Afbrigðið hefur hlotið heitið XBB.1.16. af heilbrigðisyfirvöldum en einnig hlotið latneska heitið Arcturus sem upprunalega má finna í grísku og þýðir verndari, að því er fram kemur í umfjöllun LA Times. Afbrigðið fannst fyrst í Indlandi en hefur nú greinst í yfir tuttugu löndum.
„Þetta tiltekna afbrigði Ómíkron XBB hefur ekki greinst hér en hins vegar er annað og náskylt undiraafbrigði ómíkron XBB.1.5 ríkjandi hérlendis eins og í mörgum löndum,“ segir Guðrún Aspelund sóttvarnarlæknir í svari við fyrirspurn Vísis.
„XBB.1.16 hefur sérstaklega verið að breiðast út í Indlandi en einnig komið í mörg önnur lönd samkvæmt þeim upplýsingum sem fást frá raðgreiningum og þá má búast við því hingað,“ segir Guðrún.
Frásagnir af fjölgun augnsýkinga á samfélagsmiðlum
Frásagnir af fjölgun augnsýkinga sem hluti af einkennum vegna afbrigðisins hafa farið mikinn á samfélagsmiðlum. Vitnar LA Times meðal annars í Twitter færslu indverska læknisins Vipin M. Vashishtha. Hann segist hafa tekið eftir fjölgun augnsýkinga, þá sérstaklega í ungabörnum sem greinst hafi með afbrigðið.
Guðrún segir í svörum við fyrirspurn Vísis að ekki hafi orðið vart við ný einkenni sem fylgi afbrigðinu, augnsýkingar hafi áður verið og séu enn ein af mögulegum einkennum vegna sýkinga sem valda Covid-19
„Aftur á móti hefur ekki orðið vart við ný einkenni eða verri veikindi vegna þessara fjölmörgu ómíkron afbrigða sem eru í gangi og þar með talið ekki vegna XBB.1.5 eða XBB.1.16,“ segir Guðrún.
„Bólga og roði í auga (tárubólga) er þekkt einkenni vegna Covid-19 (og margra annarra veirusýkinga) þó það sé ekki algengt einkenni og okkur er ekki kunnugt um að það sé algengara með þessu afbrigði frekar en öðrum.“
Smitum af völdum Arcturus hratt fjölgandi
Í umfjöllun LA Times kemur fram að næstmesta fjölda Covid smita í Bandaríkjunum nú megi rekja til Arcturus afbrigðsins, eða 7,2 prósent miðað við upplýsingar frá bandarískum heilbrigðisyfirvöldum.
Í upphafi apríl mánaðar var fjöldi smita af völdum afbrigðisins 2,1 prósent af öllum smitum á meðan hið ríkjandi afbrigði XBB.1.5 ber ábyrgð á 78 prósentum nýrra smita vestanhafs.
„Þetta er afbrigði sem við fylgjumst vel með,“ segir Maria Van Kerkhove hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni í samtali við miðilinn. 1 til 3 prósent smitaðra hafi hingað til fengið einkenni líkt og augnsýkingu vegna Covid-19.