Orðan var veitt á Bessastöðum við hátíðlega athöfn. Eftirtaldir aðilar fengu orðu.
- Áshildur Haraldsdóttir tónlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi íslenskrar tónlistar
- Einar Kárason rithöfundur, Reykjavík, riddarakross fyrir ritstörf og framlag til íslenskra bókmennta
- Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu löggæslu og félagsmála
- Helgi Seljan fyrrverandi alþingismaður, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á opinberum vettvangi og í þágu bindindis- og velferðarmála
- Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur, Reykjavík, riddarakross fyrir rannsóknir í fiskifræði og hafvísindum
- Högna Sigurðardóttir arkitekt, Frakklandi, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar og alþjóðlegrar húsagerðarlistar
- Pétur Ágústsson framkvæmdastjóri og skipstjóri, Stykkishólmi, riddarakross fyrir frumkvæði í ferðaþjónustu
- Ragnhildur Guðrún Guðmundsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, riddarakross fyrir störf í þágu samfélagshjálpar
- Sigríður Jóna Kristjánsdóttir útskurðarmeistari, Grund II, Flóahreppi, riddarakross fyrir framlag til þjóðlegrar listar
- Sólveig Guðlaugsdóttir, geðhjúkrunarfræðingur á Barna- og unglingageðdeild Landsspítala, riddarakross fyrir framlag til heilbrigðismála og umönnunar ungmenna