
Fangelsismál

Ísland langt á eftir þegar kemur að börnum fanga
Umboðsmaður barna segir ljóst að börn sem eiga foreldra í fangelsum séu gleymdur hópur og ráðast þurfi í úrbætur til að bæta þeirra stöðu. Niðurstöður nýrra rannsókna benda til að Ísland sé langt á eftir hinum Norðurlöndunum í málaflokknum.

AA og Afstaða í fangelsum
Allt frá stofnun Afstöðu árið 2005 hefur eitt af höfuðmarkmiðum félagsins verið að hvetja fanga til þess að taka þátt í starfi AA-samtakanna. Upp úr aldamótum voru ekki margir sem nýttu sér úrræðið og horfðum við forsvarsmenn Afstöðu upp á hvern AA-fund á fætur öðrum þar sem enginn fangi mætti.

Fangar fá námsráðgjöf í upphafi annar og vikulega fjarráðgjöf
Til stendur að taka upp nýtt fyrirkomulag námsráðgjafar á Kvíabryggju í byrjun annar. Markmiðið er að nýta það fjármagn sem Fjölbrautaskólinn á Suðurlandi fær frá ríkinu betur. Þetta segir Olga Lísa Garðarsdóttir, skólameistari FSU í samtali við Fréttablaðið.

Lét höggin dynja á fangavörðum og fanga
Maður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir þrjár líkamsárásir sem áttu sér stað í fangelsinu á Hólmsheiði, tvær gegn fangavörðum og eina gegn samfanga sínum.

Segir skólameistara FSu hafa lokað á nám fanga án samráðs
Formaður Afstöðu, félags fanga, segir skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurlands hafa upp á sitt einsdæmi ákveðið að loka á nám fanga við skólann. Það hafi hann gert með því að skrúfa fyrir fjármagn til námsráðgjafa sem lagt hefur leið sína á Kvíabryggju til að aðstoða fanga við nám.

Öryggisvistun vegna alvarlegra líkamsárása á fangaverði og samfanga
Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið gert að sæta áframhaldandi öryggisvistun vegna tveggja alvarlegra líkamsárása sem áttu sér stað í fangelsinu á Hólmsheiði í janúar síðastliðnum.

Annar hver fangi með ADHD
Rannsóknir nýs geðheilbrigðisteymis fangelsa landsins benda til þess að um helmingur fanga sé með taugaþroskaröskunina ADHD.

Mannskemmandi fyrir fólk að vera dregið aftur í myrkrið
Formaður Afstöðu kallar eftir breyttri löggjöf um reynslulausn á Íslandi. Fangar sem fá þyngri dóma fá sjaldan sem aldrei reynslulausn hér ólíkt því sem tíðkast á Norðurlöndum.

Stefnir íslenska ríkinu fyrir frelsissviptingu: „Þetta var helvíti“
Kona sem svipt var réttinum á að afplána utan fangelsis undir rafrænu eftirliti og kölluð aftur í fangelsi árið 2018 segir síðustu tvö ár afplánunar hafa verið helvíti. Hún hefur stefnt íslenska ríkinu fyrir það sem hún kallar ólögmæta frelsissviptingu. Á sakaskrá konunnar er eitt stærsta fíkniefnamál síðari tíma á Íslandi.

Skortur á úrræðum og engin lausn að senda veikt fólk í fangelsi
Formaður Afstöðu, félags fanga, segir engin úrræði standa fólki með geðræn vandamál til boða inni í fangelsiskerfinu. Svokallaðar tifandi tímasprengjur finnist víða í þjóðfélaginu. Ísland sé áratugum á eftir í málaflokknum en stjórnvöld skorti vilja til að taka á vandamálinu.

Enginn undir 18 ára afplánað í hefðbundnu fangelsi í fimm ár
Enginn einstaklingur undir 18 ára aldri hefur þurft að afplána óskilorðsbundna fangelsisrefsingu í hefðbundnu fangelsi síðastliðin fimm ár. Frá 1. janúar 2017 hefur einungis einn dómur varðandi einstakling undir 18 ára aldri borist Fangelsismálastofnun.

Áður voru þetta lurkar sem völdust í fangavörsluna
Ímynd fangavarða hefur breyst í gegnum tíðina að sögn Guðmundar Gíslasonar skólastjóra Fangavarðaskóla ríkisins en hann kveður nú eftir rúma fjóra áratugi sem forstöðumaður.

Ósakhæfur = eilífðar fangelsi?
Þegar einstaklingur telst ekki ábyrgur gjörða sinna er hann talinn ósakhæfur. Oftar en ekki eru ósakhæfir einstaklingar andlega veikir, en undir ósakhæfi falla einnig einstaklingar með greindarskerðingar eða fötlun.

Trúleysingjar æfir yfir styrk ráðherra til Þjóðkirkjunnar
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, veitti nýverið Þjóðkirkjunni styrk að upphæð 10 milljónir króna til þess að geta boðið aðstandendum fanga upp á þjónustu, stuðning og ráðgjöf. Styrkveitingin féll í grýttan jarðveg hjá samtökum trúleysingja.

Rifjar upp flótta Matthíasar Mána af Litla-Hrauni: „Vorum smeyk að eitthvað hefði komið fyrir hann“
Einn best skipulagði flótti úr fangelsi hér á landi var þegar Matthíasi Mána Erlingssyni tókst að flýja úr fangelsinu á Litla-Hrauni í desember 2012. Fyrrverandi forstöðumaður á Litla-Hrauni segir starfsmenn hafa haft miklar áhyggjur af Matthíasi á meðan hans var leitað, enda var hann einn á ferli í uppsveitum Árnessýslu um miðjan desember.

