Tilraun var til innbrots í tölvukerfi Reiknistofu bankanna í dag sem leiddi til rofs í þjónustu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá RB og segir að brugðist verið við í samræmi við viðbragðsáætlun.
„Brotist var inn í ysta netlag og eru engar vísbendingar um að komist hafi verið inn í kerfi RB og viðskiptavina.
RB vinnur að úrlausn málsins með helstu sérfræðingum í netöryggismálum og samstarfsaðilum fyrirtækisins. Við úrlausn varð þjónusturof kl. 13:07 sem hafði þær afleiðingar að truflanir eru í starfsemi netbanka og debetkorta. Áfram er unnið að úrlausn málsins og er gert ráð fyrir að kerfin verði orðin virk innan skamms,“ segir í tilkynningunni.
Uppfært 14:04: „Það þjónusturof sem var í gangi hjá RB hefur verið leyst og kerfi eru aftur orðin virk.“ Þetta kemur fram í tilkynningu frá RB.