
Bílaleigur

Fékk milljón til baka vegna bílaleigubíls sem varð fyrir eldingu
Bílaleigu hefur verið gert að endurgreiða viðskiptavini sínum eina milljón króna, sem bílaleigan rukkaði vegna tjóns sem varð á bíl þegar hann varð fyrir eldingu.

Góð kjör á afmælissýningu Toyota
Bílaárið 2025 byrjar með krafti hjá Toyota með sýningu á morgun, laugardaginn 11. janúar.

Nýskráning fólksbíla dróst saman um rúm fjörutíu prósent
Nýskráning fólksbíla árið 2024 dróst saman um 42% samanborið við árið 2023 samkvæmt Bílgreinasambandinu. Samdrátturinn nær bæði til einstaklinga og fyrirtækja.

Í vandræðum í Bláa lóninu
Ökumaður bíls komst í hann krappann á bílastæði Bláa lónsins í gær þegar bíll hans endaði úti í skurði. Bandarískur ferðamaður festi vandræðin á filmu.

Þurfa ekki að greiða vegna viðskiptavina sem borguðu ekki fyrir bílastæði
Hæstiréttur hefur staðfest dóm Landsréttar um að Brimborg ehf. þurfi ekki að greiða Rekstrarfélagi Hafnartorgs rúmar fimmtíu þúsund krónur, auk vaxta frá 31. maí 2019, vegna afnota viðskiptavina bílaleigu Brimborgar á bílastæði við Hafnartorg. Brimborg var sýknað af kröfum Rekstrarfélagsins á öllum dómstigum.

Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar
Hjá íslenskum flugfélögum starfa núna um eittþúsund flugmenn og um tvöþúsund flugfreyjur og flugþjónar. Störfin sem tengjast flugrekstri Íslendinga eru þó margfalt fleiri.

Ferðamenn lentu í vandræðum á bíl keyrðum 250 þúsund kílómetra
Kanadísk hjón á ferð um landið lentu í hættu við akstur í rigningu á Vestfjörðum þegar bílaleigubíll sem þau höfðu leigt flaut upp og lét ekki að stjórn. Eyþór Eðvarðsson var staddur á sama hóteli og þau og heyrði þau útundan sér ræða bílavandræði sín. Í ljós kom að dekkin á bílnum voru handónýt og auk þess hafði bíllinn verið ekinn tæplega 250 þúsund kílómetra.

Öfugþróun að minni verðmæti komi af hverjum ferðamanni
Ferðaþjónustan er að stefna í öfuga átt miðað við það markmið að hver ferðamaður skili meiri verðmætum í stað stöðugrar fjölgunar ferðamanna. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir aukna markaðssetningu einu leiðina til að snúa þessari öfugþróun við.

Svarta sviðsmyndin blasir við ferðaþjónustunni í ár
Horfur í ferðaþjónustu hafa snarversnað. Gistinóttum frá áramótum fækkaði um sex prósent og bókanir á hótelum fyrir sumarið eru tíu til fimmtán prósentum færri en á sama tíma í fyrra.

Villta vestrið í gjaldtöku bílastæða
Neytendastofa hefur ákveðið að rannsaka gjaldtöku á bílstæðum eftir að FIB benti á ófremdarástand á markaðnum. Framkvæmdastjóri félagsins segir neytendur verða fyrir barðinu á græðgisvæðingu og frumskógi innheimtuleiða.

„Þetta er alvöru skrímsli“
Magnús Sverrir Þorsteinsson, fyrrverandi fótboltakappi og nú forstjóri bílaleigu í Reykjanesbæ var að kaupa sér 60 milljóna króna jeppa.

Platinum-tryggingin dekkaði ekki hurð sem fauk upp undir Hafnarfjalli
Kona fær ekki endurgreitt frá bílaleigu þrátt fyrir að hafa verið með „Platinum-tryggingu“ sem hún taldi dekka tjón sem hún lenti í. Fær hún því ekki endurgreiddar 230 þúsund krónurnar sem hún óskaði eftir.

Bókunum fækkað um 20 prósent hjá bílaleigu vegna jarðhræringa
Fyrir rúmri viku fór að bera á færri bókunum hjá bílaleigum vegna jarðhræringa á Reykjanesi og mögulegs eldgoss. Þeim fækkaði um 20 prósent hjá einni bílaleigu. Framkvæmdastjóri hótelsamstæðu segir að í upphafi jarðhræringa hafi borið á afbókunum en þær hafi síðan „fjarað út“.


Bílaleigan Blue Car með metafkomu eftir að veltan nærri tvöfaldaðist
Hraður uppgangur ferðaþjónustunnar eftir faraldurinn, sem birtist meðal annars í skorti á bílaleigubílum síðasta sumar, skilaði sér í metafkomu einnar stærstu bílaleigu landsins sem hagnaðist um 1.700 milljónir á árinu 2022, jafn mikið og nemur uppsöfnuðum hagnaði fyrirtækisins frá stofnum fyrir meira en áratug. Mikill afkomubati hefur þýtt að Blue Car Rental hefur greitt eigendum sínum 1,8 milljarð króna í arð fyrir síðustu tvö rekstrarár.

Hlaut árs skilorðsbundinn fangelsisdóm í Procar máli
Haraldur Sveinn Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri og meirihlutaeigandi bílaleigunnar Procar, var í dag dæmdur í eins árs skilorðsbundið fangelsi fyrir skjalafals. Haraldur játaði að hafa falsað kílómetrastöðu í 134 bílum fyrir sölu.

