Icelandair
7 8 9 10 11 12 13 14 15 … 50 ›
Icelandair flýgur til Færeyja Icelandair tilkynnti Færeyjar sem nýjan áfangastað í dag. Flogið verður fimm til sex sinnum í viku með morgunflugi út október á næsta ári. Viðskipti innlent 8.6.2023 12:52
Farþegum fjölgaði um sextán prósent milli ára Heildarfjöldi farþega Icelandair var um 366 þúsund í maí, sextán prósent fleiri en í maí í fyrra þegar farþegar voru 316 þúsund. Sætaframboð í maí jókst um ellefu prósent miðað við fyrra ár. Viðskipti innlent 6.6.2023 17:47
Icelandair hefur samstarf við Turkish Airlines Icelandair og Turkish Airlines undirrituðu í morgun samstarfssamning sem felst í því flugfélögin munu geta boðið viðskiptavinum sínum tengingar á milli leiðakerfa sinna og þannig aukið úrval tengimöguleika. Viðskipti innlent 4.6.2023 11:32
Flugsýning einn af stærstu menningarviðburðum borgarinnar Þúsundir manna sóttu flugsýningu á Reykjavíkurflugvelli í dag þar sem sjá mátti þverskurð íslenska fluggeirans, allt frá litlum drónum upp í stórar farþegaþotur. Margir tóku andköf þegar djarfir listflugmenn veltu sér um háloftin. Innlent 3.6.2023 22:18
Fluttu stigabíl frá Keflavík fyrir Airbus-þotu í Reykjavík Sérstakur stigabíll fyrir stórar flugvélar var fluttur til Reykjavíkur frá Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi. Flytja þurfti hann á trukki þar sem hann er ekki á númerum. Ástæðan fyrir þessum óvenjulega flutningi er sú að á Reykjavíkurflugvelli er aðeins til einn nægilega stór stigi og talin var þörf á tveimur stórum stigum vegna flugsýningarinnar sem þar fer fram í dag, laugardag. Innlent 2.6.2023 22:52
Boða til stærstu flugsýningar ársins á Reykjavíkurflugvelli „Stærsta flugsýning ársins“ segir Flugmálafélag Íslands í kynningu flugsýningar sem haldin verður á Reykjavíkurflugvelli á morgun, laugardag, 3. júní. Hátt á áttunda tug flugvéla og flygilda verða til sýnis og hátt á þriðja tug flugatriða þar sem lögð verður áhersla á að sýna breidd og drifkraft íslensks flugsamfélags, að sögn Matthíasar Sveinbjörnssonar, forseta Flugmálafélagsins. Innlent 1.6.2023 23:40
Breytt neyslumynstur gæti dempað áhrif verðbólgu á ferðamennsku Breytingar á neyslumynstur fólks eftir heimsfaraldurinn gæti mögulega dregið úr þeim neikvæðu áhrifum sem mikil verðbólga mun hafa á eftirspurn í flugiðnaðinum, að sögn Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair. Rekstrarafkoma íslensku flugfélaganna á fyrsta ársfjórðungi var sýnu verst í samanburði við nærri sextíu flugfélög á heimsvísu. Innherji 31.5.2023 11:54
Bjóða upp á flug milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar Icelandair ætlar að bjóða upp á flug á milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar í tengslum við millilandaflug sitt frá 15. október til 30. nóvember. Flogið verður þrisvar í viku. Viðskipti innlent 25.5.2023 14:21
„Þetta er óvanalegt en þetta er Ísland“ Flugumferð fór úr skorðum í dag vegna hvassviðris en gular viðvaranir eru í gildi á nær öllu landinu. Öllu innanlandsflugi var aflýst og þrettán brottförum frá Keflavík. Ekki var hægt að nota landganga á Keflavíkurflugvelli vegna vindhraða og þeim flugferðum sem ekki var aflýst var frestað fram á kvöld. Innlent 23.5.2023 19:30