Tískuglæpur: Fangaverðir óhressir með saumaskap fanganna
Spænskir fangaverðir eru afar ósáttir við nýja endurhæfingaráætlun sem ætlað er að veita föngum atvinnureynslu áður en þeir halda út í samfélagið. Áætlunin felur í sér að fangarnir sauma einkennisbúninga fangavarðanna og útkoman þykir ekki auka á glæsileika fangavarðanna.

Páll skorar á strokufangann að gefa sig fram
Páll Winkel forstjóri Fangelsismálastofnunar og sálfræðingar stofnunar hafa þungar áhyggjur af því hverjar afleiðingar stroks ungs fanga geti orðið og biðla til hans að gefa sig fram.

Samfella í stuðningi við fanga með þroskahömlun og á einhverfurófinu
Erlendar rannsóknir sýna svart á hvítu að fólk með þroskahömlun og/eða á einhverfurófi sem dæmt er til fangelsisvistar hefur mjög mikla þörf fyrir viðeigandi stuðning og vernd meðan á fangelsisvist stendur og eftir að það hefur lokið afplánun.

Fyrri áfallasaga rauður þráður hjá föngum
Alvarleg áföll sem leiddu til vímuefnavanda og neyslutengdra afbrota er rauður þráður í reynslu íslenskra kvenfanga samkvæmt nýrri íslenskri rannsókn. Geðhjúkrunarfræðingur segir það koma heim og saman við sambærilegar rannsóknir erlendis.

Vissi að lögreglan fylgdist með honum vegna dularfulls leka
Maður sem grunaður er um skipulagða glæpastarfsemi segir vinnubrögð lögreglu í máli sínu yfirdrifin og til skammar. Alvarlegur gagnaleki úr lögreglu síðasta sumar kom sér vel fyrir manninn, sem á langan brotaferil að baki.

Ríkið sýknað af tugmilljóna kröfu Barkar
Landsréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um sýknu íslenska ríkisins af tugmilljóna króna skaðbótakröfu Barkar Birgissonar. Börkur krafðist bóta vegna vistunar á öryggisgangi á Litla-Hrauni í eitt og hálft ár.

Fangavarðaskólinn í fjarnámi – 26 nemendur í skólanum
Tuttugu og sex nemendur eru nú í Fangavarðaskólanum þar sem um þriðjungur þeirra eru konur. Námið fer fram í fjarnámi, auk einnar viku í staðarlotu í verklegum æfingum í samstarfi við þjálfara Lögregluskólans. Fangavörður segir starfið glettilega skemmtilegt og gefandi.

Tuttugu fangaverði vantar til starfa
Fangaverðir hafa verulegar áhyggjur af öryggi sínu í fangelsum landsins vegna viðvarandi undirmönnunar. Á Kvíabryggju er til dæmis aðeins einn fangavörður á næturvöktum með 22 fanga og á Hólmsheiði eru þrír fangaverðir á næturvöktum með 50 fanga.

Skora á stjórnvöld að líta upp úr minnisblöðum sóttvarnarlæknis
Forsvarsmenn Afstöðu, félags fanga á Íslandi, skora á stjórnvöld að líta upp úr minnisblöðum sóttvarnarlæknis og skoða stöðuna víðar í samfélaginu. Félagið tekur undir áhyggjur Fangavarðafélags Íslands um að ástandið í fangelsum landsins þarfnist umbóta.

Ófremdarástand í fangelsunum landsins og fangaverðir óttast um líf sitt og limi
Fangavarðafélag Íslands hefur sent áskorun til þeirra sem annast málaflokkinn þar sem á er bent að ástandið sé með þeim hætti að ekki verði við búið. Undirmönnun sem leiðir til kulnunar og veikindi hefur verið viðvarandi.

Segja aðgerðir í fangelsum ekki í takt við aðgerðir annarsstaðar
Stjórn Afstöðu, félags fanga á Íslandi, skorar á fangelsisyfirvöld til að hleypa föngum sem eru komnir á reynslulausnartíma úr haldi. Stjórnin segir að á sama tíma og verið sé að ræða um afléttingar sóttvarnartakmarkana hér á landi sé sama sjónarmið ekki gildandi innan veggja fangelsa Íslands.

Fangar afar ósáttir við einangrun en hópsmit er komið upp á Litla Hrauni
Komið er upp hópsmit í fangelsinu að Litla Hrauni. Fangar eru afar ósáttir við þær sóttvarnaaðgerðir sem verið er að grípa til og sætta sig illa við einangrun.

Fangaverðir með beinbrot og höfuðáverka eftir alvarlega líkamsárás
Tveir fangaverðir í fangelsinu á Hólmsheiði urðu fyrir alvarlegri líkamsárás um síðustu helgi þegar fangi réðst að þeim.

Pressa á Bandaríkjaforseta að loka Guantanamo Bay
Mannréttindasamtökin Amnesty International hvetja Bandaríkjaforseta til að standa við loforð um að loka fangelsinu Guantanamo Bay, sem staðsett er á herstöð Bandaríkjahers á Kúbu.

Starfsmenn ráðuneytisins ekki með 0,5 prómill í blóðinu alla daga
Kaup Fangelsismálastofnunar á tóbaki sem selt er áfram til fanga skýrir þá háu upphæð sem greint var frá í gær að hefði farið frá dómsmálaráðuneytinu í kaup á áfengi og tóbak á síðasta ári. Tæpar 25 milljónir fóru í kaup á tóbaki fyrir fangelsin en tóbaksnotkun fanga fer minnkandi milli ára. Dómsmálaráðuneytið sjálft keypti áfengi fyrir 163 þúsund krónur á síðasta ári.