
Spánn

Sambandsslit stjörnupars skekja tónlistarheiminn
Tónlistarkonan Rosalía og reggaeton-söngvarinn Rauw Alejandro hafa slitið trúlofun sinni og eru hætt saman eftir þriggja ára samband. Fregnirnar eru áfall fyrir heim latíntónlistar enda eru þau bæði risastjörnur innan hans.

Hver á lottómiða og 750 milljónir króna?
Tveir bræður á Norðvestur-Spáni eru sakaðir um að hafa stolið lottómiða sem á hafði fallið fyrsti vinningur að andvirði 750 milljónum króna í spænska lottóinu. Saksóknari krefst sex ára fangelsis yfir bræðrunum.

Allt í hnút í spænskum stjórnmálum
Engin ríkisstjórn er enn í kortunum á Spáni. Sá flokkur sem vann stærsta kosningasigurinn í þingkosningunum um síðustu helgi á þó litla sem enga möguleika á að mynda ríkisstjórn. Og það stjórnarmynstur sem helst blasir við sósíalistum gæti orðið flokknum dýrkeypt.

Vill finna fórnarlömb fingralangra flugvallarstarfsmanna
Harpa Rós Júlíusdóttir hefur undanfarið reynt að koma upplýsingum til lögreglunnar á Tenerife frá Íslendingum sem hafa lent í því að munum sé stolið úr töskum þeirra á flugvellinum. Nú hefur hún fengið afhentan lista yfir hundruð muna sem lögreglan hefur haldlagt og leitar logandi ljósi að eigendum þeirra.

Stjórnarkreppa að loknum kosningum á Spáni
Stjórnarkreppa blasir við á Spáni eftir að hvorugri blokkinni til hægri og vinstri í spænskum stjórnmálum tókst að vinna hreinan meirihluta á spænska þinginu í kosningum sem fram fóru í gær.

Atkvæði hafa verið talin: Pattstaða á Spáni og hugsanleg stjórnarkreppa
Enginn flokkur getur hrósað sigri í spænsku þingkosningunum í dag. Þetta varð ljóst eftir að talningu atkvæða lauk nú á ellefta tímanum á íslenskum tíma. Hægri flokkurinn, Lýðflokkurinn er stærsti flokkurinn þegar öll atkvæði hafa verið talin, en Sósíalistaflokkurinn kemur í humátt á eftir.

Sumarkosningar í fyrsta sinn: Spánverjar kjósa til þings í dag
Spánverjar ganga að kjörborðinu í dag í þingkosningum sem fara fram í gríðarlegum hita, en þetta er í fyrsta sinn sem kosið er að sumri til á Spáni.

Æsispennandi kosningabarátta á Spáni
Spánverjar ganga að kjörborðinu á morgun í steikjandi hita. Þingkosningarnar hafa sjaldan eða aldrei verið jafn spennandi og ógjörningur að spá fyrir um hvort vinstri samsteypustjórnin haldi velli eða hvort við völdum taki ríkisstjórn hægri flokkanna.

Hitinn óbærilegur á gönguleiðinni hjá Sturlu
Íslendingur sem gengur vinsæla gönguleið þvert yfir Spán segir hitann í dag hafa verið óbærilegan en hitabylgja gengur nú yfir stóran hluta Evrópu. Göngufólk á leiðinni leggi mun fyrr af stað til að forðast versta hitann, en sumir hafi þrátt fyrir það helst úr lestinni.

Varað við nýjum hitametum á Ítalíu, Grikklandi, Spáni og Marokkó
Íbúar á Ítalíu, Grikklandi, Spáni og Marokkó hafa verið varaðir við því að ný hitamet gætu fallið á morgun, þegar hiti gæti farið yfir 49 stig. Hitabylgjan Karon fylgir nú í kjölfar Kerberusar, sem olli gríðarlegum hita á svæðinu í síðustu viku.

Rauðar viðvaranir og skógareldar í Suður-Evrópu
Ekkert lát virðist ætla að verða á hitabylgjum sem ganga nú yfir Suður-Evrópu. Á Ítalíu, Spáni og Grikklandi er hitanum lýst sem óbærilegum og íbúar hafa þurft að flýja heimili sín vegna skógarelda.

Fimm hundruð flýja vegna skógarelda á Kanaríeyju
Meira en fimm hundruð manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna skógarelda á Kanaríeyjunni La Palma.

Hitnar í kolunum hjá Shakiru og Jimmy Butler
Svo virðist sem að söngkonan kólumbíska Shakira og körfuboltastjarnan bandaríska Jimmy Butler séu að slá sér upp saman.

Fundu lík barns í fjöru
Líkamsleifar ungs barns fundust í fjöru við Miðjarðarhafið í morgun. Talið er að barnið hafi verið tveggja til þriggja ára en líkamsleifarnar eru taldar hafa verið í nokkurn tíma í sjónum.

Bátur með rúmlega 200 innanborðs týndur við Kanaríeyjar
Spænskt björgunarlið leitar nú að bát undan ströndum Kanaríeyja en talið er að 200 flóttamenn hið minnsta séu um borð.