Aflýsa flugi en björgunarsveitir ekki farið í útköll Fjöldi flugferða á Keflavíkurflugvelli hefur verið aflýst vegna óveðurs. Björgunarsveitir hafa ekki farið í nein útköll sem stendur. Innlent 23.5.2023 16:58
Þurfa að aflýsa einhverju flugi vegna hvassviðrisins Lægðin sem gengur nú yfir landið mun hafa áhrif á flugáætlun Icelandair seinni partinn í dag. Bæði þarf að seinka einhverjum brottförum og þá þarf í einhverjum tilfellum að aflýsa flugi. Innlent 23.5.2023 13:20
Veðrið riðlar flugumferð á Keflavíkurflugvelli Einu flugi hefur verið flýtt vegna veðursins sem spáð er á morgun. Farþegar eru hvattir til þess að fylgjast vel með spám og tilkynningum flugfélaganna. Innlent 22.5.2023 16:38
Skammaðist sín fyrir að vera Íslendingur Hundrað og sjötíu farþegar sátu fastir á flugvellinum í Glasgow í hátt í fjörutíu tíma, á meðan þeir biðu þess að komast um borð í vél til Íslands. Vélin lenti á Keflavíkurflugvelli upp úr klukkan tvö í nótt. Ástæða seinkunarinnar var bilun í vélinni. Þegar varahlutur barst reyndist hann síðan ónothæfur. Einn farþega segist hafa skammast sín fyrir að vera Íslendingur. Neytendur 20.5.2023 23:21
Lentu loksins í Keflavík eftir næstum 40 tíma seinkun Flugvél Icelandair með farþegum innanborðs sem setið höfðu fastir í næstum fjörutíu klukkustundir á flugvellinum í Glasgow tók loks á loft í kringum miðnætti að íslenskum tíma í gærkvöldi og var lent á Keflavíkurflugvelli upp úr tvö í nótt. Innlent 20.5.2023 11:13
„Skelfileg upplifun“ farþega eftir 38 klukkutíma seinkun Farþegar sem setið hafa fastir á flugvelli í Glasgow í Skotlandi vegna tafa hjá Icelandair segja ástandið óþolandi. 170 manns áttu að fljúga með vélinni, sem bilaði, og loks þegar varahlutur barst reyndist hann ónothæfur. Innlent 19.5.2023 22:32
Fyrsta flugið til Detroit Fyrsta áætlunarflug Icelandair til bandarísku borgarinnar Detroit fór í loftið á fimmta tímanum í dag. Félagið stefnir á að fljúga fjórum sinnum í viku til borgarinnar. Viðskipti innlent 18.5.2023 17:18
Mikilvægt að ESB viðurkenni sérstöðu Íslands í flugsamgöngum Forstjóri Icelandair segir það mikilvægt að forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins hafi viðurkennt sérstöðu Íslands í tengslum við breytingar á losunarheimildum til flugfélaga í gær. Verði ekki tekið tillit til sjónarmiða Íslands gæti verðmunur á flugferðum frá landinu hlaupið á fleiri þúsundum króna. Viðskipti innlent 17.5.2023 09:04
Icelandair „álitlegt arðgreiðslufélag“ og metið langt yfir markaðsgengi Verðmatsgengi Icelandair samkvæmt greiningu Jakobsson Capital stendur í 3,07 krónum á hlut og er ríflega 60 prósentum hærra en markaðsgengi hlutabréfa flugfélagsins í dag. Flugfélag hefur breyst í „mjög álitlegt arðgreiðslufélag“ miðað við núverandi markaðsgengi. Innherji 12.5.2023 14:49
Starfsfólk getur átt von á að vera sent í tilviljanarkenndar skimanir Formaður ADHD samtakana gagnrýnir að ADHD-lyf séu bönnuð meðal flugliða Icelandair og segir það fornaldarhugsunarhátt. Málið hafi áhrif á fjölda fólks sem nú þurfi að velja á milli starfs síns eða nauðsynlegra lyfja. Starfsfólk getur átt von á að vera sent í tilviljanarkenndar skimanir. Innlent 12.5.2023 13:25
Flugáhöfnum bannað að nota ADHD-lyf Icelandair tilkynnti áhöfnum sínum að notkun á ADHD-lyfjum sé alfarið bönnuð í dag. Þeir starfsmenn sem eru á slíkum lyfjum þurfa að fá flughæfi sitt metið hjá lækni. Tímafrekt getur verið að vera metinn hæfur aftur eftir notkun lyfjanna. Innlent 11.5.2023 22:24
