Skoðun

Það er verk að vinna í Hafnar­firði

Guðmundur Árni Stefánsson skrifar

Það þarf margt að laga í Hafnarfirði. Það þarf nýja sýn við stjórn bæjarins, þar sem verikin verða látin tala. Kröftuga uppbyggingu í góðu samráði og samvinnu við bæjarbúa, samtök og atvinnulíf.

Jafnaðarmenn eru tilbúnir í það verkefni að leiða nýjan meirihluta í bæjarstjórn Hafnarfirði. Það er kominn tími til að hvíla Sjálfstæðisflokkinn eftir að hafa stýrt bænum síðustu átta ár. Til að nýr meirihluti taki við stjórn bæjarins með manngildi og réttlæti að leiðarljósi, þarf að kjósa Samfylkinguna í Hafnarfirði 14.maí næstkomandi.

Jafnaðarmenn nálgast það viðfangsefni af alvöru, en með bjartsýni. Okkur er ljóst að það er víða verk að vinna. Mörg mál hafa verið látin reka á reiðanum og of lítið verið sinnt. Eða þá hreinlega illa unnin.

Íbúamálin þarf að taka föstu tökum og tryggj jafnt og traust framboð á lóðum og íbúðum. Það mun aldrei verða undir stjórn jafnaðarmanna að það fækki í bænum eins og gerðist í valdatíð Sjálfstæðisflokksins árið 2020 vegna óstjórnar í málaflokkum. Eins munum við tryggja fjölbreytt val íbúðaforma og þess vegna kalla að verki óhagnaðardrifin félög sem reisi íbúðir á félagslegum grunni, en ekki með hámarksgróða ,heldur á sanngjörnu verði til ungs fólks, meðaltekjufólks, fólks sem höllum fæti stendur og annarra sem þurfa þak yfir höfuðið. Við jafnaðarmenn tryggjum jafna og stöðuga fjölgun íbúða og munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að ná niður íbúðaverði.

Átak í leikskólamálum

Við ætlum að lyfta leikskólanum og hlúa að honum, starfsfólki hans og skapa fleiri skólarými fyrir börnin okkar. Við munum reisa nýja leikskóla. Til að flýta fyrir inntöku barna strax við 12 mánaða aldur, þegar fæðingarorlofi foreldra lýkur, þá munum við kappkosta að bjóða upp á valkosti í ungbarnavistun hjá bænum og eins efla og styrkja dagforeldrakerfið. Það verði brúin yfir í hefðbundna leikskóla, þannig að yngstu börnin fái skjól strax við 12 mánaða aldurinn. Mikils virði er líka ná sátt við starfsfólk leikskólanna og bæta vinnuumhverfi þess. Við vinnum með starfsfólki bæjarins í þeirra þjónustustörfum. Það verður forgangsmál.

Úrræði fyrir fatlaða þarf að taka föstu tökum og tryggja aðgengi þeirra að þjónustu, þar sem manneskjan er í öndvegi. Þar skiptir rétt hugarfar miklu máli hjá þeiim sem veitir þjónustuna og kostar hana.

Allir með

Jafnaðarstefnan er lífsstefna, þar sem samhjálp og samstarf eru lykilatriði. Við segjum líka: öflugt atvinnulíf skapar velferð, en um leið þarf öfluga velferð til að tryggja gott atvinnulíf. Og í samfélagi okkar eiga allir að vera með - enginn skilinn eftir.

Samfylkingin er tilbúin í verkin með Hafnfirðingum. Stöndum saman um það að gera Hafnarfjarðarbæ að fyrirmyndarbæjarfélagi á landsvísu á velflestum sviðum. Við eigum samleið í því verkefni.

XS að sjálfsögðu!

Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar og fyrrum bæjarstjóri í Hafnarfirði.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×