Annar hópurinn kallast á ensku „Freedom of Russia Legion“ og hinn kallast „Russian Volunteer Corps“. Í yfirlýsingu er árásirnar hófust sögðust hóparnir vilja binda enda á einræði í Rússlandi.
Ekki liggur fyrir hve margir menn eru í hópunum, sem eru lítt þekktir, en þeir eru búnir bæði bryn- og skriðdrekum. Eins og bent er á í frétt AP fréttaveitunnar er þetta ekki í fyrsta sinn sem meðlimir þessara vopnahópa gera árásir í Rússlandi. Þetta er þó fyrsta sinn sem slík árás stendur yfir í meira en sólarhring.
Varnarmálaráðuneyti Rússlands hélt því fram á tólfta tímanum í dag að allir óvinir hafi verið reknir frá Belgorod og að um sjötíu óvinir hafi verið felldir. Ráðuneytið birti myndefni sem á að sýna frá átökum milli rússneska hersins og umræddra hópa en þetta var fyrsta yfirlýsing ráðuneytins um ástandið í héraðinu.
Russian MOD now says it has liquidated the invaders of Belgorod, killing more than 70 fighters and using artillery and aviation to do it. It said they were pushed back into Ukrainian territory and finished off there. pic.twitter.com/nYsnDG9swo
— Matthew Luxmoore (@mjluxmoore) May 23, 2023
Ekkert hefur þó verið staðfest enn, en fregnir hafa einnig borist af því að hóparnir hafi tekið fleiri þorp í Belgorod.
Sjá einnig: Segjast hafa tekið rússneskan bæ undir sína stjórn
Vyacheslav Gladkov, ríkisstjóri Belgorod, sagði í morgun að tólf borgarar hefðu særst í átökunum og ein eldri kona hefði látist þegar verið var að flytja hana á brot. Gladkov sagði íbúum sem hafa flúið að snúa ekki aftur strax. Þau yrðu látin vita þegar það yrði öruggt og talaði hann um það þegar „and-hryðjuverkaaðgerðum“ lýkur.
Gladkov sagði einnig í morgun að drónaárásir hefðu verið gerðar í héraðinu og að fólk hefði farist í þeim. Eitt mögulegt skotmark þessara árása var bygging FSB, Leyniþjónustu Rússlands, í Belgorod.
Ekki fundur hjá þjóðaröryggisráðinu
RIA fréttaveitan, sem er í eigu rússneska ríkisins, hafði eftir Dmitrí Peskóv, talsmanni Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, í morgun að verið væri að vinna í því að finna hverjir mennirnir væru og hve margir þeir væru. Þá hefur TASS eftir honum að ekki standi til að boða til fundar hjá þjóðaröryggisráði Rússlands vegna átakanna, til viðbótar við þann sem skipulagður er í lok vikunnar.
Samkvæmt BBC í Rússlandi sagði Peskóv að átökin væru mikið áhyggjuefni. Talsmaðurinn sagði einnig að þetta staðfesti enn og aftur að „úkraínskir vígamenn“ héldu árásum þeirra á Rússland áfram og unnið yrði að því að koma í veg fyrir að slíkt gæti endurtekið sig.
Úkraínumenn segja að þetta séu rússneskir ríkisborgara að berjast í Belgorod og það komi Úkraínu ekki við. Ráðgjafi varnarmálaráðherra Úkraínu vildi ekki svara spurningum BBC í gær um það hver hefði útvegað vopnahópunum vopn og hergögn.
Steve Rosenberg, fréttamaður BBC í Moskvu, fór í morgun yfir það hvað rússnesk dagblöð hafa skrifað um átökin í Belgorod.
What are this morning s Russian newspapers saying about the attack on Belgorod region? #ReadingRussia #Belgorod @BBCNews pic.twitter.com/NmIWMwNU4L
— Steve Rosenberg (@BBCSteveR) May 23, 2023