
Skíðaíþróttir

„Ef einhver rekst á hluta af rassinum mínum þá varð ég aðeins of kappsfull“
Bandaríska skíðagöngukonan Jessie Diggins birti mynd af risastóru sári á annarri rasskinninni sem hún fékk við æfingar í Oregon þar sem hún undirbýr sig fyrir komandi ólympíuvetur.

Sigríður Dröfn vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil
Í gærkvöld lauk skíðamóti Íslands í alpagreinum með keppni í svigi. Sigríður Dröfn Auðunsdóttir sigraði í kvennaflokki en Sturla Snær Snorrason sigraði í karlaflokki.

Fjallaskíðakappi lenti í snjóflóði í Skálafelli
Betur fór en á horfðist á öðrum tímanum í dag þegar fjallagönguskíðamaður lenti í snjóflóði í Skálafelli. Sjúkrabíll, lögregla og björgunarsveitir voru send strax á staðinn.

Heimsmeistarinn þakklátur Sunnu fyrir að róa taugarnar
Norski skíðakappinn Jarl Magnus Riiber fór heim með tvenn gullverðlaun og tvenn silfurverðlaun í norrænni tvíkeppni af heimsmeistaramótinu í norrænum greinum í Þýskalandi. Hann segir akureyska kærustu sína, Sunnu Margrétu Tryggvadóttur, og dótturina Ronju eiga sinn þátt í uppskerunni.

Katla Björg og Sturla Snær nældu í silfur
Katla Björg Dagbjörtsdóttir og Sturla Snær Snorrason nældu bæði í silfur í Rogla í Slóveníu þar sem þau kepptu í alpagreinum í dag.

Liensberger stöðvaði einokun Shiffrin og landaði heimsmeistaratitlinum
Katharina Liensberger tryggði sér heimsmeistaratitilinn í svigi kvenna í dag. Með því braut hún einokun Mikaela Shiffrin sem hafði orðið heimsmeistari fjórum sinnum í röð fyrir mótið sem nú fer fram í Cortina á Ítalíu.

Sturla Snær eini sem komst áfram
Í dag kláraðist undankeppni karla í svigi á HM í alpagreinum í Cortina á Ítalíu. Fjórir íslenskir karlar voru meðal þeirra tólf keppenda sem hófu leik í undankeppninni. Aðeins Sturla Snær Snorrason komst áfram.

Íslensku skíðakonurnar allar úr leik eftir fyrri ferðina
HM í alpagreinum fer nú fram í Cortina á Ítalíu. Fyrri ferð í svigkeppni mótsins er nú lokið en þar voru fjórar íslenskar skíðakonur meðal keppenda, engin þeirra komst áfram.

Gut-Behrami heimsmeistari og tvær íslenskar meðal 35 efstu
Akureyringurinn Katla Björg Dagbjartsdóttir náði bestum árangri íslensku skíðakvennanna í stórsvigi á HM í alpagreinum á Ítalíu í dag.

109 starfsmenn greinst í hópsmiti á skíðasvæði
Hópsmit er komið upp á skíðasvæði í Colorado í Bandaríkjunum en að minnsta kosti 109 starfsmenn hafa greinst með Covid-19. Heilbrigðisyfirvöld segja ekki um að ræða smit vegna samskipta við kúnna, heldur samgang utan vinnu og hópbúsetu.


„Snjórinn er fallegur. Að renna sér á fjöldagröfum er ekki fallegt“
Forsvarsmenn Buchenwald-safnsins í Þýskalandi hafa varað heimamenn við því að þeir sem verða uppvísir að því að stunda vetraríþróttir nálægt helgum reitum innan svæðisins verða tilkynntir til lögreglu.

Alvarlegt slys á HM í Sviss: Þyrla þurfti að sækja keppenda
Alvarlegt slys varð í bænum Adelboden í Sviss í dag er skíðamaðurinn Tommy Ford meiddist er hann var við keppni á heimsbikarmótinu í risasvigi.

Petter Northug dæmdur í sjö mánaða fangelsi
Dómstóll í Noregi dæmdi í dag gönguskíðakappann Petter Northug í sjö mánaða óskilorðsbundið fangelsi og ævilanga ökuleyfissviptingu fyrir ofsaakstur og vörslu fíkniefna.

Rússneskur Ólympíumeistari neyddur í þungunarrof
Rússneski Ólympíumeistarinn Anfisa Reztsova segir að hún hafi verið neydd í þungunarrof fyrir Vetrarólympíuleikana í Calgary 1988.

Stefna bæði hátt á Ólympíuleikunum
Frjálsíþróttakonan Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir frá FH og Skíðamaðurinn Hilmar Snær Örvarsson frá Víkingi eru íþróttafólk ÍF árið 2020 en þetta var tilkynnt í árlegu hófi Íþróttasambands fatlaða í dag.

