látinn Japaninn Maki Kaji, sem þekktur var sem „guðfaðir“ sudoku-þrautanna, er látinn. Hann lést í morgun af völdum krabbameins, 69 ára að aldri. Viðskipti erlent 17.8.2021 07:23
Wizz Air bætir við fjórtán flugleiðum til Íslands Ungverska flugfélagið Wizz Air hefur að undanförnu bætt við sig fjórtán flugleiðum til Íslands og gerir ráð fyrir fleiri ferðum hingað en áður, samkvæmt frétt Túrista.is. Viðskipti erlent 16.8.2021 13:31
Maðurinn sem tapaði tuttugu milljörðum dollara á einu bretti bíður átekta Bill Hwang, maðurinn sem stýrði hinum lítt þekkta vogunarsjóði Archegos Capital, sem fór á hausinn með hvelli í vor, bíður nú átekta og leitar svara við spurningunni um hvað fór úrskeiðis. Yfirvöld rannsaka málið auk banka sem töpuðu á viðskiptunum. Hwang virðist þó vera hinn rólegasti, ef marka má umfjöllun Bloomberg. Viðskipti erlent 12.8.2021 07:01
Ganga á bak orða sinna um reikigjöld í Evrópu Tvö fjarskiptafyrirtæki í Bretlandi hafa nú tilkynnt um fyrirætlanir sínar um að ganga á bak orða sinna og rukka viðskiptavini sína um svonefnd reikigjöld þegar þeir ferðast til Evrópu. Breytingin hefur ekki áhrif á íslenska ferðalanga í Bretlandi. Viðskipti erlent 11.8.2021 16:00
Afhjúpa hvernig glæpamenn geta keypt ensk knattspyrnulið til að þvætta illa fengið fé Ef marka má rannsókn rannsóknarblaðamanna Al Jazeera geta glæpamenn keypt enskt knattspyrnulið með það að markmiði að þvætta illa fengið fé. Viðskipti erlent 11.8.2021 14:30
Bein útsending: Samsung kynnir ný tæki Tæknirisinn Samsung kynnir í dag nýjustu snjalltæki fyrirtækisins. Gert er ráð fyrir að nýir samanbrjótanlegir símar muni vera í aðalhlutverkum á viðburðinum sem kallast Unpacked 2021. Viðskipti erlent 11.8.2021 13:30
Hagnaður stærsta olíuframleiðanda heims nærri þrefaldaðist Hagnaður sádiarabíska gas- og olíufyrirtækisins Aramco nærri þrefaldaðist á öðrum ársfjórðungi á sama tíma og eftirspurn eftir olíu tók við sér á heimsvísu. Viðskipti erlent 9.8.2021 13:10
Framleiðandi Marlboro býður yfir milljarð punda í úðalyfjafyrirtæki Tóbaksrisinn Philip Morris hefur hækkað tilboð sitt í lyfjafyrirtækið Vecture eftir að keppinauturinn, Carlyle-fjárfestingasjóðurinn, bauð 958 milljónir punda. Boð Philip Morris hljóðar upp 1,65 pund á hlut, eða yfir einn milljarð punda. Viðskipti erlent 9.8.2021 11:06
Yfirmaður hjá Alibaba sakaður um að nauðga starfsmanni Forsvarsmenn kínverska netsölurisans Alibaba hafa sent frá sér tilkynningu þar sem þeir segjast vinna með lögreglu að rannsókn meintrar nauðgunar eins af yfirmönnum fyrirtækisins. Viðskipti erlent 9.8.2021 07:12
Kynna nýja samloku- og langlokusíma á miðvikudaginn Tæknirisinn Samsung mun kynna nýjustu snjalltæki fyrirtækisins á miðvikudaginn. Það verður gert á Unpacked 2021, árlegri kynningu fyrirtækisins, og er fastlega búist við því að nýjar útgáfur tveggja samanbrjótanlegra síma verði opinberaðar. Viðskipti erlent 8.8.2021 13:25
Gates harmar samskiptin við Epstein Bill Gates, stofnandi Microsoft og einn ríkasti maður heims, harmar að hafa átt samskipti við fjársýslumanninum Jeffrey Epstein. Sagðist hann einungis hafa gert það í von um að Epstein notaði tengsl sín til að afla fjármuna til mannúðarmála. Viðskipti erlent 5.8.2021 08:39
Rihanna orðin milljarðamæringur og þar með ríkasta tónlistarkona í heimi Eignir tónlistarkonunnar og frumkvöðulsins Rihönnu eru metnar á 1,7 milljarða Bandaríkjadala, eða um 212 milljarða íslenskra króna, sem gerir hana efnamestu tónlistarkonuna í heiminum. Tónlistin er þó ekki hennar helsta tekjulind samkvæmt tímaritinu Forbes. Viðskipti erlent 5.8.2021 07:53
Methagnaður hjá Sony Sony hagnaðist um 2,57 milljarða dala á síðasta ársfjórðungi sem er aukning um 26 prósent milli ára og hæsti hagnaður fyrirtækisins á þessum ársfjórðungi. Velgengni fyrirtækisins er að miklu leyti rakin til faralds nýju kórónuveirunnar og útgáfu PlayStation 5 leikjatölvanna. Viðskipti erlent 4.8.2021 13:29
Tölvuleikjum lýst í Kína sem rafrænum fíkniefnum Verðmæti hlutabréfa kínverska fyrirtækisins Tencent hefur lækkað töluvert í kjölfar þess að ríkismiðlar Kína sögðu tölvuleiki vera „andlegt ópíum“ og „rafræn fíkniefni“. Þá hafa yfirvöld í Kína unnið að því að koma böndum á stærstu tæknifyrirtæki landsins á undanförnum mánuðum. Viðskipti erlent 3.8.2021 09:56
Segja Zoom hafa brotið gegn friðhelgi einkalífs notenda sinna Samskiptaforritinu Zoom hefur verið gert að greiða það sem nemur tæpum 10,7 milljörðum íslenskra króna vegna málsóknar sem höfðuð var gegn fyrirtækinu fyrir brot gegn friðhelgi einkalífs notenda. Viðskipti erlent 2.8.2021 14:53
Vesen á Snapchat Töluvert fjöldi notenda samfélagsmiðilsins Snapchat virðist hafa lent í vandræðum með að komast inn í smáforritið í gærkvöldi. Fyrirtækið segist hafa komist fyrir vandann, sem plagar þó suma notendur að einhverju leyti enn. Viðskipti erlent 30.7.2021 08:47