

Fótbolti
Allt það helsta sem gerist í fótbolta um víða veröld.

Ráðherra segir ummæli Bartons um konur hættuleg
Íþróttamálaráðherra Bretlands, Stuart Andrew, hefur fordæmt ummæli Joeys Barton um konur sem fjalla um fótbolta.

Mané giftist átján ára kærustu sinni
Senegalski fótboltamaðurinn Sadio Mané, sem leikur með Al-Nassr í Sádi-Arabíu, gekk í það heilaga á sunnudaginn.

Lýsa upp völlinn og birta skilaboð til heiðurs Beckenbauer
Þýska stórveldið Bayern München mun lýsa upp heimavöll sinn, Allianz Arena, næstu daga og senda skilaboð til heiðurs Franz Beckenbauer, sem lést síðastliðinn sunnudag.

Chelsea með bakið upp við vegg eftir tap gegn Middlesbrough
Middlesbrough, sem er í 12. sæti ensku B-deildarinnar, gerði sér lítið fyrir og vann afar óvæntan 1-0 sigur gegn Chelsea í fyrri leik liðanna í undanúrslitum enska deildarbikarsins í kvöld.

Tottenham staðfestir komu Werner
Þýski framherjinn Timo Werner er genginn til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham Hotspur á láni frá RB Leipzig.

Spjaldið dregið til baka og Calvert-Lewin sleppur við bann
Framherjinn Dominic Calvert-Lewin, leikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Everton, er ekki á leið í þriggja leikja bann þrátt fyrir að hafa fengið beint rautt spjald í leik liðsins gegn Crystal Palace í FA-bikarnum í síðustu viku.

Katla María sú þriðja íslenska hjá Örebro
Knattspyrnukonan Katla María Þórðardóttir, sem borið hefur fyrirliðabandið í leikjum U23-landsliðsins á þessu ári, er farin frá Selfossi út í atvinnumennsku og hefur samið við sænska félagið Örebro.

Elfsborg staðfestir kaupin á Eggerti Aroni
Sænska úrvalsdeildarliðið Elfsborg hefur keypt Eggert Aron Guðmundsson, besta unga leikmann Bestu deildarinnar 2023, frá Stjörnunni.

Sveindís skoraði eftir aðeins þrettán mínútur
Íslenska landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir var ekki lengi að komast á blað í sínum fyrsta leik eftir margra mánaða fjarveru vegna meiðsla.

Segist sjá eftir högginu en gæti endaði í þrettán ára fangelsi
Fyrrum forseti tyrkneska félagsins Ankaragücü segist sjá eftir því að hafa slegið niður dómara eftir leik liðsins í desember síðastliðnum en hann hafnar því aftur á móti að hafa hótað dómaranum lífláti.

„Ætlarðu bara að dandalast endalaust í ræktinni?“
Paul Scholes gat ekki stillt sig um að skjóta á annan fyrrverandi leikmann Manchester United, Jesse Lingard, í nýlegri færslu þess síðarnefnda á Instagram.

Loka dyrunum fyrir umboðsmönnum
Norska knattspyrnusambandið hefur miklar áhyggjur af ásókn umboðsmanna í efnilegustu fótboltamenn þjóðarinnar og nú hefur verið tekin ákvörðun um að grípa til aðgerða til að vega á móti þróun síðustu ára.

Liverpool án Trent næstu vikurnar
Enski landsliðsbakvörðurinn Trent Alexander-Arnold er meiddur og verður ekki með Liverpool liðinu á næstunni.

Tottenham nálægt því að kaupa liðsfélaga Alberts
Tottenham og Genoa eru á lokasprettinum í viðræðum sínum um kaup enska úrvalsdeildarliðsins á varnarmanninum Radu Dragusin.

Henry greinir frá glímu við þunglyndi: „Ég grét nánast á hverjum degi“
Thierry Henry, markahæsti leikmaður í sögu Arsenal, greindi frá glímu sinni við þunglyndi í hlaðvarpinu Diary of a CEO. Á meðan kórónuveirufaraldurinn stóð yfir grét hann nánast á hverjum einasta degi.

