Björgunarsveitir

Myndasyrpa: Víkverjar komu á annað hundrað ferðamönnum til bjargar á aðfangadag
Björgunarsveitarmenn í Vík í Mýrdal fengu ekki að borða jólamatinn fyrr en á ellefta tímanum í gærkvöld vegna á annað hundrað erlendra ferðamanna sem sátu fastir í ófærðinni. Áfram er erfið færð víðast hvar á landinu og fólk hvatt til að halda sig heima.

Víkverjar komust ekki í jólamatinn fyrr en á ellefta tímanum
Síðdegis í gær var björgunarsveitin Víkverji í Vík í Mýrdal kölluð út vegna fjölda fólks í vanda beggja vegna Víkur.

Íbúar í Höfnum innilokaðir í fleiri sólarhringa
Íbúar í Höfnum voru innilokaðir í rúma fjóra sólarhringa þegar óveðrið geisaði á Suðurnesjum, og víðar á landinu, í vikunni sem er að líða. Björgunarsveitir komust hvorki lönd né strönd en að lokum tókst að koma birgðum til íbúa með snjóbíl.

Nafn mannsins sem leitað var í Þykkvabæjarfjöru
Leit að Renars Mezgalis hefur verið hætt. Hans hefur verið saknað frá 15. desember síðastliðnum. Bifreið hans fannst í flæðarmálinu í Þykkvabæjarfjöru daginn eftir og talið er að hann hafi lent í sjónum þar og sé látinn.

Björgunarsveitir fluttu líffæri, krabbameinssjúkling, ófríska konu og lyf fyrir langveikt barn
Mikið hefur mætt á björgunarsveitum landsins síðustu daga vegna óveðurs og ófærðar. Í tilkynningu frá Landsbjörg kemur fram að frá 17. desember hafi verið skráðar 83 aðgerðir sem 633 félagar björgunarsveita tóku þátt í, frá 63 björgunarsveitum. Meðal verkefna voru líffæraflutningur, flutningur krabbameinssjúklings til læknis og flutningur á lyfjum fyrir langveikt barn.

Tók við fúkyrðum frá brjáluðum manni með keðjusög
Björgunarsveitarmanninum Tómasi Loga Hallgrímssyni óraði ekki fyrir hvernig næstu sólarhringar yrðu þegar hann var kallaður út á laugardagsmorgun. Tvö þúsund aðstoðarbeiðnir, lokanir, fúkyrði frá manni með keðjusög og ákeyrsla tóku við en hann er loksins kominn heim.

Óveðursverkefnum formlega lokið
Óveðursverkefnum Björgunarsveita er formlega lokið. Eftir því sem leið á daginn fækkaði verkefnum og nú er hiti um frostmark á höfuðborgarsvæði sem minnkar skafrenning.

Höfum það kósí undir sæng heima
Vegagerðarmaður hvetur fólk til að vera bara undir sæng þegar veður er jafn slæmt og þessa dagana og allir vegir í kringum höfuðborgarsvæðið meira og minna lokaðir. Lögreglumaður segir líka upplagt að hafa það kósí heima í veðri, sem þessu.

Björgunarsveitarfólk á síðustu dropunum og bíður hvíldar
Aftakaveður er á sunnanverðu landinu og gular og appelsíngular veðurviðvaranir í gildi víðast hvar. Björgunarsveitir hafa haft í nógu að snúst og bíða í ofvæni eftir því að fá hvíld eftir langa helgi.

Ævintýraleg helgi að baki hjá Þorbirni: „Þetta var bara endalaust“
Steinar Þór Kristinsson, frá björgunarsveitinni Þorbirni á Grindavík, telur að fjölmargir ferðamenn hafi misst af flugferðum af landi brott um helgina. Fleiri hundruð manns var komið til bjargar. „Þetta var bara endalaust,“ segir Steinar Þór.

„Löng helgi hjá björgunarsveitum á Suðurnesjum“
Björgunarsveitarfólk á Suðurnesjum var kallað út snemma í morgun til að sinna ýmsum verkefnum tengdu óveðrinu sem nú gengur yfir landið.

Tólf hundruð veðurtepptum ferðalöngum bjargað af Grindavíkurvegi í nótt
Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík vann mikið þrekvirki í nótt þegar hún kom rúmlega þúsund manns, sem höfðu setið fastir á Grindavíkurvegi vegna veðurs í hálfan sólarhring, til byggða. Björgunarsveitir biðla til fólks að huga vel að veðurspám en gular og appelsínugular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir mánudag og þriðjudag.

Um þrjú hundruð bílum komið af Grindavíkurvegi í nótt
Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík stóð í ströngu, ásamt Lögreglunni á Suðurnesjum og Vegagerðinni, við að létta á umferð og gera Grindavíkurveg færan. Áætlað er að um þrjú hundruð bílar hafi verið ferjaðir af veginum í bílalestum.

Fimmtán ferðamenn ferjaðir með snjóbílnum Tinna
Björgunarsveitir á Suðurlandi komu fimmtán ferðamönnum til bjargar í dag eftir að þeir höfðu fests inni á bílastæði vegna fannfergis.

„Um leið og þú losar einn þá festist annar“
Björgunarsveitir hafa haft í nógu að snúast í snjóbyl í dag. Bílar eru fastir frá Borgarfirði og austur fyrir Selfoss þar sem ofankoman er einna mest. Þá hafa tafir orðið á flugi á Keflavíkurflugvelli vegna veðurtepptrar áhafnar og mikið púður hefur farið í snjómokstur á flugbrautum.

