Kippur í krónubréf 15. september 2006 00:01
Talsverður kippur hefur komið í útgáfu krónubréfa á síðustu mánuðum og hafa alls verið gefin út krónubréf fyrir 45 milljarða króna frá því um miðjan júlí. Í gær og í fyrradag bættist enn við útgáfuna þegar KFW, Deutsche Bank og Rabobank gáfu út bréf fyrir alls 11 milljarða til eins til tveggja ára. Heildarútgáfa krónubréfa frá upphafi nemur nú 280 milljörðum króna. Í Morgunkorni Glitnis segir að þetta sé þó ekki lýsandi fyrir heildarstöðu erlendra fjárfesta í krónubréfum. Krónubréf fyrir fjörutíu milljarða króna séu á gjalddaga í mánuðinum en fyrsti gjalddagi krónubréfa er í dag, föstudag, alls fyrir þrjátíu milljarða. Útistandandi krónubréf í lok mánaðarins verða því 240 milljarðar króna verði ekki um frekari útgáfu að ræða í mánuðinum. Útgáfa krónubréfa hefur haft töluverð áhrif á gengi krónunnar. Miklar sveiflur hafa verið á gengi hennar að undanförnu sem að hluta til eru reknar til krónubréfanna. Í gær styrktist krónan um tæp 0,6 prósent. Samkvæmt Morgunkorninu er ólíklegt að það megi að öllu leyti rekja til stýrivaxtahækkunarinnar í gær þar sem við henni var búist. Líklegra sé að þessi mikla útgáfa krónubréfa á sé að knýja styrkinguna áfram.
Viðskipti Mest lesið Síminn þarf að greiða 400 milljónir króna Viðskipti innlent Umdeild viðskipti fá ekki áheyrn Hæstaréttar Viðskipti innlent Hildur ráðin forstjóri Advania Viðskipti innlent Segir allar ásakanir fullkomlega tilhæfulausar Viðskipti innlent Mögulega búið að hakka sig inn á Teams samskiptin þín og fleira Atvinnulíf Gefa út afkomuviðvörun vegna dómsins Viðskipti innlent Strákar og stálp fá styrk Viðskipti innlent Atvinnuleysi eykst Viðskipti innlent Bein útsending: „Landbúnaður er almannahagsmunir“ Viðskipti innlent Ása Steinars vann sigur gegn bandarísku markaðsfyrirtæki Viðskipti erlent Fleiri fréttir Gefa út afkomuviðvörun vegna dómsins Síminn þarf að greiða 400 milljónir króna Segir allar ásakanir fullkomlega tilhæfulausar Bein útsending: „Landbúnaður er almannahagsmunir“ Strákar og stálp fá styrk Umdeild viðskipti fá ekki áheyrn Hæstaréttar Hildur ráðin forstjóri Advania Atvinnuleysi eykst Skipti í brúnni hjá Indó Smári Rúnar ráðinn fjármálastjóri „Það er gjá að myndast á leigumarkaðnum“ Viðar nýr sölustjóri Wisefish Ráðinn framkvæmdastjóri COWI á Íslandi Semja um fjögurra milljarða króna lán Þak styrkja til turnanna tveggja lækkað Efnt til nýrrar loðnuleitar í kapphlaupi við tímann Verður framkvæmdastjóri þróunarsviðs Emblu Medical Gjaldþrota meðhöndlari Auðunn ráðinn viðskiptastjóri Reita Ráðin mannauðs- og gæðastjóri Hörpu „Minnstu loðnuvertíð sögunnar að ljúka“ Hætta við breytta tollflokkun pítsaostsins Tryggja sér lóðir fyrir höfuðstöðvar á rúman milljarð Samkeppniseftirlitið segir samrunann auka samkeppni Landsvirkjun greitt út níutíu milljarða á fjórum árum Halda á miðin þrátt fyrir kvóta „upp í nös á ketti“ Þurfa að taka koffíndrykk á reynslu Stjórnir Samkaupa og Heimkaupa undirrita samrunasamning Örkvóti í loðnu gæti skilað milljarði í útflutningstekjur Afkoma ársins undir væntingum Sjá meira