Fram kemur í tilkynningu frá Hafnarfirði að Björn hafi á sinn einlæga og fallega hátt stimplað sig inn í hug og hjörtu gítaráhugafólks um allan heim og auðgað menningarlíf æskubæjarins Hafnarfjarðar með viðburðum sínum. Jafnframt sé um að ræða einn atkvæðamesta djasstónlistarmann landsins.
Björn byrjaði að læra á gítar ellefu ára og lærði klassískan gítarleik í Tónlistarskóla Sigursveins D. Kristinssonar. Eftir það fór hann í nám við Guitar Institute of Technology í Hollywood og útskrifaðist þaðan árið 1982.
Hann hefur gefið út yfir þrjátíu hljómplötur undir eigin nafni auk fjölda samstarfsverkefna og hefur tónlist hans verið gefin út víða erlendis. Meðal annars hefur Björn samið og útsett tónlist fyrir tríóið Guitar Islancio sem hefur vakið athygli fyrir nýstárlegar útsetningar á þjóðlögum.
Komið víða fram
Björn hefur spilað tónlist sína víða og meðal annars komið fram í Bandaríkjunum, Kanada, Rússlandi, Spáni, Þýskalandi, Englandi og víða á Norðurlöndum, að því er fram kemur í tilkynningu.
Björn hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir störf sín á ferlinum. Árið 2003 var hann útnefndur Jazztónlistarmaður ársins, fyrstur íslenskra gítarleikara, Jazztónskáld ársins árið 2005, og 2011 fékk hann viðurkenningu frá International Association for Jazz Education og hlaut gullmerki Félags íslenskra hljómlistarmanna fyrir framlag sitt til djasstónlistar. Um 40 ár eru liðin frá því að fyrsta sólóplatan hans „Svif“ kom út.
Glætt Hafnarfjörð lífi
„Vorið og listin eiga ýmislegt sameiginlegt; meðal annars bjartsýni, grósku og kraft. Björn Thoroddsen er vor okkar Hafnfirðinga að þessu sinni; fullur af bjartsýni, grósku og krafti og hefur verið í marga áratugi. Björn hefur skilað sér aftur heim á æskuslóðirnar í hjarta Hafnarfjarðar og mun halda áfram að glæða menningarandann hér í Hafnarfirði lífi, tónum og töfrum. Björn er vítamínsprauta og unga fólkinu okkar mikil fyrirmynd bæði í orði og tónum,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, um valið á bæjarlistamanni Hafnarfjarðar árið 2022.
Björn er uppalinn í Hafnarfirði og bauð bæjarbúum heim á tónleika í garðinum í suðurbænum á Björtum dögum sumarið 2021 og mun endurtaka leikinn í sumar.
Tónlistarhátíðin Guitarama sem Björn hefur skipulagt um 15 ára skeið hefur verið haldin í Hafnarfirði undanfarin ár en um er að ræða alþjóðlega tónlistarhátíð þar sem gítarinn er í aðalhlutverki. Guitarama hefur farið víða og borið nöfn borga sem hátíðin hefur verið haldin, þar á meðal Winnipeg, Bergen, Reykjavík, Chicago, Denver og Edmonton en nú er hátíðin komin aftur í Hafnarfjörð.
Eftirfarandi hafa hlotið hafa nafnbótina bæjarlistamaður Hafnarfjarðar
2021 - Friðrik Dór Jónsson, tónlistarmaður
2020 – Bergrún Íris Sævarsdóttir, barnabókahöfundur og teiknari
2019 - Björk Jakobsdóttir, leikkona og leikstjóri
2018 - Björgvin Halldórsson, tónlistarmaður
2017 - Steingrímur Eyfjörð, myndlistarmaður
Ekki voru útnefndir bæjarlistamenn á árunum 2015 til 2016
2014 - Andrés Þór Gunnlaugsson, tónlistarmaður
Ekki voru útnefndir bæjarlistamenn á árunum 2010 til 2013
2009 - Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, söngkona
2008 - Sigurður Sigurjónsson, leikari
2007 - Jónína Guðnadóttir, myndlistarmaður
2006 - Elín Ósk Óskarsdóttir, söngkona
2005 - Sigrún Guðjónsdóttir (Rúna), myndlistarmaður
Við val á bæjarlistamanni Hafnarfjarðar kallar menningar- og ferðamálanefnd eftir tilnefningum bæjarbúa og árlega berst mikill fjöldi þeirra. Bæjarlistamaður fær 1,5 milljónir í viðurkenningarskyni til að vinna áfram að list sinni.