Játar að hafa falsað kílómetrastöðu í 134 bílum í Procar-máli
Framkvæmdastjóri, stjórnarformaður og meirihlutaeigandi bílaleigunnar Procar, Haraldur Sveinn Gunnarsson, hefur játað að hafa falsað kílómetrastöðuna í 134 bílum bílaleigunnar sem seldir voru á bílasölum á árunum 2014 til 2018.

Hagstæð langtímaleiga hjá Brimborg á nýjum rafbílum
Það hefur sennilega sjaldan eða aldrei verið jafn öruggt og þægilegt að taka rafbíl á langtímaleigu eins og um þessar mundir.

Segir engar raunverulegar aðgerðir til að draga úr losun á Íslandi
Ríkisstjórnin hefur ekki komið fram með neinar aðgerðir til að hamla innkaupum á bílum sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti. Það skjóti skökku við að veita bílaleigum milljarð í styrk til að kaupa rafmagnsbíla í stað þess að stöðva innflutning á bensín- og dísilbílum.

Sú sem ók bílnum fannst köld og illa áttuð í Nauthólsvík
Ökumaður bílsins sem hafnaði í sjó við dælustöðina í Skerjafirði í morgun slasaðist mjög lítið. Um var að ræða konu sem tilkynnt var um á gangi nærri Nauthólsvík í morgun, illa áttuð og köld. Bíllinn er í eigu bílaleigunnar Avis.

„Þarf ekki að kunna að keyra til að leigja bílaleigubíl?“
„Þarf ekki að kunna að keyra til að leigja bílaleigubíl?“ spyr Sirrý Arnardóttir, rithöfundur og kennari við Háskólann á Bifröst, sem sat heillengi föst fyrir aftan bílaleigubíl sem kínverskur ferðamaður hafði leigt ásamt fjölskyldu sinni. Sá virtist ekki kunna að skipta um gír, aka út í kant eða keyra í hringtorgi.

Bílaleiga Akureyrar með sjö þúsund bíla og 300 starfsmenn
Umsvif Bílaleigu Akureyrar hafa aldrei verið eins mikil og í ár en fyrirtækið er með yfir sjö þúsund bíla í leigu og starfsfólkið fór yfir þrjú hundruð í sumar. Þá styttist óðum í fimm hundraðasta rafmagnsbílinn.

Bílaleiga þarf að endurgreiða viðskiptavini útlagðan viðgerðarkostnað
Íslenskri bílaleigu hefur verið gert að endurgreiða viðskiptavini sínum 250 þúsund krónur sem honum hafði verið gert að greiða vegna viðgerðarkostnaðar eftir að hann skilaði bílnum í lok leigutímans. Deilan sneri að skemmdum á undirvagni sem bílaleigan taldi viðskiptavininn hafa valdið með því að aka yfir stórgrýti.

Viðskiptavinir geti setið uppi með hundruð þúsunda króna reikning
Bílaleigur landsins standa uppi með gríðarlegt tjón eftir fárviðri helgarinnar en margir bílar eru óökufærir. Bæði bílaleigurnar og viðskiptavinir bera kostnaðinn að sögn forstjóra Bílaleigu Akureyrar en hann getur numið nokkrum milljónum króna. Þar af gætu óheppnir ferðamenn þurft að greiða hundruð þúsunda.

„Afar reiður“ maður á bílaleigu Brimborgar
Lögreglan hafði afskipti af „afar reiðum“ manni sem lét ófriðlega á bílaleigu Brimborgar á Akureyri í gær. Drykklanga stund tók að róa manninn niður en að lokum var hann tekinn fastur og fluttur á brott.

Segir vinnubrögð Vegagerðarinnar kosta bílaleigur milljarða
Formaður bílaleigunefndar Samtaka ferðaþjónustunnar segir að sprenging hafi orðið á framrúðutjóni eftir að Vegagerðin jók blettaviðgerðir með slitlagi. Bílaleigur meta tjónið sitt á um 2,5 milljarða árlega. Samtökin krefjast þess að stjórnvöld banni blettaviðgerðir með slitlagi.

Steinkast stútar sumrinu
Slitlagsviðgerðir á vegum landsins eru framkvæmdar með þeim hætti að harpaðri möl er dreift yfir olíu sem ökumenn og umferð eru látin vinna við að þjappa og veldur þannig gríðarlegu tjóni á ökutækjum sökum steinkasts.

Vill að Íslendingar leggi áherslu á gæði umfram magn í ferðaþjónustu
Forstjóri Brimborgar vill að Íslendingar marki sér stefnu í ferðamannamálum um að laða til landsins ferðamenn sem borgi vel. Leggja þurfi áherslu á gæði umfram magn í ferðamennsku. Hann kveðst sannfærður um að það myndi leysa mönnunarvanda og gera greinina sjálfbærari.

Þurfa ekki að greiða fyrir þá sem borguðu ekki fyrir bílastæðin
Brimborg ehf. þarf ekki að greiða Rekstrarfélagi Hafnartorgs rúmar fimmtíu þúsund krónur í deilu félaganna um hvort að Brimborg bæri ábyrgð á því að greiða fyrir þá viðskiptavini bílaleigu félagsins sem nýttu sér bílastæði við Hafnartorg án þess að greiða fyrir það.

Bjargvættur vegfarenda mætir á dráttarbílnum frá Borðeyri
Ferðamenn með litla reynslu af akstri í snjó og hálku eru orðnir stór hluti af viðskiptum bílaverkstæðis á Borðeyri, sem rekur sérstakan dráttarbíl til að bjarga þeim sem lenda í vandræðum.