Björgunarsveitir

Vélarrýmið fylltist af gufu
Vélarrúm björgunarskipsins Hannesar Þ. Hafstein fylltist af gufu þegar kælirör sprakk í æfingasiglingu út frá Sandgerði. Ekkert björgunarskip verður til taks í Sandgerði á næstunni.

Kajakræðari féll útbyrðis við Hrísey
Björgunarsveitir í Eyjafirði voru boðaðar út á hæsta forgang rétt upp úr klukkan 14 í dag vegna kajakræðara sem fallið hafði útbyrðis af bát sínum austan við Hrísey.

Æfðu viðbragð við flugslysi á Bíldudal
Flugslysaæfing fór fram á Bíldudalsflugvelli í morgun. Samkvæmt Landsbjörgu fór allt vel fram og náðust öll markmiðin sem voru sett.

Íslenskar björgunarsveitir fengu viðurkenningu frá Erdogan
Tyrkir héldu í dag athöfn til að þakka erlendum og tyrkneskum björgunarsveitum sem sinntu björgunarstarfsemi í kjölfar jarðskjálftanna sem riðu yfir í Tyrklandi sjötta febrúar. Fulltrúi íslenskra björgunarsveita var meðal þeirra sem tóku við heiðursorðu frá Tyrklandsforseta á athöfninni.

Unglingsdrengur í sjálfheldu úti á Laugarvatni
Björgunarsveitin Ingunn bjargaði fjórtán ára dreng í fyrr í kvöld sem var í sjálfheldu úti á Laugarvatni. Hann var á lítilli bátkænu, áralaus og bátinn rak hratt undan vindi út á vatnið.

Rútan enn í ánni
Rútan, sem valt út í á skammt frá Vindheimamelum í Skagafirði um hálf þrjú í dag, liggur enn í ánni. Sex farþegar voru fluttir á slysadeild á Akureyri en hlúð var að öllum í húsi flugbjörgunarsveitar í Varmahlíð.

Sex fluttir á slysadeild eftir að rúta valt út í á
Sex voru fluttir á slysadeild eftir að rúta valt út í á við skammt frá Vindheimamelum í Skagafirði um hálf þrjú í dag. Alls voru fimmtán manns í rútunni, þrettán farþegar ásamt bílstjóra og leiðsögumanns.

Allar björgunarsveitir höfuðborgarsvæðisins kallaðar út vegna hvassviðris
Allar björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu hafa verið kallaðar út vegna gríðarlegs fjölda tilkynninga um foktjón. Meðal þeirra verkefna björgunarsveita, sem eru orðin hundrað talsins, er hjólhýsi sem fauk á hliðina í Kórahverfinu. Flugvél Play neyddist til að lenda á Akureyri þar sem ekki tókst að lenda henni í Keflavík.

Sálfélagslegur stuðningur í þjónustumiðstöð í Neskaupstað
Almannavarnir hafa opnað þjónustumiðstöð í Neskaupstað sem á að aðstoða við hinar ýmsu áskoranir sem fólk á svæðinu glímir við eftir snjóflóð síðustu viku. Búið er að hrinda af stað söfnun fyrir þá sem sjá fram á mikinn kostnað vegna flóðanna.

Rýmingu aflétt
Rýmingu á reitum 4 og 16 í Neskaupstað verður aflétt klukkan 16 í dag. Þar með hefur rýmingu í öllum bænum vegna snjóflóðahættu verið aflétt.

Björgunarsveitir halda heim
Það björgunarfólk sem ferðaðist til Austfjarða í vikunni til að aðstoða heimafólk mun ferðast aftur til sín heima í dag. Björgunarfólk frá öllu landinu tóku þátt í aðgerðum þar vegna snjóflóða sem féllu í vikunni.

Víðtækar lokanir þjóðvega í strandbyggðum Austfjarða
Appelsínugul viðvörun er enn í gildi á Austfjörðum og er áfram talin mikil hætta á snjóflóðum og krapaflóðum. Almannavarnir hafa í dag gripið til frekari rýminga í Neskaupstað og á Eskifirði. Þá hafa hús einnig verið rýmd í Mjóafirði, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði, auk Seyðisfjarðar.

Tvöhundruð manns viðbúin að hefja björgun ef kallið kemur
Almannavarnir hafa enn aukið viðbúnað sinn á Austfjörðum vegna mjög slæmrar veðurspár næsta sólarhring og mikillar hættu á snjóflóðum. Hættuástand er áfram í gildi á Seyðisfirði, Eskifirði og í Neskaupstað.

Senda liðsauka austur áður en veðrið skellur á
Tuttugu björgunarsveitarmenn verða sendir með flugi til Austfjarða í dag til viðbótar við þá tugi sem þar eru þegar að störfum. Snjóflóðahætta á svæðinu hefur aukist með versnandi veðurspá. Mikil snjókoma er í kortunum í kvöld og úrkomuviðvörun á svæðinu orðin appelsínugul.

Aðstoðuðu um fimmtíu manns við Pétursey í nótt
Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt þar sem fjöldi fólks hafði fest bíla sína á þjóðvegi 1 við Pétursey. Ófærð var þá orðin mikil á svæðinu.

