Skoðun

Á­höfnin sér loksins til lands

Sigurður Páll Jónsson skrifar

Þjóðarskútan hefur verið stjórnlaus núna á áttunda ár og fiskeríið eftir því og aflinn rýr. Sundurlindi yfirmanna í brúnni hefur einkennt siglinguna og kostnaðurinn við veiðarnar alltof mikil sem bitnar mest á kjörum þeirra sem vinna á dekkinu. Þrældómur hinna vinnandi handa hefur ekki skilað sér í vasa þeirra sjálfra heldur til þeirra sem aldrei dífa hendinni í kalt vatn.

Þegar þessi sigling hófst árið 2017 varaði undirritaður og margir fleiri við að til að ná árangri, þarf að standa við það sem áhöfninni var lofað fyrir kosningarnar 2017. Sú lýðræðislega misþyrming sem framin var eftir kosningarnar og er enn núna 2024 um að í brúnna á þjóðarskútunni raðaði sér fólk sem getur ekki komið sér saman um nokkurn skapaðan hlut nema að komast í mjúka stóla sem þola veltinginn í ólgandi sjó, meðan áhöfnin þrælar og púlar á dekkinu til að eiga til hnífs og skeiðar.

En núna hillir undir breytingar og áhöfnin fær tækifæri til að fá nýja yfirmenn í brúnna sem koma sér saman um að vinna áhöfn þjóðarskútunnar til heilla.

Ég hef áður notað samlíkinguna við sjómennsku í ræðum og riti enda sjálfur verið viðloðandi sjómennsku í 40 ár. Einnig hefur þingmennska verið minn vetfangur á síðustu 10 árum.

Veruleikinn til sjós eða á hinu háa alþingi er nefnilega sambærilegur að því leiti að það skiptir öllu máli hverjir eru við stjórnvölinn í brúnni. Stefnuleysi og sundurlindi núverandi ríkisstjórnar hefur svæft þann kraft sem íslensk þjóð býr yfir sem er dugnaður og jákvæðni.

Lýðræðið er ekki sjálfsagt og því þurfum við að halda á lofti. Stjórnmálamenn eiga að hugsa um hag almennings til viðhalds lýðræðinu. Nú fylgumst við með á nýsettu alþingi á kosningavetri þegar ríkistjórnar flokkarnir reyna að slá ryki í augu almennings. Vísbending um algjört afhroð og veruleikafyrringu stjórnvalda má sjá í nýkynntu fjárlagafrumvarpi þar sem fjármálaráðherra væntir mjúkrar lendingar ríkissjóðs með því að loka augunum og halda fyrir eyrun.

Höfundur er varaþingmaður Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×