
Landspítalinn

Fyrsta skóflustungan að nýrri viðbyggingu við Grensásdeild Landspítala
Heilbrigðisráðherra tók í dag fyrstu skóflustunguna að nýrri viðbyggingu við Grensásdeild Landspítala. Stefnt er að því að stækkun Grensásdeildar verði tekin í notkun árið 2027.

Fyrsta skóflustungan tekin við Grensás
Heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson, tók í dag fyrstu skóflustunguna að nýrri viðbyggingu við Grensásdeild Landspítala. Deildin er endurhæfingardeild Landspítala en þangað koma sjúklingar til endurhæfingar eftir að hafa lokið meðferð á öðrum deildum spítalans.

Fækkar úr 124 í 49 á biðlista BUGL
Alls bíða nú 49 börn eftir þjónustu Barna- og unglingageðdeildar Landspítalans en þau voru 124 í janúar. Biðlistinn hefur ekki verið jafn stuttur frá árinu 2006.

Inniliggjandi með covid fjölgar hratt
Töluvert álag er á Landspítalanum vegna covid-veikinda og fjöldi þeirra sem eru inniliggjandi með veiruna hefur þrefaldast á stuttum tíma. Sóttvarnalæknir hvetur fólk sem er með einkenni til þess að taka tillit til þeirra sem eru í áhættuhópum.

„Ég var lengi bakari en skellti mér síðan í öryrkjann“
„Í tæpt ár fór ég þrisvar sinnum í viku í 4,5 klukkustundir í senn í nýrnavélina. Sem dældi blóðinu úr mér í gervinýra, sem síðan dældi blóðinu aftur inn í líkamann minn. Síðan var maður slappur á eftir,“ segir Gunnar Þór Guðmundsson nýrnaþegi.

Covid að koma inn sem auka sumarveirupest
Smitsjúkdómalæknir segir mikla aukningu Covid-smita hafa orðið í byrjun mánaðar. Hugsanlegt sé að Covid komi nú, auk Rhinoveirunnar, til með að ganga allan ársins hring.

„Það hefur fennt yfir, en sárið er ekki gróið“
Gunnar Alexander Ólafsson, aðstandandi konu sem lést eftir röð mistaka á Landspítala árið 2013, segist hafa ákveðið að halda erindi um málið til þess að unnt verði að draga lærdóm af því og að slíkt muni ekki endurtaka sig.

Ótækt að börn bíði í tvö ár eftir nauðsynlegri þjónustu
Umboðsmaður barna segir of mörg börn á bið eftir nauðsynlegri þjónustu, og það of lengi. Áætlanir stjórnvalda um snemmtæka íhlutun geti ekki staðist ef ekki er úr bætt.

Herminám í heilbrigðisvísindum - spennandi tímar framundan!
Á Íslandi er hermikennsla í heilbrigðisvísindum ört vaxandi kennsluform, hvorttveggja fyrir nemendur, sem og við endur- og símenntun heilbrigðisstarfsfólks. Víða um heim er hermikennsla órjúfanlegur þáttur í kennslu í heilbrigðisvísindum og ítrekað hefur verið bent á margþættan ávinning hennar, umfram hefðbundnari kennsluaðferðir.

Sigurður Ingi kominn með nýja mjöðm
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra missti aldrei þessu vant af réttunum í ár þar sem hann er fastagestur. Ástæðan er sú að hann gekkst undir mjaðmaskiptaaðgerð í liðinni viku.

Greindur með lítt þekktan sjúkdóm á ferðalagi: „Það bjargaði lífi mínu að fara til Íslands“
Bandarískur fyrrverandi leyniþjónustumaður sem fékk greiningu á óútskýrðum veikindum sínum eftir heimsókn á Landspítalann segir það hafa bjargað lífi sínu að koma til Íslands. Tengsl íslensks gigtarlæknis við sérfræðing sem lýsti sjúkdómnum fyrst leiddu meðal annars til greiningarinnar.

„Aldraðir eru bara ég og þú eftir tuttugu eða þrjátíu ár“
Yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítalanum segir flöskuhálsinn víða þegar kemur að heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða. Það skorti á heildarsýn og að gert sé ráð fyrir mikilli fjölgun aldraðra og veikinda þeirra. Sama hvort þau eru líkamleg eða andleg.

Hámarksaldur heilbrigðisstarfsfólks hækkar í 75 ár
Á síðasta löggjafarþingi var frumvarp heilbrigðisráðherra um hækkun hámarksaldurs heilbrigðisstarfsfólks upp í 75 ár samþykkt. Frumvarpið tekur gildi þann 1. janúar 2024.

Þriðji sem lætur lífið af völdum CJS á Íslandi
Kona á miðjum aldri lést á síðasta ári skömmu eftir að hafa greinst með hinn sjaldgæfa Creutzfeldt-Jakob sjúkdóm. Sjúkdómurinn hafði tvisvar áður greinst hér á landi og létust báðir einstaklingar stuttu eftir greiningu vegna sjúkdómsins.

„Er það ósk allra að heilbrigðisstarfsfólk fari í gegnum svona ferli?“
Ásta Kristín Andrésdóttir, meðstjórnandi Heilsuhags, vill vekja fólk til umhugsunar um það hve flókin atvik geta verið sem upp koma á spítala og að yfirleitt sé aldrei neinum einum um að kenna. Hún kallar eftir breytingum á verkferlum lögreglu í slíkum málum og vill að hlutlaus nefnd fari yfir slík mál áður en lögregla taki þau til rannsóknar.

