„Ég er fyrst og fremst stoltur af strákunum,“ sagði Heimir við blaðamenn. Það hefði verið áfall að tapa í Finnlandi, þar hefðu menn mögulega ætlað að gera annað en lagt væri upp með sem grunnatriði Íslands, en á sama tíma væri engin skömm að því að tapa gegn Finnum.
„Það var vissulega áfall. En það sýnir best karakterinn í strákunum hvað þeir komu sterkir inn í leikinn allir sem einn. Ég og við allir vorum ósáttir við frammistöðuna gegn Finnum.“

Heimir sagði frammistöðu Jóns Daða á æfingum, orka hans og hvernig hann geislaði, hefði verið fyrsta hugsunin. Hann hefði augljóslega verið í byrjunarliðinu undanfarin ár en nú verið tekin út úr því tvo leiki í röð.
„Hann var æstur að sanna sig,“ sagði Heimir. Jón Daði væri góður kostur þegar leikið væri með einn framherja og hans dugnaður og kraftur myndi þvinga varnarlínu Úkraínu aftar. Þannig fengi Gylfi meira pláss.
Sverrir Ingi hefði staðið sig vel þegar hann hefði fengið tækifæri.
„Hans tími er kominn fyrir löngu síðan. Ástæðan fyrir því að hann hefur ekki verið að byrja er að Kári og Ragnar hafa spilað svo vel.“
Sverrir Ingi hefði sagt það sjálfur að hann væri framtíðarleikmaður, hans tími kæmi.
„Það er frábært að hafa þannig liðsmann. Hann hefur á allan hátt staðið sig vel. Ragnar og Kári lentu í erfiðum leik síðast,“ sagði Heimir. Kári hefði verið orðinn bakvörður í þriggja manna varnarlínu undir lokin og leikurinn hefði setið í honum. Kári er aldursforseti liðsins en hann er á 35. aldursári.

„Við ætluðum að byrja kraftmikið en þeir bara byrjuðu betur en við. Þetta fer ekkert allt eins og maður ætlar sér,“ sagði Heimir. Planið hefði verið að falla til baka og nýta svæðið sem myndi skapast fyrir aftan Úkraínumenn með Jón Daða í broddi fylkingar.
„Þeir byrjuðu vissulega betur en við vorum búnir að leikgreina þá vel. Freyr (Alexandersson) skilaði góðu verki,“ sagði Heimir en Freyr greindi þá úkraínsku og fór yfir þeirra leik á maraþonfundi á sunnudag. „Við vorum meðvitaðir um þeirra styrkleika, vissum að þetta yrði ekki leikur margra færa eða marka.“
Þótt hann hafi spilað á gulu spjaldi nánast allan leikinn átti Emil Hallfreðsson einn sinn besta landsleik, sérstaklega í síðari hálfleiknum. Hann lagði upp fyrra mark Íslands og var mikið í boltanum.
Mörkin úr leiknum má sjá hér að neðan.
„Við vissum að þeir væru með vængmenn sem myndu leita inn á miðju,“ sagði Heimir og átti við skærustu stjörnur Úkraínumanna, Yarmalenko og Konoplyanka. Með því að vera með tvo sitjandi miðjumenn hefði tekist að loka vel á leið þeirra inn á miðju.
„Það hefði verið óðs manns æði að vera með einn sitjandi miðjumann,“ sagið Heimir. Allir hefðu séð að ákvörðunin að stilla upp Emil og Aroni saman á miðju, í stað þess að hafa Aron Einar sem aftari miðjumann og Gylfa sem fremri eins og Ísland hefur oftast spilað undanfarin ár, hefði verið hárrétt.

„Ég hef sagt frá fyrsta blaðamannafundi að þessi riðill muni ráðast í lokaleik á lokamínútum,“ sagði Heimir. Hann telur markatölu líklega ekki munu skipta máli þegar uppi verður staðið heldur stigin, þótt ómögulegt sé auðvitað að segja. „Ein mistök, ein smáatriði mun ráða því hvaða lið fer á HM úr þessum riðli,“ sagði Heimir. Hann minnti á að riðill Íslands gæti enn orðið sá þar sem annað sætið gæfi ekki umspil.
„Því liðin eru að taka stig hvert af öðru.“

„Við eigum sérstakt samband. Það er margt sem við segjum þar sem fjölmiðlamenn mega ekki heyra. Ég bað alla um að slökkva á símanum þegar ég talaði. Það er kannski ekki boðlegt í fjölmenni,“ sagði Heimir.
Lars Lagerbäck stýrði Noregi í 6-0 tapi gegn Þjóðverjum á sunnudag. Versta tap þess sænska á ferlinum. Heimir sagðist ekki hafa heyrt í honum eftir tapið.
„Nei, en ég heyrði í honum eftir sigurinn gegn Aserbaídjan. Óskaði honum til hamingju með það,“ sagði Heimir. Þá hefði Lars peppað sig upp eftir tapið gegn Finnum.
Blaðamaður skaut inn í hvort samband þeirra væri farið að snúast eitthvað við. Að Lars væri farinn að leita til Heimis um ráð.
„Nei nei, það hefur ekkert snúist við. Það hefur verið þannig frá upphafi,“ sagði Heimir grafalvarlegur, en skellti svo upp úr. „Við erum góðir vinir og við leitum í hans stuðning.“

Emil Hallfreðsson verður í banni í leiknum gegn Tyrkjum og var Heimir spurður að því hvort hann tæki aukamann í hópinn þess vegna, einum fleiri en vanalega þar sem Emil kæmi svo inn í hópinn í Kósóvóleiknum.
„Ég hugsa að ég fái að taka eins marga og ég vil í þetta ferðalag. Ef við kæmumst á HM yrði það mesta afrek í íslenskri kanttspyrnusögu. Það myndi ekki bara skipta miklu máli fjárhagslega heldur sálfræðilega að hafa komist í lokakeppni HM. Það væri gríðarlega stórt og mikið afrek.“

„Ég held við séum heppnir með þá sem eru í kringum okkur. Teymið fær ekki það hrós sem það á skilið. Hérna erum við með fólk í kringum okkur sem er kannski ekki ráðið inn í þetta starfslið sem er að gera sína hluti í einhverjum aukavinnum fyrir landsliðið. Hér er landsliðsþjáflari kvenna á fullu að leikgreina fyrir landsliðsþjáflara karla. Fræðslustjórinn úti í Albaníu að leikgreina. Við erum mun undirmannaðri en margir aðrir. Ég hvet ykkur til að skoða staffalistann hjá Úkraínu,“ sagði Heimir. „
„Við erum að reyna af okkar besta mætti,“ sagði Heimir og starfsliðið mætti fá meira hrós vegna þess hve miklu liðið hefur áorkað.
„Vitandi það eftir EM að þjóðir taka okkur mun alvarlegar en áður. Stigasöfnunin vekur mikla athygli.“