
Heimildarmyndin Kolapse heimsfrumsýnd í RIFF-Heima
Þó að RIFF-hátíðin sé búin að loka dyrum sínum í kvikmyndahúsum er hátíðin enn í gangi á vefnum. Þar má finna íslenska dagskrá til 30. október.
Fréttir af íslenskum og erlendum kvikmyndum og þáttum, bíóbransanum og sjónvarpsframleiðslu.
Þó að RIFF-hátíðin sé búin að loka dyrum sínum í kvikmyndahúsum er hátíðin enn í gangi á vefnum. Þar má finna íslenska dagskrá til 30. október.
Þátturinn Stóra sviðið fer af stað á Stöð 2 í kvöld. Hér er á ferðinni nýr fjölskylduþáttur þar sem skemmtun og afþreying eru í aðalhlutverki. Steinunn Ólína leggur fyrir þá Auðunn Blöndal og Steinda Jr., fyndnar og fjölbreyttar áskoranir.
Sony birti í dag fyrstu stiklu kvikmyndarinnar Uncharted með þeim Tom Holland, Mark Wahlberg, Titu Gabrielle og Antonio Banderas í aðalhlutverkum. Myndin byggir á og ber sama nafn og hin gífurlega vinsæla tölvuleikjasería eftir Naughty Dog.
Kvikmyndin Leynilögga hefur slegið í gegn á kvikmyndahátíðum síðustu mánuði og fengið mikið lof gagnrýnenda erlendis. Eftir mikla eftirvæntingu var myndin frumsýnd í Egilshöll í gær.
Bússi er harðasta löggan í bænum en málin flækjast þó þegar hann fær nýjan samstarfsfélaga, pankynhneigða heimsmanninn Hörð Bess.
Tómas Tómasson, veitingamaður og nýr þingmaður Flokks fólksins, varð fyrir miklum vonbrigðum með nýjustu Bond myndina No Time To Die.
ÚTÓN stendur fyrir Bransaveislu fyrstu vikuna í nóvember. Um er að ræða viðburðarseríu sem unnið hefur verið að með samstarfsaðilum: STEF, Tónlistarborginni Reykjavík, INNI, Listaháskóla Íslands, SÍK, Kvikmyndamiðstöð Íslands, Íslandsstofu og RIFF.
Sigurjón Kjartansson yfirmaður þróunarsviðs hefur sagt upp störfum hjá kvikmyndafyrirtæki Baltasars Kormáks og hyggst starfa sjálfstætt.
Ljóst er að aðdáendur kvikmynda úr smiðju Disney munu þurfa að bíða lengur eftir nokkrum þeim myndum fyrirtækisins sem væntanlegar eru á stóra tjaldið.
Kristín Erla Pétursdóttir, 12 ára aðalleikkona í kvikmyndinni Birtu eftir Braga Þór Hinriksson, var valin besta leikkonan í hópi ungmenna þvert á aldursflokka frá 7-18 ára á Schlingel í Chemnitz í Þýskalandi, einni af stærstu barnakvikmyndahátíð í Evrópu.
Kvikmyndin Dýrið (LAMB) verður framlag Íslands til Óskarsverðlauna 2022. Myndin var valin af dómnefnd Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, en í henni í sátu fulltrúar helstu fagfélaga íslenska kvikmyndaiðnaðarins, auk fulltrúa kvikmyndahúsa, gagnrýnenda og Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.
Ekki einleikið, eða Acting out, er tilraunakennd heimildamynd byggð á ævisögu hinnar mexíkósku Ednu Lupitu, hrífandi persónuleika hennar og starfi á sviði leiklistarþerapíu.
Streymisleitarvélin JustWatch er nú aðgengileg á Íslandi með íslensku viðmóti. Þjónustan á að gera notendum auðveldara að finna þætti og kvikmyndir til að horfa á og er JustWatch með meira en tuttugu milljónir notenda í 57 löndum.
Þrír af helstu sérfræðingum í James Bond á Íslandi kunnu vel að meta No Time to Die, nýjustu myndina um einkaspjæjara hinnar hátignar. Einn hefur hitt Daniel Craig, sem lék Bond í fimmta og síðasta skiptið í myndinni, og ber honum ekki vel söguna.
Eydís Eir Brynju- og Björnsdóttir gaf nýlega út stuttmyndina Chrysalis. Myndin fjallar um Tourette heilkennið og í aðalhlutverki er 13 ára stúlka. Lag eftir margverðlaunaða tónskáldið Hildi Guðnadóttur er notað í myndinni.