Alvarleg atvik í heilbrigðisþjónustu hafa víðtækar afleiðingar
Ég skrifa þennan pistil því ég er opin með tilfinningar mína, reynslu og pælingar. Ég veit að sumir hafa gott af því að lesa þetta. Því það er í alvöru til gott líf eftir svona rússíbanaferð.

„Hann á ekki að þurfa að upplifa óöryggi, vanvirðingu og kvalir“
Aðstandandi krabbameinssjúklings á níræðisaldri fordæmir þá meðferð sem hann hefur fengið á Landspítalanum og segist vera niðurbrotin og svefnlaus af áhyggjum.

Landspítali, ertu að grínast?
Pabbi minn, tæplega 83 ára gamall hefur legið inni á Krabbameinsdeild Landspítalans í nokkrar vikur. Hann er með beinkrabbamein á 4. stigi sem byrjaði í blöðruhálskirtli eins og algengt er.

Hundrað sinnum á bráðamóttökuna vegna sýkinga á einu ári
Dæmi eru um að einn einstaklingur hafi leitað 100 hundrað sinnum á bráðamóttökuna vegna sýkinga í kjölfar neyslu vímuefna í æð. Hjúkrunarfræðingur á smitsjúkdómadeild segir fleiri leita þangað og neyta vímuefna í ótryggum aðstæðum eftir að neyslurýminu Ylju var lokað.

Lögregla rannsakar mannslát á Landspítalanum
Lögreglurannsókn er hafin á andláti á Landspítalanum fyrr í þessum mánuði. Andlátið var tilkynnt til embættis landlæknis og lögreglu samkvæmt reglum spítalans.

Fimm hjá hinu opinbera með hærri tekjur en forsetinn
Forstjóri Landspítala raðar sér efst á lista yfir tekjuhæstu embættismenn, forstjóra og starfsmenn hins opinbera. Runólfur Pálsson var með 4,5 milljónir króna á mánuði að jafnaði í tekjur á síðasta ári, miðað við greitt útsvar en næstur er Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar með 4,1 milljón króna á mánuði.

Eini réttarmeinafræðingur landsins fræðir rithöfunda um dauðann
Hvernig lítur líkami út sem hefur verið geymdur ofan í ferðatösku í þrjú ár? Vaxa neglur eftir dauðann? Hvað tekur langan tíma fyrir lík að verða að beinagrind? Allt eru þetta spurningar sem Pétur Guðmann Guðmannsson hefur fengið. Og hann kippir sér lítið upp við það.

Covid gerir sjúklingum og starfsfólki enn lífið leitt
Covid heldur áfram að gera starfsfólki Landspítalans og sjúklingum lífið leitt að sögn formanns farsóttanefndar Landspítalans. Ekki er lengur haldið bókhald yfir fjölda Covid smita á spítalanum en faraldur er á fimm til sex legudeildum.

Of algengt að fólk með geðrænan vanda falli á milli kerfa
Framkvæmdastjóri Geðhjálpar segir áríðandi að koma í veg fyrir að fólk með mikinn geðrænan vanda falli á milli kerfa. Hann segir mál ungrar konu með taugaþroskaröskun sem fjallað var um í kvöldfréttum í gær endurspegla vandann vel.

Vaknaði við hlið látins sambýlismanns: Klórar sig ítrekað til blóðs en fær enga hjálp
Ung kona með taugaþroskaröskun mætir lokuðum dyrum í heilbrigðiskerfinu en hún hefur stundað sjálfsskaða síðan hún vaknaði við sambýlismann sinn látinn. Vinkona hennar hefur reynt, án árangurs, að koma henni í innlögn

„Ef ekkert verður gert þá deyr einhver“
Foreldrar þroskaskerts ungs manns með mikinn fíknivanda gagnrýna úrræðaleysi fyrir ungt fólk með tvíþættan vanda. Syni þeirra var vísað af geðdeild vegna hegðunarvanda en ekki er langt síðan hann reyndi að fyrirfara sér. Foreldrar hans óttast hvað gerist næst.

Ólafur í ársleyfi til að huga að framtíð læknisþjónustu á Íslandi
Dr. Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala, hefur fengið ársleyfi frá stjórnunarstörfum á spítalanum til að leið verkefnið „Framtíð læknisþjónustu á Íslandi“. Það var Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra sem fól Ólafi hlutverkið.

Óvenjumikið álag vegna umgangspesta og veirusýkinga
Afar erilsamt hefur verið á bráðamóttöku Landspítalans í sumar og á bilinu 170 til 240 manns sótt móttökuna á hverjum degi. Álagið má meðal annars rekja til fjölda ferðamanna á landinu en einnig ýmissa umgangspesta.

Lyfið geti seinkað framþróun Alzheimer um þriðjung
Öldrunarlæknir segir nýtt líftæknilyf við Alzheimer vendipunkt. Það muni ekki allir geta fengið lyfið til að byrja sem þurfi á því að halda en lyfið getur seinkað framþróun sjúkdómsins um þriðjung.

Gæti verið sakfelld fyrir manndráp af gáleysi
Til greina kemur að Steina Árnadóttir, hjúkrunarfræðingurinn sem ákærð er fyrir að hafa valdið dauða sjúklings á geðdeild Landspítalans, verði sakfelld fyrir manndráp af gáleysi fyrir Landsrétti.