Útlutun leikskólaplássa í Reykjavíkurborg hefst í dag og munu foreldrar sem sóttu um fyrir daginn í dag fá úthlutað í borgarreknum skólum á næstu vikum. Úthlutun lýkur eftir rúman mánuð, þann 17. apríl. Ljóst er að færri komast að en vilja eftir sumarið.
Samkvæmt upplýsingum frá skóla- og frístundasviði borgarinnar mun einn leikskóli ekki taka við nýjum börnum í haust og hafa framkvæmdir töluverð áhrif á innritun í sex aðra skóla. Fjórir leikskólar til viðbótar munu þá tímabundið taka inn færri börn vegna framkvæmda og flutnings á starfsemi. Misjafnlega hafi þá gengið að manna lausar stöður sem hefur einnig áhrif.
Greint var frá því í Morgunblaðinu í gær að leikskólaplássum í Reykjavík hafi fækkað um 680 frá 2014 til 2022 og í 25 af 67 skólum borgarinnar hafi eða gæti þurft að grípa til lokana vegna ástands húsnæðis og framkvæmda.
Í svari skóla- og frístundasviðs segir að fækkun leikskólaplássa milli 2015 og 2020 sé tengd átaki til að bæta starfsaðstöðu þar sem barnagildum á hvern starfsmann var fækkað. Unnið sé af kappi að því að fjölga plássum samkvæmt aðgerðaráætlun en á sama tíma hafi þó staðið yfir metnaðarfullt átak í húsnæðismálum sem hafi til skemmri tíma áhrif á inntöku nýrra barna.
Foreldrar í áfalli eftir fréttirnar
Thelma Björk Wilson, foreldri barns á leikskólaaldri, er í forsvari fyrir hóp foreldra sem segir leikskólamálin í lamasessi.
„Þetta er algjörlega óviðunandi ástand og við foreldrar fengu bara algjört áfall þegar við sáum fréttirnar í gær. Það eru margir að binda vonir við að fá pláss á leikskóla í haust og þegar það kemur í ljós að það er bara alls ekki víst þá blasir við neyð meðal foreldra. Hvað á fólk að gera?,“ spyr Thelma.
Mikið gekk á í leikskólamálum í fyrra líkt og sjá má í annál fréttastofunnar hér fyrir neðan:
Borgarstjórn samþykkti aðgerðaráætlunina Brúum bilið í nóvember 2018 sem miðar að því að fjölga leikskólaplássum og nær til ársloka 2026. Þá er stefnt á að bjóða börnum allt niður í tólf mánaða pláss.
„Það er ekki lítið um loforðin en það vantar algjörlega að sýna fram á einhverja framvindu eða að efna eitthvað af þessum loforðum. Það gerist rosalega fátt hjá borgarstjórninni þegar að þessum málum kemur,“ segir Thelma um yfirlýsingar borgarinnar.
Vilja fá að vita hvernig brúa eigi bilið
Takmörkuð leikskólapláss hafi ekki aðeins áhrif á börnin sjálf heldur einnig foreldra og telur Thelma þetta beinlínis letjandi fyrir ungt fólk í dag. Þau lifi í óvissuástandi sem hefur áhrif á náms- og starfsframvindu og hafi takmarkaða getu til að púsla hlutunum saman.
„Borgarstjórnin þarf bara að geta gefið foreldrum einhver svör, einhver svör um hvernig á að brúa þetta bil eins og þau hafa alltaf verið að tala um. Fæðingarorlofi lýkur við tólf mánuði en núna er meðalinntökualdur barna 20 mánuðir þannig þetta eru átta mánuðir að meðaltali sem að þarf að brúa,“ segir Thelma. „Hvernig eiga foreldrar að fara að í þann tíma?“
Um 350 manns eru í hópnum sem ætla að láta málin sig varða.
„Neyðin er mikil meðal foreldra þannig við erum svona að leggja línurnar núna og ætlum að hittast á fimmtudaginn klukkan níu, þegar það er borgarráðsfundur, með börnin okkar. Koma saman og krefja borgarstjórnina um svör um þessi málefni og svo bara höldum við áfram þangað til eitthvað gerist,“ segir Thelma.
„Við bara hvetjum alla til þess að mæta, þó þau séu ekki með börn, fyrir ömmur og afa, systkini, frændur og frænkur og þá sem vilja stofna fjölskyldur, þá sem vilja sjá eitthvað breytast í þessum málum,“ segir hún enn fremur.