

Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.
Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tuttugu og fimm ára gömlum manni sem er grunaður um að hafa veitt öðrum manni alvarlegan áverka með öxi á veitingastað í Hafnarfirði í byrjun mánaðarins.
Ragnar Sigurjónsson, sem framseldur var frá Taílandi vegna fjársvikamáls, segist hafa verið farinn að undirbúa heimför þegar hann var framseldur. Ákæruvaldið krefst þess að Ragnar verði dæmdur í fimm mánaða fangelsi.
Ragnar Sigurjónsson neitaði sök í Héraðsdómi Reykjaness í dag þegar aðalmeðferð hófst í máli ríkisins gegn honum. Ragnari er gefið að sök að hafa svikið á fimmtu milljón króna út úr Nígeríumanni sem stóð í þeirri trú að Ragnar ætlaði að selja honum skreiðarfarm.
Ragnar Sigurjónsson, sem framseldur var frá Taílandi á dögunum, segist ekki hafa verið að flýja réttvísina þegar hann hvarf úr landi og fjársvikamál á hendur honum var fyrir dómstólum. Persónulegar ástæður hafi legið þar að baki. Vitni segir að nígerískur viðskiptafélagi Ragnars hafa marghótað honum lífláti.
Þjóðverji sem ók ölvaður með þeim afleiðingum að bíllinn fót út af og valt við Vatnsskarð var í dag sýknaður af ákæru um manndráp í Héraðsdómi Reykjaness. Félagi mannsins lést í slysinu.
Siðanefnd Háskóla Íslands hefur ákveðið að kæra úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í liðinni viku þess efnis að sýslumanni beri að setja lögbann á umfjöllun siðanefndar um bók Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um Halldór Laxness.
"Hannes er umdeildur maður í þjóðfélaginu og innan Háskólans og telur sjálfur að krossferð hafi verið í gangi gegn honum," sagði Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, í dómsal í gær er málflutningur fór fram í lögbannsmáli Hannesar gegn Siðanefnd Háskóla Íslands.
Karlmaður á þrítugsaldri situr í gæsluvarðhaldi á Akureyri grunaður um að hafa höfuðkúpubrotið annan mann og veitt honum fleiri áverka. Fórnarlambið var lagt inn á gjörgæsludeild.
Stjórnarmaður í eftirmenntunarnefnd rafeindavirkja vísar því alfarið á bug að nefndin eigi að bera halla af því að hafa ekki, sem skyldi, séð um fjárreiður eftirmenntunarsjóðsins og fylgst með verkum fyrrverandi skólastjóra Rafiðnaðarskólans. Hann segist ekki líta svo á að dómur Héraðsdóms frá í gær sé áfellisdómur yfir starfi nefndarinnar.
Fyrrverandi skólastjóri Rafiðnaðarskólans, Jón Árni Rúnarsson, var í dag sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur af ákæru um að hafa dregið sér tæplega 29 milljónir króna á sjö ára tímabili í starfi sínu hjá skólanum. Hann var hins vegar dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skjalafals og fjársvik.
Fyrrverandi skólastjóri Rafiðnaðarskóla Íslands var í dag sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur af því að hafa svikið tæplega 29 milljónir króna frá skólanum. Hann var hins vegar dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa dregið sér 450 þúsund krónur frá Viðskipta- og tölvuskólanum.
Aðalsakborningur í Landssímamálinu ætlar að una dómi sínum en hann var dæmdur til 4 1/2 árs fangelsisvistar. Hinir sakborningarnir þrír hafa allir áfrýjað.
Maður á fimmtugsaldri var sakfelldur fyrir líkamsárás á konu á svipuðum aldri á heimili hennar sl. sumar og dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Dómurinn er skilorðsbundinn í tvö ár.
Héraðsdómur Suðurlands hefur svipt 41 árs gamlan mann ökuréttindum í eitt ár og gert honum að greiða hundrað þúsund krónur fyrir umferðarlagabrot. Fram kemur í dómnum að maðurinn hafi á vegarkafla við Litlu-Kaffistofuna ekið á öfugum vegarhelmingi móti ómerktri lögreglubifreið, þannig að ökumaður hennar varð að aka út fyrir veginn.
23 ára gamall Akureyringur hefur verið dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir líkamsárás og brot gegn valdstjórninni með hótunum um ofbeldi og líflát. Einnig hlaut tveggja mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm 21 árs gamall Akureyringur fyrir þátttöku í árásinni.
Fyrrverandi skólastjóri Rafiðnaðarskóla Íslands er ákærður fyrir að hafa dregið sér tæpar 30 milljónir króna frá skólanum á átta ára tímabili. Hann lýsti yfir sakleysi við aðalmeðferð málsins, sem stendur nú yfir í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Tekið var fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær opinbert mál á hendur Jóni Árna Rúnarssyni, fyrrum skólastjóra Rafiðnaðarskólans í Reykjavík og tengdra skóla. Jóni er gefið að sök að hafa á árunum 1994 til 2001 dregið sér tæpar 29 milljónir króna.
Sautján ára piltur var dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
23 ára gamall maður fékk í gær skilorðsbundinn fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur upp á fimm mánuði fyrir tilraun til að ræna útibú Landsbankans við Gullinbrú í Reykjavík föstudaginn 5. desember sl. Refsing fellur niður að 3 árum liðnum haldi maðurinn almennt skilorð, en honum var jafnframt gert að greiða allan sakarkostnað.
Tvítugur maður var í gær dæmdur í eins árs fangelsi fyrir þjófnað í Héraðsdómi Reykjaness.