
ÍR

„Erum búin að bíða eftir þessari höll síðan við vorum sex ára eða eitthvað“
„Að hafa náð svona góðum leik í vígsluleiknum. Það er smá ævintýri yfir þessu,“ sagði hrærður Bjarni Fritzon, þjálfari ÍR, eftir frábæran sigur á Haukum 33-29 í fyrsta leik félagsins á nýjum heimavelli í Skógarseli.

Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Haukar 33-29 | Vígðu nýtt íþróttahús með sigri
Fyrsti keppnisleikurinn í nýju íþróttahúsi við Skógarsel fór fram þegar ÍR tók á móti Haukum í annari umferð Olís-deildar karla í kvöld. Fór það svo að heimamenn unnu fjögurra marka sigur, lokatölur 33-29.

Haukum spáð sigri en ÍR falli
Haukum er spáð sigri í Subway-deild kvenna í körfubolta í vetur en Íslandsmeisturum Njarðvíkur er spáð 2. sæti. Nýliðum ÍR er spáð falli.

Umfjöllun og viðtal: Grótta-ÍR 31-20 | Grótta fór illa með nýliðana
ÍR spilaði í kvöld sinn fyrsta leik í Olís-deild karla í handbolta síðan vorið 2021. Andstæðingurinn í kvöld var Grótta, en leikið var í Hertz höllinni út á Seltjarnarnesi. Leiknum lauk með stórsigri heimamanna 31-20.

ÍR fær leikmann frá Eistlandi
ÍR hefur samið við Martin Paasoja um að leika með liðinu í Subway deild karla í körfubolta á komandi leiktíð.

ÍR-ingar safna liði fyrir Olís-deildina
Nýliðar ÍR hafa fengið tvo nýja leikmenn til liðs við sig fyrir komandi átök í Olís-deild karla í handbolta. ÍR-ingar hafa samið við Friðrik Hólm Jónsson frá ÍBV og hinn unga Róbert Snær Örvarsson frá Haukum.

ÍR-ingar fá Bandaríkjamann frá Austurríki og Blikar frá Hafnarfirði
ÍR og Breiðablik hafa tryggt sér sinn Bandaríkjaleikmanninn hvort fyrir komandi átök í Subway-deild karla í körfubolta í vetur.

Olís-spá karla 2022-23: Ekki erfitt að gera betur en síðast en vonin er veik
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir ÍR 12. sæti Olís-deildar karla í vetur.

Fá króatískan ÍR-ing og Búlgara
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur tilkynnti í dag um liðsstyrk fyrir bæði karla- og kvennalið félagsins sem leika í Subway-deildunum í vetur.

Keypti bolta og búnað fyrir liðið en segir að félagið hafi svikið samninginn
Arnar Hallsson, fyrrverandi þjálfari ÍR, segist hafa hætt þjálfun liðsins sökum þess að félagið hafi ekki staðið við sinn enda samningsins við hann á sínum tíma. Arnar hafi keypt bolta og búnað fyrir ÍR, en að félagið hafi ekki lagt sitt af mörkum til að afla fjár og koma til móts við hans kröfur.

Mergsaug félagið en keyrir nú rútuna
Fyrrverandi framkvæmdastjóri ÍR var í október á síðasta ári ákærður fyrir fjárdrátt, umboðssvik og peningaþvætti, með því að hafa í starfi sínu dregið sér samtals tæpar 3,2 milljónir króna og greitt eigin reikninga með kreditkorti félagsins fyrir tæpar 1,6 milljónir króna. Hann var samt sem áður liðsstjóri liðsins um helgina og keyrði rútu liðsins til og frá leikstað.

Semple frá ÍR í KR
KR hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir átökin í Subway deild karla næsta vetur. Jordan Semple hefur samþykkt að leika með liðinu en hann lék með ÍR á síðustu leiktíð og þótti standa sig með prýði.

FH á leið í átta liða úrslit eftir öruggan sigur | Ægir áfram eftir dramatík
FH-ingar eru á leið í átta liða úrslit Mjólkurbikars karla eftir öruggan 6-1 sigur gegn ÍR í kvöld. FH leikur í Bestu-deildinni, en ÍR-ingar í 2. deild, og því komu úrslitin ekkert sérlega á óvart.

Hlynur kom fyrstur í mark á nýju mótsmeti
Hlauparinn Hlynur Andrésson úr ÍR kom fyrstur í mark í 5000 metra hlaupi á nýju mótsmeti á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum sem fram fór um helgina. Í kvennaflokki var það Íris Anna Skúladóttir sem kom fyrst í mark.

