Como viðurkennir að leikmaður liðsins hafi kallað Hwang Jackie Chan Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. júlí 2024 08:30 Leikmaður Como líkti Hwang Hee-chan við leikarann Jackie Chan. vísir/getty Ítalska félagið Como gefur ekki mikið fyrir ásakanir Wolves um að leikmaður liðsins, Hwang Hee-chan, hafi orðið fyrir kynþáttafordómum í æfingaleik liðanna í fyrradag.
Eftir leik liðanna á Marbella á Spáni á mánudaginn greindi Gary O'Neil, knattspyrnustjóri Wolves, frá því að Hwang hefði orðið fyrir kynþáttafordómum. Atvikið átti sér stað um miðbik seinni hálfleiks. Í kjölfarið var Daniel Podence, leikmaður Wolves, rekinn af velli fyrir kjaftshögg. Como sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem félagið gerði lítið úr atvikinu. Ítalarnir sögðu Úlfana um að gera úlfalda úr mýflugu en viðurkenndu að leikmaður þeirra hefði kallað Hwang Jackie Chan. Kvikmyndastjarnan er fædd í Hong Kong en Hwang, sem er jafnan kallaður Channy, er frá Suður-Kóreu. „Hunsaðu hann. Hann heldur að hann sé Jackie Chan,“ á varnarmaður Como að hafa sagt við samherja sinn samkvæmt yfirlýsingu félagsins. O'Neil sagðist hafa spurt Hwang hvort hann vildi að leikurinn gegn Como yrði stöðvaður en hann neitaði því. Úlfarnir unnu leikinn, 1-0. Matt Doherty skoraði markið. Como er nýliði ítölsku úrvalsdeildinni. Cesc Fábregas, fyrrverandi leikmaður Arsenal, Barcelona, Chelsea og spænska landsliðsins, er þjálfari liðsins.
Enski boltinn Ítalski boltinn Kynþáttafordómar Mest lesið Nauðgunardómurinn ógildur og Dani Alves er frjáls ferða sinna Sport Jafngildi 20 Þjóðarhalla við Hringbraut svo ein á að geta risið í Laugardal Sport Depay stóð á boltanum og slóst áður en hann lyfti titlinum Fótbolti Víkingar rúlluðu KR-ingum upp Fótbolti Lét dóttur sína hlaupa þrátt fyrir að hún ætti erfitt með að anda Sport Dagskráin í dag: Átta liða úrslit FA bikarsins og margt fleira Sport Markasúpa í Mjólkurbikarnum Fótbolti Sabonis ekki með Litháen á EM Körfubolti Segir að Schumacher sé ófær um að tala: „Staðan er mjög sorgleg“ Formúla 1 Andri Már markahæstur en Ýmir hafði betur í Íslendingaslagnum Handbolti Fleiri fréttir Harry Redknapp kallaði Tuchel þýskan njósnara Gömul ummæli Bartons dregin fram: „Menn sem berja konur eru skíthælar“ Rekinn fyrir að vera í sambandi með leikmanni en vill annað tækifæri Barton dæmdur fyrir að ráðast á eiginkonu sína Sagður hafa samið við Real og fá 2,2 milljarða á ári „Ég veit að hann verður ekki með okkur á næsta tímabili“ Fær að snúa aftur um helgina með sérstaka grímu Kostar tæpar 900 milljónir að skila Sancho til Man. Utd Meiddur í fimmta sinn á tímabilinu Fékk styttra bann síðast en lengra bann núna Púllarinn dregur sig úr hópnum Frekar til í að borga himinháa sekt en að kaupa Sancho Kemur markverðinum sem sparkaði í andlit hans til varnar Fékk rándýran jeppa að gjöf við heimkomu Vildi halda áfram að spila eftir tæklinguna hryllilegu Liverpool-goðsögnin Hansen fékk MBE orðu Á förum frá Man United sem og Englandi að tímabilinu loknu Táningurinn Huijsen orðaður við bæði Real Madríd og Liverpool Fagnaði eins og Fowler og þóttist sniffa línu á vellinum Talar enn við Levy og vill snúa aftur til Spurs Hætta með Nike og nota boltann sem Arteta kvartaði yfir Fullorðnir menn grétu á Ölveri Miðvarðabölvun Rauðu djöflanna Bruno segist gera hlutina á sinn hátt Fyrirliða Forest bætt við enska hópinn Staðráðinn í að spila aftur: „Ég var nálægt því að deyja“ Útskýrði af hverju Burn var dekkaður af mun lægri manni „Vil ekki fara að sofa því mér líður eins og mig sé að dreyma“ Stefán benti á tattúið og minntist frænku sinnar Meiðslin muni að öllum líkindum teygja sig inn í landsleikjapásuna Sjá meira