Þrír prestar sakaðir um að nauðga konu reglulega í rúmlega þrjátíu ár
Kona á sextugsaldri á spænsku eyjunni Mallorca hefur sakað þrjá presta um að hafa nauðgað sér reglulega í meira en 30 ár. Faðir hennar beitti hana kynferðislegu ofbeldi frá barnæsku.

Banna teiknimyndina um Bósa Ljósár
Nýr meirihluti hægri flokkanna á Spáni hefur bannað sýningu myndarinnar um Bósa ljósár í litlum bæ á Norður-Spáni. Í myndinni sjást tvær konur kyssast eitt augnablik.

Hægri flokkar með forskot en sósíalistar sækja á
Tveir stærstu hægri flokkarnir á Spáni eru með forskot á vinstri flokkana þegar rúmar tvær vikur eru til þingkosninga. Sósíalistaflokkur Pedro Sánchez forsætisráðherra heldur þó áfram að saxa á forskot Lýðflokksins.

Leiðtogi katalónskra aðskilnaðarsinna sviptur friðhelgi
Almenni dómstóll Evrópusambandsins svipti Carles Pugdemont, fyrrverandi forseta héraðsstjórnar Katalóníu, friðhelgi sem Evrópuþingmaður í dag. Ákvörðunin þýðir að Puigdemont gæti verið framseldur til Spánar þar sem hann sætir ákæru.

Háskólagráður til sölu
Lögreglan á Spáni hefur handtekið um 20 manns sem stunduðu skipulega sölu á fölsuðum prófskírteinum úr háskólum víðsvegar um heiminn.

Vueling glataði töskunni: „Greiðslan er fáránlega lág“
Samgöngustofa hefur úrskurðað að farþegar flugfélagsins Vueling hafi ekki geta sýnt fram á að verðmæti glataðrar ferðatösku hafi verið rúmar 800 þúsund krónur. Spænska lággjaldaflugfélagið hefur boðið 75 þúsund.

Ferðamönnum fjölgar hratt á Spáni að nýju
Spánverjar reikna með að ferðamönnum fjölgi um 15% í sumar miðað við árið í fyrra. Þar með hefur spænsk ferðaþjónusta náð vopnum sínum að fullu síðan í Covid-faraldrinum og gott betur.

Vinstri stjórn Spánar heldur velli samkvæmt skoðanakönnunum
Nýjar skoðanakannanir benda til þess að ríkisstjórn sósíalista haldi velli í þingkosningunum eftir mánuð. Fyrir viku bentu skoðanakannanir til hins gagnstæða.

Á annað þúsund kynferðisglæpamanna hefur fengið dóma sína mildaða
1.120 kynferðisglæpamenn á Spáni hafa fengið refsingu sína mildaða og 114 kynferðisglæpamönnum hefur sleppt áður en þeir luku afplánun vegna mistaka í nýrri lagasetningu sem var ætlað að auka öryggi og réttarstöðu fórnarlamba kynferðisofbeldis.

Kosning ógilt af því bæjarstjórinn fór í bíltúr með kjörkassann
Bæjarstjóri á Spáni fór í bíltúr með kjörkassann þegar sveitarstjórnarkosningarnar fóru fram í lok síðasta mánaðar. Hann segist bara hafa verið að aðstoða farlama konu að nýta sér kosningarétt sinn. Endurtaka þarf kosningarnar í bænum.

Shakira fer úr boltanum í formúluna
Kólumbíska stjarnan Shakira virðist vera búin að finna sér nýjan elskhuga ef marka má myndir sem náðust af henni með breska ökuþórnum Lewis Hamilton í Madríd. Í síðasta mánuði sást parið einnig saman á snekkju í Miami.

Mikil hægrisveifla knýr fram þingkosningar á Spáni
Allt stefnir í gríðarlega harða og snarpa kosningabaráttu fyrir þingkosningar á Spáni í næsta mánuði. Talsverðar líkur eru á að öfgahægriflokkurinn VOX komist í ríkisstjórn í fyrsta sinn.

Hundruð fórnarlamba kaþólskra presta á Spáni
Rannsókn kaþólsku kirkjunnar á Spáni á misnotkun presta og annarra þjóna kirkjunnar á börnum hefur afhjúpað 728 meinta gerendur og 927 fórnarlömb frá fimmta áratug síðustu aldar. Meira en helmingur meintra gerenda voru prestar en flest brotin áttu sér stað á sjöunda, áttunda og níunda áratugnum.

Spænskt þorp afgreiddi kosningar á hálfri mínútu
Sveitarstjórnarkosningar standa nú yfir á Spáni. Sjö íbúar þorpsins Villaroya bættu eigið met í dag með því að klára kosningarnar á 29 sekúndum og 52 sekúndubrotum.

Björguðu 250 kg manni út af heimili sínu
Slökkviliðið í Barcelona þurfti að hjálpa 250 kílóa manni að komast út úr íbúð sinni í vikunni. Maðurinn hafði ekki farið út úr íbúðinni sinni síðan fyrir Covid-faraldurinn.