Tólf yfir- og aðstoðaryfirlögregluþjónum hjá embætti ríkislögreglustjóra bjóðast nú betri launakjör en áður eftir að samkomulag þess efnis var gert á milli þeirra og embættisins í ágústmánuði.
Samkomulagið felur í sér að fimmtíu yfirvinnustundir færast inn í föst mánaðarlaun starfsmannanna en með því aukast lífeyrisréttindi þeirra sem greiða iðgjöld í B-deild LSR.
Frá þessu var greint í fréttum RÚV í kvöld þar sem fjallað var ítarlega um málið með vísan til bréfs sem Úlfar Lúðvíksson, formaður Lögreglustjórafélags Íslands og lögreglustjóri á Vesturlandi, sendi til dómsmálaráðuneytisins fyrr í þessum mánuði.
Í bréfinu eru gerðar alvarlegar athugasemdir við hið nýja launafyrirkomulag. Segir Úlfar að með fyrirkomulaginu verði yfir- og aðstoðaryfirlögregluþjónarnir með hærri laun en sjö af níu lögreglustjórum landsins.
Fyrirspurn RÚV til ríkislögreglustjóra um hversu margir af æðstu stjórnendum embættisins hafi tekið boðinu var ekki svarað.
Úlfar segir í bréfi sínu að með nýju launafyrirkomulagi sé öllu snúið á hvolf við launasetningu lögreglumanna. Þá telur hann tímasetningu breytinganna einni skrýtna þar sem kjarasamningar séu lausir en einnig er ráðist í breytingarnar á óvissutímum hjá embætti ríkislögreglustjóra.
Vísar Úlfar þar í að mikill styr hefur staðið um embættið undanfarna mánuði og lýstu til að mynda átta af níu lögreglustjórum landsins yfir vantrausti á Harald Johannessen, ríkislögreglustjóra, í september síðastliðnum.
Í svari ríkislögreglustjóra við fyrirspurn RÚV um málið segir að frumkvæðið að breytingunum hafi komið formanni Félags yfirlögregluþjóna í apríl á grundvelli stofnanasamnings embættisins við Landssamband lögreglumanna því í janúar í fyrra.
