Hornspyrnur Arsenal gerðu gæfu­muninn gegn United

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jurriën Timber fagnar eftir að hafa komið Arsenal í 1-0 gegn Manchester United.
Jurriën Timber fagnar eftir að hafa komið Arsenal í 1-0 gegn Manchester United. getty/Jacques Feeney

Arsenal vann Manchester United, 2-0, í stórleik 14. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar. Bæði mörkin komu eftir hornspyrnur.

Þetta var fyrsta tap United undir stjórn Rúbens Amorim og fjórða tap liðsins í röð fyrir Arsenal sem er áfram í 3. sæti deildarinnar, nú með 28 stig, sjö stigum minna en topplið Liverpool. United er í 11. sætinu með nítján stig.

Staðan var markalaus í hálfleik en á 54. mínútu kom Jurriën Timber Arsenal yfir með skalla eftir hornspyrnu Declans Rice.

United réði illa við hornspyrnur Arsenal og á 73. mínútu skoruðu Skytturnar aftur eftir horn. Thomas Partey skallaði þá boltann í William Saliba og inn.

Matthjis de Ligt komst næst því að skora fyrir gestina þegar David Raya varði skalla hans á 67. mínútu. Annars ógnuðu Rauðu djöflarnir lítið í leiknum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira