Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn fara yfir stöðu mála varðandi framgang COVID-19 faraldursins hér á landi.
Gestur fundarins verður Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir, sérfræðingur hjá almannavarnadeild en hún mun kynna Viðvörunarkerfi vegna Covid-19.
Fundurinn verður sem fyrr í beinni útsendingu og textalýsingu á Vísi. Þá verður hann í sjónvarpinu á Stöð 2 Vísi.