Valitor tapaði ríflega 200 milljónum Kristinn Ingi Jónsson skrifar 4. ágúst 2018 08:00 Viðar Þorkelsson, er forstjóri Valitors, en greiðslukortafyrirtækið er í eigu Arion banka. Vísir/Stefán
Greiðslukortafyrirtækið Valitor, sem er í eigu Arion banka, tapaði 204 milljónum króna fyrir skatta á öðrum fjórðungi ársins. Til samanburðar skilaði félagið 1.045 milljóna króna hagnaði á sama tíma í fyrra. Fram kemur í árshlutareikningi Arion banka, sem birtur var á fimmtudag, að rekstrartekjur Valitors hafi numið 1.871 milljón króna á öðrum ársfjórðungi borið saman við 2.779 milljónir króna á öðrum fjórðungi síðasta árs. Þá námu rekstrargjöld kortafyrirtækisins 2.050 milljónum króna á öðrum fjórðungi ársins en þau voru 1.742 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Alls tapaði Valitor 769 milljónum króna fyrir skatta á fyrstu sex mánuðum ársins. Eignir kortafyrirtækisins námu auk þess 45.536 milljónum króna í lok júnímánaðar borið saman við 46.031 milljón á sama tíma á síðasta ári. Heildarskuldir voru 29.900 milljónir í lok júní síðastliðins en þær voru 29.632 milljónir í lok júní í fyrra. Í fimm ára áætlun félagsins er gert ráð fyrir að það skili rekstrarhagnaði innan fáeinna ára. Arion banki hefur sem kunnugt er fengið alþjóðlega ráðgjafa til þess að meta hvernig best sé að haga framtíðareignarhaldi Valitors. Kemur meðal annars til greina af hálfu bankans að selja meirihluta í félaginu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Síminn þarf að greiða 400 milljónir króna Viðskipti innlent Gefa út afkomuviðvörun vegna dómsins Viðskipti innlent Umdeild viðskipti fá ekki áheyrn Hæstaréttar Viðskipti innlent Hildur ráðin forstjóri Advania Viðskipti innlent Segir allar ásakanir fullkomlega tilhæfulausar Viðskipti innlent Mögulega búið að hakka sig inn á Teams samskiptin þín og fleira Atvinnulíf Strákar og stálp fá styrk Viðskipti innlent Atvinnuleysi eykst Viðskipti innlent Bein útsending: „Landbúnaður er almannahagsmunir“ Viðskipti innlent Ása Steinars vann sigur gegn bandarísku markaðsfyrirtæki Viðskipti erlent Fleiri fréttir Gefa út afkomuviðvörun vegna dómsins Síminn þarf að greiða 400 milljónir króna Segir allar ásakanir fullkomlega tilhæfulausar Bein útsending: „Landbúnaður er almannahagsmunir“ Strákar og stálp fá styrk Umdeild viðskipti fá ekki áheyrn Hæstaréttar Hildur ráðin forstjóri Advania Atvinnuleysi eykst Skipti í brúnni hjá Indó Smári Rúnar ráðinn fjármálastjóri „Það er gjá að myndast á leigumarkaðnum“ Viðar nýr sölustjóri Wisefish Ráðinn framkvæmdastjóri COWI á Íslandi Semja um fjögurra milljarða króna lán Þak styrkja til turnanna tveggja lækkað Efnt til nýrrar loðnuleitar í kapphlaupi við tímann Verður framkvæmdastjóri þróunarsviðs Emblu Medical Gjaldþrota meðhöndlari Auðunn ráðinn viðskiptastjóri Reita Ráðin mannauðs- og gæðastjóri Hörpu „Minnstu loðnuvertíð sögunnar að ljúka“ Hætta við breytta tollflokkun pítsaostsins Tryggja sér lóðir fyrir höfuðstöðvar á rúman milljarð Samkeppniseftirlitið segir samrunann auka samkeppni Landsvirkjun greitt út níutíu milljarða á fjórum árum Halda á miðin þrátt fyrir kvóta „upp í nös á ketti“ Þurfa að taka koffíndrykk á reynslu Stjórnir Samkaupa og Heimkaupa undirrita samrunasamning Örkvóti í loðnu gæti skilað milljarði í útflutningstekjur Afkoma ársins undir væntingum Sjá meira