Nýjasta James Bond-myndin hefur verið í sýningum í kvikmyndahúsum landsins í tæpa viku.
RIFF kvikmyndahátíðinni er lokið og var endað á sérstakri heiðurssýningu á kvikmyndinni Margrét - Drottning norðursins. Trine Dyrholm leikur Margréti í myndinni og var hún viðstödd.
Kvikmyndin Dýrið hefur verið tilnefnd til European Discovery verðlauna. Verðlaunin sem kallast Prix FIPRESCI eru hluti af Evrópsku kvikmyndaverðlaununum og eru veitt árlega til leikstjóra með sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd.
Þættirnir Squid Game frá Suður-Kóreu eru orðnir vinsælustu þættir Netflix í sögu streymisveitunnar. Þættirnir þykja varpa ljósi á samfélagsleg vandamál í Suður-Kóreu og víðar.
Kvikmyndin Birta eftir Braga Þór Hinriksson er fyrsta leikna barna-og fjölskyldumyndin sem verður frumsýnd hér á landi frá því Víti í Vestmannaeyjum var sýnd árið 2018 við miklar vinsældir, einnig í leikstjórn Braga Þórs.
Ghostface er mættur aftur og þetta sinn er það persónulegt. Svo virðist það allavega vera samkvæmt fyrstu stiklu nýjustu Scream-myndarinnar sem frumsýnd var í dag.
Leikarinn Mark Harmon hefur ákveðið að segja skilið við Leroy Jethro Gibbs, sem hann hefur leikið í rúmar átján þáttaraðir í þáttunum NCIS. Þetta tilkynnti framleiðandi þáttanna langlífu en hélt hann þó möguleikanum opnum á að Gibbs myndi stinga upp kollinum á nýjan leik seinna meir.
Kvikmyndin Dýrið var sýnd í hátt í 600 kvikmyndahúsum í Bandaríkjunum um helgina og þénaði ríflega eina milljón Bandaríkjadali í gegnum miðasölu á fyrstu þremur dögunum í sýningu. Dýrið, eða Lamb eins og hún heitir á alþjóðavísu, er því tekjuhæsta íslenska kvikmyndin sem sýnd hefur verið í Bandaríkjunum.
Kim Kardashian West þykir hafa staðið sig merkilega vel í Saturday Night Live um helgina. Hún var fengin til að stýra þættinum og gerði hún meðal annars stólpagrín að sjálfri sér og fjölskyldu sinni.
Fransk-gríska kvikmyndin Moon, 66 Questions eftir Jacqueline Lentzou hlaut Gyllta lundann, meginverðlaun RIFF, í ár, en hátíðin var haldin í átjánda sinn og hlaut mikla aðsókn.
Kvikmyndagerðarmaðurinn Árni Ólafur Ásgeirsson lést fyrr á þessu ári en hann markaði djúp spor í íslenskt kvikmyndalíf sem listamaður og manneskja. Hans fjórða og hinsta mynd, Wolka, var frumsýnd á RIFF í ár og var hún sýnd í nokkrum sölum í einu vegna fjölda gesta.
Leikstjóri einnar stærstu kvikmyndar sem hefur verið gerð á Norðurlöndum segir að það hafi verið stórkostlegt að vinna með íslenskum leikurum að gerð hennar.
Íslenska kvikmyndin Dýrið. eða Lamb eins og hún heitir erlendis, verður sýnd á 600 tjöldum í Bandaríkjunum í dag. Aldrei áður hefur íslensk kvikmynd fengið jafn mikla almenna dreifingu vestanhafs.
Í dag sýnum við frá bransadögum RIFF í beinni útsendingu frá 16.00 – 17.30 hér á Vísi. Yfir hundrað fagaðilar, blaðamenn og kvikmyndagerðarmenn koma að utan og taka þátt í Bransadögum RIFF í ár en fara fram í Norræna húsinu og standa til 9. október.
“Þessir dómar eru hreint út sagt ótrúlegir og hópurinn gæti ekki verið glaðari. Ég viðurkenni að ég var aðeins stressuð fyrir þessa sýningu, hvort að Bretarnir myndu ná húmornum, en þær áhyggjur voru greinilega óþarfar,” segir Lilja Ósk Snorradóttir framleiðandi myndarinnar Leynilöggu.