Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
„Breytingarnar eru hluti af stefnumörkun félagsins um að létta á móðurfélaginu og efla enn frekar sjálfstæði hvers félags innan Festi. Skerpa fókus til aukins vaxtar og tryggja að fjárfestingum félagsins sé stýrt til réttra tækifæra og aukinnar verðmætasköpunar,“ er haft eftir Ástu S. Fjeldsted, forstjóra Festi.
Ýmir Örn Finnbogason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri N1 og tekur við starfinu 1. júní nk. Hinrik Örn Bjarnason, sem starfað hefur innan framkvæmdastjórnar N1 frá 2013 og þar af sem framkvæmdastjóri félagsins frá ársbyrjun 2019, hefur látið af störfum.
„N1 stendur á tímamótum með breyttri neysluhegðun og umbreytingu í orkuskiptum. Við þökkum Hinriki fyrir hans mikilvæga starf í vegferð N1 undanfarin ár um leið og við bjóðum Ými velkominn sem fær það hlutverk að taka enn stærri skref í að mæta þeim umbreytingum sem eru að eiga sér stað á markaðnum. Við hlökkum til þess að fá jafn framsækinn og öflugan mann og Ými í brúna,“ segir Ásta jafnframt.

„Ég er afar spenntur fyrir því að ganga til liðs við N1, fyrirtæki sem stendur frammi fyrir miklum áskorunum og breytingum. Ég er þess fullviss að í þeim liggja fjölmörg tækifæri sem og í auknu samstarfi við önnur félög innan Festi. Ég er þakklátur fyrir traustið og hlakka til að taka þátt í að móta framtíð N1, fyrirtæki með einstaka sögu og gríðarlega sterkan og fjölbreyttan hóp starfsfólks og viðskiptavina“, er haft eftir Ými Erni Finnbogasyni.
Kolbeinn Finnsson, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Festi, lætur nú af störfum. Magnús Kr. Ingason framkvæmdastjóri fjármálasviðs Festi tekur nú við sameinuðu sviði fjármála og rekstar.
Dagný Engilbertsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður stefnumótunar á skrifstofu forstjóra og tekur til starfa í haust.