Bergrún og Hilmar valin íþróttafólk ársins hjá fötluðum
Frjálsíþróttakonan Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir frá FH og Skíðamaðurinn Hilmar Snær Örvarsson frá Víkingi eru íþróttafólk ÍF árið 2020 en þetta var tilkynnt í árlegu hófi Íþróttasambands fatlaða í dag.

Fjallaskíðafólk beðið um að yfirgefa Bláfjöll af ótta við banaslys
Óhætt er að segja að sprengja hafi orðið í fjallaskíðamennsku á landinu og er nú svo komið að fjöldi þeirra í Bláfjöllum er orðinn svo mikill að starfsmenn skíðasvæðisins geta ekki unnið vinnu sína í brekkunum. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Bláfjalla.

Draumurinn um skíði um jólin fjarlægur
Ekki er útlit fyrir annað en að skíðasvæði landsins verði að mestu lokuð yfir jólin. Skíðaþyrstir Íslendingar þurfa því að láta gönguskíði eða fjallaskíði duga geti þeir ekki beðið eftir að renna sér í snjónum.

Vill samkomulag um að skíðasvæði í Evrópu verði lokuð fram yfir áramót
Þýsk stjórnvöld leitast nú eftir samkomulagi við önnur aðildarríki ESB um að halda skíðasvæðum lokuðum fram í byrjun janúar. Skuli það gert til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar.

Lindsey Vonn birtir óbreyttar sundfatamyndir og hvetur til líkamsvirðingar
Skíðadrottningin Lindsey Vonn birti einlæga færslu á Instagram um helgina, þar sem hún sagði að það væri ógnvekjandi að birta sundfatamyndir, líka fyrir íþróttakonur. Ástæðan er neikvæðar gagnrýnisraddir, sem leyfa sér að setja út á líkama kvenna.

Landsliðið æfir á jökli í Sviss
Síðustu daga hefur íslenska snjóbrettalandsliðið verið að æfa í Ölpunum.

Katrín Tanja á topp fimmtíu listanum yfir bestu íþróttamenn allra tíma
Hnefaleikagoðsögnin Muhammad Ali var kosinn besti íþróttamaður allra tíma í netskosningu þar sem yfir 47 þúsund völdu Muhammad Ali. Ísland á hins vegar fulltrúa meðal efstu fimmtíu á listanum.

Vonarstjarna í Austurríki fannst látin
Það er ekki auðvelt að vera efnileg íþróttastjarna og þurfa oft að standa undir gríðarlegum væntingum. Það lítur út fyrir að slík pressa sé aðalástæðan fyrir að Johanna Bassani er ekki meðal okkar lengur.

Þurfti að taka af honum annan fótinn átta ára en stundar tvær íþróttir í dag með góðum árangri
Hilmar Snær Örvarsson lætur ekkert stoppa sig. Átta ára gamall varð að taka af honum annan fótinn vegna beinkrabbameins. Hann lét það ekki stöðva sig og hefur náð frábærum árangri í alpagreinum skíðaíþrótta og í golfi.

Hilmar Snær fyrstur Íslendinga til að vinna á Evrópumótaröðinni
Hilmar Snær Örvarsson vann gullið í svigi á Evrópumótaröð IPC í alpagreinum.

Snorri sló heimsmeistara og ólympíumeistara við | Besti árangur Íslendings
Snorri Einarsson náði besta árangri sem íslenskur skíðagöngumaður hefur náð á heimsbikarmóti þegar hann keppti á móti í Meråker í Noregi í dag. Mótið var hluti af Ski Tour sem tilheyrir heimsbikarmótaröðinni.

Sturla á flugi í seinni ferð og náði sínum besta árangri
Sturla Snær Snorrason, skíðamaður úr Ármanni, náði sínum besta árangri á ferlinum þegar hann skíðaði af krafti á FIS Asíubikarmóti í Suður-Kóreu í dag.

HSÍ og KKÍ fá samtals 18 milljónum minna úr Afrekssjóði í ár
Handknattleikssambandið og Körfuknattleikssambandið fá umtalsvert lægri styrki úr Afrekssjóði ÍSÍ á þessu ári en í fyrra. Heildarúthlutun verður þó rúmlega 9 milljónum krónum hærri í ár.

Hilmar Snær kemur heim til Íslands með þrjú gull og eitt silfur
Íslenski skíðamaðurinn Hilmar Snær Örvarsson var að standa sig frábærlega á Evrópumótaröð IPC í alpagreinum en hann vann fern verðlaun á ferð sinn til Slóvakíu.