Björgunarsveitir frá öllu Suðvesturhorninu við störf
Mikið fannfergi hefur leikið landann grátt síðastliðinn sólarhring og hefur mörgum helstu vegum á Suðurlandi verið lokað. Hátt í hundrað björgunarsveitarmenn eru við störf á Suðvesturhorninu.

Leita að tvítugum karlmanni við Þykkvabæjarfjöru
Karlmaðurinn sem leitað hefur verið að á Suðurlandi síðan seinnipartinn í gær er rúmlega tvítugur. Lögregla hóf eftirgrennslan eftir honum að beiðni aðstandenda í Árnessýslu um fimmleytið síðdegis í gær. Björgunarsveitir voru kallaðar út tveimur klukkustundum síðar.

Geggjað jólaskreytt 45 metra mastur á Hvolsvelli
Ef einhvers staðar er hægt að tala um risa jólaskreytingu í ár, þá er það á Hvolsvelli því þar er búið að setja jólaseríur upp í fjörutíu og fimm metra hæð á símamastri, sem þar stendur. Rúmlega kílómetri af blikkandi seríum er á mastrinu.

Biðu eftir björgunarsveitum á þaki bíls í Krossá í tvo tíma
Björgunarsveitir á Hvolsvelli og Hellu voru kallaðar út í dag eftir að tveir erlendir ferðamenn með leiðsögumanni í för festu bíl sinn í Krossá. Fólkið þurfti að bíða á þaki bílsins í tvo klukkutíma þar til hjálp bar að garði.

Leitarsvæðið á Faxaflóa stækkað í dag
Leit að skipverja, sem féll útbyrðis af fiskiskipi á laugardag, heldur áfram í dag. Leitarsvæðið hefur verið stækkað nokkuð en bæði varðskipið Þór, þyrla Landhelgisgæslunnar og leitarskip björgunarsveita munu taka þátt í leitinni.

Aðstoðuðu ferðamann í Landmannalaugum
Flugbjörgunarsveitin á Hellu aðstoðaði erlendan ferðamann í morgun sem staddur var í Landmannalaugum og hafði fest bíl sinn í á.

Jón Þór nýr upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar
Jón Þór Víglundsson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

Hefur þurft aðstoð Björgunarsveitarinnar til að ferja sig í og úr giggi
„Það er svo margt sem maður á eftir í lífinu, ég hef aldrei áður haldið jólatónleika sjálf," segir stórsöngkonan og sjarmatröllið Sigrún Hjálmtýsdóttir í viðtali við Bakaríið á Bylgjunni síðasta laugardag.

Leitin að Friðfinni heldur áfram í dag
Leitinni að hinum 42 ára gamla Friðfinni Frey Kristinssyni verður haldið áfram í dag. Ekkert hefur spurst til Friðfinns síðan á fimmtudaginn í síðustu viku, en þá sást hann í Kuggavogi í Reykjavík.

Faðir Friðfinns segist þakklátur
Kristinn Ágúst Friðfinnsson, faðir Friðfinns Freys Kristinssonar sem leitað er um þessar mundir segir engar fréttir vera af máli sonar síns. Hann þakkar fyrir skjót vinnubrögð viðbragðsaðila og kallar eftir frekari fjármagnsveitingu til þess að lögreglan megi vinna betur gegn undirheimum landsins.

Íbúar í Vogahverfi beðnir um að skoða stigaganga og geymslur
Leit að Friðfinni Frey Kristinssyni verður haldið áfram í Reykjavík í dag. Lögregla biður fólk í Vogahverfinu enn um að skoða nærumhverfi sitt en fáar vísbendingar hafa borist.

Meiri gæði, öryggi og ánægja í ferðamannalandinu Íslandi
Þessa dagana mætir okkur í matvöruverslunum brosandi fólk og býður Neyðarkallinn til sölu, eða raunar Neyðarkonuna þetta árið. Ég hvet auðvitað öll til að styðja við öflugt starf björgunarsveitanna okkar um allt land, með því að kaupa neyðarfólkið eða með öðrum hætti. Starf þeirra er ómetanlegt og landið væri einfaldlega ekki eins öruggt og raun ber vitni ef þeirra nyti ekki við.

Dósum stolið fyrir milljón frá Hjálparsveitinni Tintron
Mikið svekkelsi er á meðan björgunarsveitarmanna í Hjálparsveitinni Tintron í Grímsnes- og Grafningshreppi því það er ítrekað verið að stela dósum úr dósagámum sveitarinnar, sem staðsettir eru á nokkrum stöðum í sveitarfélaginu.

Drengurinn fannst sofandi í strætó
Allt tiltækt lið björgunarsveita á höfuðborgarsvæðinu var kallað út í kvöld í leit að sjö ára dreng í Hafnarfirði. Allt fór vel að lokum þegar drengurinn fannst sofandi um borð í strætó.

Sendu tvær þyrlur eftir sprengingu um borð í flutningaskipi
Landhelgisgæslunni barst í dag tilkynning um eld um borð í erlendu flutningaskipi undan ströndum Íslands. Áhafnir tveggja þyrla, varðskipsins Þórs og sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Suðurnesjum voru kallaðar út á mesta forgangi.