Sjá einnig: Könnun fréttastofu: Sjálfstæðisflokkurinn með afgerandi forystu
Sterkasti þriggja flokka meirihlutinn sem völ væri á yrði meirihluti Sjálfstæðisflokksins, VG og Samfylkingarinnar. Hann myndi hafa 41 þingmann að baki sér. Þriggja flokka ríkisstjórn krefst aðildar Sjálfstæðisflokksins og annaðhvort VG eða Samfylkingarinnar. Hún verður þó að teljast harla ólíkleg ef marka má orð formanns Samfylkingarinnar, Loga Einarssonar, í Fréttablaðinu í gær. Hins vegar væri hægt að mynda fjögurra flokka stjórn án aðildar Sjálfstæðisflokksins.
Fréttablaðið, Stöð 2 og Vísir hafa gert fjórar mælingar á fylgi flokka í október. Allar benda þær til að Björt framtíð fái ekki kjörinn fulltrúa á Alþingi. Á sama tíma er Samfylkingin að sækja í sig veðrið. Miðað við niðurstöður nýjustu skoðanakönnunarinnar fengi flokkurinn rúmlega 14 prósenta fylgi, en fékk 5,7 prósent í kosningunum í október 2016.

Þingflokkurinn myndi því þrefaldast að stærð.
Einungis eitt dæmi er um það í lýðveldissögunni að stjórnmálaflokkur hafi átt aðild að ríkisstjórn en síðan horfið af Alþingi í næstu kosningum á eftir.
Það er Borgaraflokkurinn, sem Albert Guðmundsson stofnaði eftir að hann gekk úr Sjálfstæðisflokknum.
Borgaraflokkurinn fékk sjö þingmenn kjörna í þingkosningum árið 1987.
Sjá einnig: Logi sér ekki grundvöll fyrir samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn eftir kosningar
Eftir að Albert gerðist sendiherra í París ákvað flokkurinn, undir forystu Júlíusar Sólnes, að taka þátt í ríkisstjórnarsamstarfi Framsóknarflokksins, Alþýðuflokksins og Alþýðubandalagsins og fengu tveir fulltrúar flokksins ráðherrasæti. Flokkurinn bauð fram í þingkosningum árið 1991 en fékk ekki kjörinn mann og var lagður niður nokkrum árum seinna.