Guðni Valur rétt marði sigur og Erna Sóley vann með yfirburðum
Íslandsmethafinn í kringlukasti, Guðni Valur Guðnason úr ÍR, rétt marði sigur í kringlukasti karla á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum sem fram fer í Kaplakrika í Hafnarfirði um helgina. Þá sigraði Íslandsmethafinn Erna Sóley Gunnarsdóttir í kúluvarpi kvenna.

ÍR-ingar fá argentínskan Þórsara
Körfuknattleiksdeild ÍR hefur samið við Luciano Massarelli um að leika með liðinu í Subway-deild karla í körfubolta á næsta tímabili. Massarelli kemur til liðsins frá Þór Þorlákshöfn.

Bætingar í Breiðholti á 115 ára afmæli ÍR
Það er ekki lítið sem ÍR hefur lagt til samfélagsins á sinni 115 ára sögu! Á frjálsíþróttasviðinu voru ÍR-ingar í fararbroddi á síðustu öld allt frá upphafi, báðir verðlaunahafar Íslands á Ólympíuleikum ÍR-ingar. Fjöldi annarra Ólympíufara, landsliðsmanna og leiðtoga hefur stolt borið ÍR merkið í barmi.

Frjálsíþróttastarfið í forgangi á þessum velli og í fyrsta skipti í Reykjavík
ÍR-ingar tóku nýverið í gagnið glænýja frjálsíþróttaaðstöðu í Breiðholti. Hægt er að skoppa þar og hoppa í allar áttir. Rætt var við Þráin Hafsteinsson, fyrrverandi yfirþjálfara frjálsíþróttadeildar ÍR til 22. ára en hann kom að skipulagningu svæðisins.

Ari tekur við ÍR
Ari Gunnarsson hefur verið ráðinn þjálfari nýliða ÍR í Subway-deild kvenna í körfubolta. Ari tekur við af Kristjönu Eir Jónsdóttur sem hætti nýverið með liðið.

ÍR-ingar komnir með eitt glæsilegasta íþróttahús á landinu
ÍR-ingar leggja nú lokahönd á nýtt íþróttahús í Breiðholtinu en íþróttasvæði ÍR-inga er að verða eitt það glæsilegasta á landinu.

„Rosalega bjart framundan hjá okkur ÍR-ingum“
Bjarni Fritzson skrifaði í dag undir þriggja ára samning við handknattleiksdeild ÍR og mun því þjálfa liðið næstu árin í Olís-deild karla í handbolta. Hann segir verkefnið sem framundan er spennandi.

Bjarni tekur aftur við ÍR
Bjarni Fritzson hefur tekið við sem þjálfari karlaliðs félagsins og skrifað undir þriggja ára samning. ÍR-ingar greindu frá þessu í dag.

Sólveig Lára snýr heim í þjálfun
Sólveig Lára Kjærnested hefur ákveðið að snúa sér að þjálfun og mun stýra liðinu sem hún ólst upp hjá, ÍR í Breiðholti.

Annar Þórsari í gegnum Þrengsli
Ragnar Örn Bragason hefur skrifað undir samning þess efnis að hann spili fyrir ÍR á næstu leiktíð.

HK tryggði áframhaldandi veru í Olís-deildinni
HK tryggði sér áframhaldandi veru í Olís-deild kvenna er liðið vann góðan fjögurra marka sigur gegn ÍR í kvöld, 26-22.

Dagbjartur og Baldvin svæðismeistarar í Bandaríkjunum
ÍR-ingurinn Dagbjartur Daði Jónsson og Akureyringurinn Baldvin Þór Magnússon fögnuðu báðir gullverðlaunum á svæðismótum í frjálsum íþróttum í Bandaríkjunum í gær.

ÍR endurheimti sæti sitt í efstu deild
ÍR tryggði sér í dag sæti í efstu deild karla í handbolta með 27-25-sigri í fjórða leik sínum við Fjölni í umspili um að komast upp.

HK og ÍR leika til úrslita um sæti í Olís-deildinni
HK og ÍR munu mætast í úrslitaeinvígi um laust sæti í Olís-deild kvenna í handbolta, en bæði lið kláruðu undanúrslitaeinvígin í kvöld.

ÍR-ingar tóku forystuna í baráttunni um sæti í Olís-deildinni
ÍR-ingar unnu afar öruggan 12 marka sigur er liðið tók á móti Fjölni í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvígi í umspili um laust sæti í Olís-deild karla á næsta tímabili, 36-24.

HK og ÍR með yfirhöndina í umspili um sæti í Olís-deildinni
HK og ÍR eru núeinum sigri frá því að koma sér í úrslitaleik um laust sæti í Olís-deild kvenna í handbolta eftir sigra í leikjum kvöldsins.