Sænsk flugvélaleiga kaupir fjörutíu rafmagnsflugvélar Sænska flugvélaleigan Rockton hefur samið um kaup á allt að fjörutíu rafmagnsflugvélum af gerðinni ES-30 frá sænska flugvélaframleiðandanum Heart Aerospace. Með samningnum breytti Rocton fyrri viljayfirlýsingu í skuldbindandi kaupsamning um tuttugu flugvélar og um kauprétt á tuttugu flugvélum til viðbótar. Viðskipti erlent 10.5.2023 13:31
Metsætanýting hjá Icelandair í apríl Metsætanýting var hjá Icelandair í apríl en heildarfjöldi farþega var um 296 þúsund og um 22 prósent fleiri en í sama mánuði í fyrra þegar farþegar voru 242 þúsund. Sætaframboð í apríl jókst um 17 prósent miðað við fyrra ár. Viðskipti innlent 8.5.2023 20:29
Ellý Ármanns komin á flugfreyjulestina Ellý Ármannsdóttir, listakona og hóptímakennari hjá Reebok Fitness, mun starfa sem flugfreyja hjá Icelandair í sumar. Þetta herma heimildir fréttastofu. Lífið 5.5.2023 14:30
Sextíu prósent fleiri farþegar en á sama tíma í fyrra Rekstrartekjur Icelandair námu 33,3 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi 2023. Jukust þær um 47 prósent milli ára. Félagið tapaði sjö milljörðum króna á ársfjórðungnum en veðurtengdar raskanir höfðu neikvæð áhrif á afkomuna. Viðskipti innlent 27.4.2023 18:32
Bætir við einni Dash 8-400 og notar í Evrópuflugi á ný Icelandair bætir við einni 76 sæta Dash 8 Q400-flugvél í flotann fyrir sumarið. Jafnframt hyggst félagið á ný nota þessa flugvélartegund á nokkrum Evrópuleiðum fyrri hluta sumars en þó einungis tímabundið. Viðskipti innlent 26.4.2023 15:36
Nýja Airbus A321-þotan flugprófuð í fimbulkulda Hin nýja langdræga Airbus A321XLR-þota gengst um þessar mundir undir viðamiklar flugprófanir og var hún á dögunum reynd í fimbulkulda. Prófanirnar fóru fram á Iqaluit-flugvellinum við Frobisher-flóa í Norður-Kanada þar sem Airbus segir að frostið hafi farið niður í allt að -40 gráður. Erlent 20.4.2023 09:29
Ný þota gefur færi á beinu flugi til Mexíkó og Indlands Tækifæri Íslendinga til að komast í beint flug til fjarlægari áfangastaða gætu stóraukist með kaupum Icelandair á langdrægum Airbus-þotum. Kalifornía, Mexíkó, Texas og jafnvel Suður-Ameríka en einnig Indland og Norður-Afríka gætu þannig bæst í leiðakerfið. Viðskipti innlent 17.4.2023 20:50
Alger sprenging í framboði íslensku flugfélaganna Sjaldan eða aldrei hefur verið hægt að fljúga til fleiri áfangastaða frá Íslandi og á komandi sumri. Bæði íslensku flugfélögin hafa bætt við sig áfangastöðum en auk þeirra fljúga tuttugu og fjögur erlend flugfélög til Keflavíkur í sumar. Innlent 9.4.2023 19:57
„Við erum að ná vopnum okkar aftur“ Icelandair og Airbus hafa undirritað viljayfirlýsingu um kaup á þrettán flugvélum og kauprétt að tólf flugvélum umfram það. Ljóst er að um gríðarlegar upphæðir er að ræða og segir fjármálastjóri fyrirtækisins að félagið sé að ná vopnum sínum á ný eftir erfiða tíma. Innlent 7.4.2023 21:08
Fjölda flugferða seinkað vegna veðurs Seinkanir verða á flugferðum til og frá Evrópu í dag vegna veðurs. Þær munu hafa keðjuverkandi áhrif á flugferðir til Bandaríkjanna í nótt og frá Bandaríkjunum í fyrramálið segir upplýsingafulltrúi Icelandair. Innlent 7.4.2023 14:20