Háspenna í Keflavík og Breiðablik kláraði botnliðið Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 1. maí 2021 17:44 Isabella Ósk átti stórleik í liði Breiðabliks. Vísir/Daníel Rétt í þessu kláruðust tveir leikir í Domino's deild kvenna í körfubolta þar sem Keflavík vann sterkan sigur á Fjölni, 87-85 , og Breiðablik hafði betur gegn botnliði KR, 76-65.
Stelpurnar frá Keflavík náði góðum tökum á leiknum gegn Fjölni, en þær leiddu með sjö stigum eftir fyrsta leikhlutann eftir að hafa mest náð tíu stiga forskoti. Fjölnisstelpur söxuðu hægt og bítandi á forskot Keflavíkur og um miðjan þriðja leikhluta var munurinn kominn niður í eitt stig. Keflavík tók þá aftur völdin og jók muninn aftur í tíu stig snemma í fjórða leikhluta. Fjölnisstelpur gerðu hvað þær gátu til að brúa bilið, og voru búnar að minnka muninn í tvö stig þegar rúm hálf mínúta var eftir. Nær komust Fjölniskonur þó ekki og niðurstaðan því 87-85 sigur Keflavíkur. Daniela Wallen átti frábæran leik í liði Keflavíkur, en hún skoraði 28 stig, tók 19 fráköst og gaf fimm stoðsendingar. Botnlið KR náði að stríða Breiðablik stærstan hluta leiksins þegar liðin mættust í Vesturbænum í dag. Breiðablik náði þó yfirhöndinni snemma leiks, en aðeins eitt stig skildi liðin að þegar komið var að fjórða leikhluta. Þá tóku Breiðabliksstelpur öll völd og lönduðu að lokum 11 stiga sigri, 76-65. Isabella Ósk Sigurðardóttir skoraði 22 stig fyrir Breiðablik, ásamt því að taka 14 fráköst.
Dominos-deild kvenna Keflavík ÍF KR Fjölnir Breiðablik Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Lífvörðurinn bannaður: „Leyfið mér að hjálpa Messi“ Fótbolti Tekjur Wrexham í hæstu hæðum Fótbolti „Ég veit bara að þetta er mjög vont“ Fótbolti Tárin streymdu hjá gömlu United-hetjunni Fótbolti 570 milljóna uppsafnað tap hjá Everton Fótbolti KA kaus að losa sig við þjálfarann Handbolti Besta-spáin 2025: Vindur í Skagaseglin Íslenski boltinn Haaland væntanlega úr leik í deildinni Fótbolti Brast ítrekað í grát og neitar öllum ásökunum um ofbeldi Sport „Ætluðum að gera þetta fyrir hana í kvöld“ Körfubolti Fleiri fréttir Reiknar ekki með öðru en Chris Paul taki annað tímabil „Ætluðum að gera þetta fyrir hana í kvöld“ „Frábært að stela heimavellinum“ „Gerðum ekki ráð fyrir einhverri rosalegri flugeldasýningu“ Uppgjörið: Keflavík - Tindastóll 92-63 | Keflvíkingar gáfu engin grið Uppgjörið: Haukar - Grindavík 86-91 | Háspenna og framlenging í upphafi úrslitakeppni Vildu sjá Kjartan Atla og Rúnar lenda í slag eins og í NBA Eldmóður í nýjum þjálfara: „Meira en spenntur“ Pekka Salminen nýr landsliðsþjálfari Sjáðu nýjan þjálfara Íslands kynna sig Hópslagsmál í NBA og sjö hent úr húsi Hafa engar áhyggjur af hugarfari Njarðvíkinga Tryggvi með rifu í vöðva og verður frá næstu vikur Svefnlítill Emil sagði stopp en var stressaður fyrir kveðjustundinni Eini þjálfarinn sem hefur orðið deildarmeistari og dottið strax út „Flotti fíni Garðabær á móti Breiðholtinu“ „Trúi á fyrirgefningu og að fólk eigi að fá annað tækifæri“ Sjáðu fimm bestu tilþrifin og kjóstu Sabonis ekki með Litháen á EM Ráku sigursælasta þjálfarann rétt fyrir úrslitakeppnina Voru fimm stigum undir þegar 12,6 sekúndur voru eftir en unnu samt Þóra og Ægir best en engin verðlaun í Skagafjörð Þau bestu verðlaunuð á lokahófi KKÍ Miðasalan á EM er hafin Martin um EM dráttinn: „Yrðu algjör forréttindi að mæta þeim á vellinum“ „Verður gott að fá meiri frítíma en mun sakna strákanna“ Kjartan Atli: Undirbúningurinn fyrir úrslitakeppnina byrjar strax uppi á hóteli „Er ekki alveg eins gott að byrja á þeim?“ „Heimavöllurinn gefur þér ekki neina sigra“ Baldur: Ég reikna með að hinir leikirnir séu löngu búnir Sjá meira