Tveimur fjallgöngumönnum bjargað á Hamragarðaheiði
Tveir lentu í hremmingum í nótt þar sem þeir voru að klífa Fagrafell á Hamragarðaheiði við Eyjafjallajökul. Í tilkynningu frá Landsbjörg segir að annar maðurinn hafi fallið niður fellið nokkurn spöl og við það endaði hinn í sjálfheldu og komst ekki niður til félaga síns.

„Fólkinu líður eðlilega illa, þetta er mikið áfall“
Að minnsta kosti þrjú snjóflóð féllu í morgun í Neskaupstað og síðan þá hafa önnur flóð fallið fyrir austan. Fjölmargir viðbragðsaðilar hafa streymt austur og eru til taks ef fleiri flóð verða. Að sögn lögreglustjórans á Austurlandi líður fólki á svæðinu illa.

Snjóflóð féll á yfirgefna byggingu á Seyðisfirði
Snjóflóð féll á byggingu á Seyðisfirði í dag. Samkvæmt upplýsingafulltrúa Landsbjargar var um að ræða yfirgefna byggingu. Töluverður fjöldi björgunarsveitarmanna eru nú komnir austur og tilbúnir til aðstoðar.

Mættir austur með tryllitæki
Að minnsta kosti þrjú snjóflóð féllu í Neskaupstað í Norðfirði í morgun. Björgunarsveitarmenn hafa fjölmennt þangað og í önnur bæjarfélög á svæðinu til að hjálpa og vera til taks ef önnur snjóflóð falla.

Leitarhundar á leiðinni austur með þyrlu
Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leiðinni í loftið með þrjá björgunarsveitarmenn og jafnmarga leitarhunda á Hornafjörð til að vera til taks vegna snjóflóðanna og viðvarandi snjóflóðahættu á Austfjörðum.

Slasaðist á Úlfarsfelli
Fjallgöngumaður slasaðist á ökkla á Úlfarsfelli í dag. Björgunarsveitin kom sjúkraflutningamönnum til aðstoðar.

Nýtt björgunarskip til heimahafnar á Siglufirði
Eftir hádegi í dag kom nýtt björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Sigurvin, til hafnar á Siglufirði.

Telur ekki rétt að loka svæðinu við Glym
Jarðverkfræðingur og björgunarsveitarmaður telur ekki rétt að loka gönguleiðum að Glym þrátt fyrir að svæðið sé vissulega hættulegt. Það hafi sýnt sig að lokanir hafi ekki tilætluð áhrif. Síðan árið 2014 hafa orðið 26 slys á svæðinu.

Koma þurfi í veg fyrir að fólk labbi upp að Glym yfir vetrartímann
Ferðamálastjóri segir að koma þurfi í veg fyrir að fólk labbi upp að Glym yfir vetrartímann. Hann mun eiga samtal við landeigendur, fulltrúa sveitarfélagsins, lögreglu og aðra hlutaðeigandi aðila til þess að ræða aðgerðir til að auka öryggi á svæðinu.

Varnarlínur settar upp
Slökkviliðið hefur sett upp sérstakar varnarlínur til að takmarka útbreiðslu sinubrunans við Straumsvík í Hafnarfirði. Gróðurinn mun brenna að varnarlínunum og svæðið verður vaktað. Reyk mun leggja frá svæðinu í nótt og frekari aðgerðir verða ákveðnar í fyrramálið.

Sinubruninn kviknaði í skólaferðalagi: „Viðkomandi aðili er miður sín“
Sinubruninn sem logar nú við Straumsvík við Hafnarfjörð kviknaði við óvarlega meðferð elds í skólaferðalagi, líklega af völdum blyss. Skólameistari við Menntaskólann í Kópavogi segir að nemendur séu miður sín.

Nota beltabíla og hitamyndavélar til að glíma við sinueldinn
Á þriðja tug slökkviliðsmanna glímir nú við sinueld sem logar í Straumsvík við Hafnarfjörð. Það fær liðsauka frá björgunarsveitum og ríkislögreglustjóra sem útveguðu beltabíla og hitamyndavélar. Engin mannvirki eru sögð í hættu.

Hættulegur staður allt árið um kring
Kona á þrítugsaldri lést þegar hún féll á annað hundrað metra við fossinn Glym í Hvalfirði í gær. Aðstæður voru mjög hættulegar á vettvangi, að sögn upplýsingafulltrúa Landsbjargar. Slysið sýni að bæta þurfi verulega öryggi á ferðamannastöðum landsins.

Kona á þrítugsaldri lést eftir hátt fall við Glym
Kona á þrítugsaldri sem féll niður í gil við fossinn Glym í Hvalfirði í gær er látin. Talið er að hún hafi látist samstundis eftir hátt fall.

Fall mannsins við Glym mun hærra en talið var í fyrstu
Ljóst er að um alvarlegt slys er að ræða í tilfelli ferðamanns sem féll við fossinn Glym fyrir hádegi í dag. Fjölmennt lið björgunarsveitar auk lögreglu er á svæðinu og er verið að bera viðkomandi frá slysstað.