Allharður árekstur varð í gærkvöld í Njarðvík á mótum Holtsgötu og Gónhóls. Þar rákust saman tvær bifreiðar með þeim afleiðingum að önnur þeirra hafnaði inni í húsgarði og skemmdi þar þriðju bifreiðina í innkeyrslu. Einn var fluttur á sjúkrahús en hlaut ekki alvarlega áverka. Viðkomandi kvartaði þó undan verkjum í hnjám og baki. Bifreiðarnar þrjár voru fluttar af vettvangi með dráttarbíl.
Harður árekstur í Njarðvík í gær