Keane fannst Ian Wright vera of góður við Höjlund
Manchester United komst áfram í enska bikarnum í gærkvöldi eftir 2-0 sigur á Wigan en danski framherjanum Ramus Höjlund tókst ekki að skora mark þrátt fyrir góð færi.

Martröð City í bikarnum
Englandsmeistarar Manchester City hafa oft haft heppnina með sér þegar dregið er í bikarkeppnunum á Englandi en það er ekki hægt að halda slíku fram eftir dráttinn í fjórðu umferð enska bikarsins.

Þorvaldur býður sig fram til formanns KSÍ
Þorvaldur Örlygsson, fyrrverandi landsliðsmaður í fótbolta, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns KSÍ á ársþingi sambandsins í næsta mánuði.

Foreldrarnir vilja rannsókn vegna andláts Cusack
Enska knattspyrnusambandið hefur verið að safna upplýsingum til að kanna hvort að reglur sambandsins hafi verið brotnar, í tengslum við lát knattspyrnukonunnar Maddy Cusack sem framdi sjálfsvíg á síðasta ári. Foreldrar hennar krefjast rannsóknar.

Vængbrotið Man Utd flaug áfram í bikarnum
Manchester United lagði Wigan Athletic í 3. umferð ensku bikarkeppninnar í kvöld. Lokatölur 2-0 gestunum í vil sem mæta Newport County eða Eastleigh í 4. umferð.

Henderson ekki á leið til Liverpool á nýjan leik ef marka má Klopp
Miðjumaðurinn Jordan Henderson hefur fengið nóg af Sádi-Arabíu aðeins örfáum mánuðum eftir að flytja þangað. Hann er þó ekki á leið í sitt fyrrum félag Liverpool ef marka má orð Jürgen Klopp.

C-deildarlið sló Villareal úr leik sólahring eftir að leikurinn hófst
Unionistas de Salamanca, sem spilar í C-deild spænsku knattspyrnunnar, gerði sér lítið fyrir og sló efstu deildarlið Villareal úr leik í spænska Konungsbikarnum í kvöld. Um var að ræða leik í 32-liða úrslitum sem hófst ótrúlegt en satt í gær.

Segja Eggert Aron búinn í læknisskoðun hjá Elfsborg
Það stefnir allt í að Stjarnan missi einn sinn besta leikmann til Svíþjóðar en Eggert Aron Guðmundsson ku vera á leið frá félaginu.

Mellberg verður ekki næsti landsliðsþjálfari Svíþjóðar
Sænska knattspyrnusambandið hefur staðfest að Olof Mellberg verði ekki næsti þjálfara karlalandsliðsins en það virtist nær staðfest fyrir ekki svo löngu síðan.

Franz Beckenbauer látinn
Franz Beckenbauer, einn besti fótboltamaður allra tíma, er látinn. Hann var 78 ára.

Liverpool lánar Carvalho strax aftur
Fábio Carvalho var ekki lengi hjá Liverpool eftir að þýska félagið RB Leipzig sagði upp lánssamningi sínum.

De Bruyne: Meiðslin mín kannski lán í óláni
Kevin De Bruyne lék aftur með Manchester City um helgina þegar liðið vann stórsigur á Huddersfield Town í enska bikarnum.

Brassar búnir að finna nýjan landsliðsþjálfara
Dorival Júnior hefur verið ráðinn nýr þjálfari brasilíska karlalandsliðsins í fótbolta. Hann tekur við starfinu af Fernando Diniz sem var rekinn á föstudaginn.

Bellingham hlýjaði boltastrák
Jude Bellingham sýndi á sér mjúku hliðina þegar hann hjálpaði boltastrák í bikarsigri Real Madrid á Arandina um helgina.

Líkir Alexander-Arnold við Gerrard
Martin Keown var afar hrifinn af frammistöðu Trents Alexander-Arnold á miðjunni þegar Liverpool vann Arsenal í ensku bikarkeppninni í gær og líkti honum við sjálfan Steven Gerrard.