
Ljóðlist

Ætla að halda Lífskviðuna þrátt fyrir andlát Ásgeirs í nótt
Akureyrski blaðamaðurinn og skáldið Ásgeir H. Ingólfsson er látinn 48 ára að aldri. Hann lést í nótt eftir baráttu við krabbamein.

Anna Rós hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör
Anna Rós Árnadóttir hlaut í gær Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóð sitt Skeljar.

Valgeir afhenti Ingu textabrot úr laginu Sigurjón digri
Valgeir Guðjónsson tónlistarmaður og Ásta Kristrún Ragnarsdóttir, námsráðgjafi og rithöfundur, afhentu formönnunum þremur í ríkisstjórn ljóðagjöf fyrir fund ríkisstjórnarinnar í gær. Textabrot úr laginu Sigurjón digri féll vel í kramið hjá formanni Flokki fólksins, Ingu Sæland.

„Ég þori alveg að fullyrða að ég er skítsæmileg móðir“
Ragnheiður Lárusdóttir hefur undanfarin tíu ár horft upp á dóttur sína hverfa inn í heim fíkniefna og sér ekki fyrir endann á baráttunni, þvert á móti. Hún kýs að tala opinskátt um vandann og sækir huggun í þá staðreynd að önnur börn hennar hafa spjarað sig vel í lífinu. Hún sé ekki verri uppalandi en það. Í nýrri ljóðabók fjallar hún um óttann, örvæntinguna og sorgina en einnig vonina og ástina sem aldrei deyr.

Dó í 33 mínútur og 3 sekúndur
Það eru ekki margir sem státa af þeirri reynslu að hafa dáið og komið aftur til lífs. Og það eru líklega enn færri sem geta sagt að þeir gangi bókstaflega fyrir rafhlöðum. Þorvaldur Sigurbjörn Helgason er einn af þeim.

„Við vitum aldrei hvenær draugarnir banka uppá“
Einar Örn er holdtekja íslenska pönksins. Hann á í það minnsta slagorðið sem tekur vel utan um það tímabil sem reis hæst á Íslandi 1981-1982: „Það skiptir ekki máli hvað þú getur, heldur hvað þú gerir.“ Í dag er Einar Örn myndlistarmaður. Hann er harður á því.

Þau eru tilnefnd til Maístjörnunnar
Tilnefningar til ljóðabókaverðlaunanna Maístjörnunnar, vegna ljóðabóka útgefinna árið, 2023 voru kynntar við athöfn í Gunnarshúsi í dag. Sex bækur eru tilnefndar að þessu sinni.

Matthías Johannessen er látinn
Matthías Johannessen, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins og skáld, er látinn. Hann andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi í gær, 94 ára að aldri.

Kvikusöfnun sársaukans
Í dag sá ég að kollegi minn á Instagram, skáldið og bókavörðurinn Mosab Abu-Toha, var að segja frá því að 150 manns sem hefðu verið að bíða komu nauðsynja; hveitis, vatns, lyfja o.s.frv. hefðu verið skotnir af Ísraelsher. Myrtir.

„Það eru alltaf móment þegar kvæðamenn rísa upp og trylla lýðinn“
Pétur Blöndal er að ljúka störfum hjá Samál – samtökum álframleiðenda og er kominn í ljóðin sem hann segir alls staðar að finna.

Vala Hauksdóttir hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör
Vala Hauksdóttir hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör árið 2024 fyrir ljóðið Verk að finna. Ljóðstafurinn var veittur við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi í dag.

Ráðgátan um íslenska ljóðið í kastalaþorpinu að skýrast
Ráðgátan um það hvernig ljóð á íslensku eftir óþekkt íslenskt skáld rataði á vegg í afskekktu kastalaþorpi á Norður-Spáni er tekin að skýrast. Staðfesting hefur fengist á því hver ritaði íslenska textann og hvaða ár það var gert. Enn vantar þó nokkur púsl í myndina.

Ráðgáta um íslenskt ljóð í kastalaþorpi á Norður-Spáni
Íslenskan telst eitt fámennasta og minnst útbreidda tungumál jarðarbúa. Fréttamaður Stöðvar 2 varð því ekki lítið hissa þegar hann fyrir hreina tilviljun sá ljóð á íslenskri tungu letrað á steinvegg í afskekktu kastalaþorpi á Norður-Spáni.

Gat ekki hætt að semja ljóð um blæðingar
Ester Hilmarsdóttir gaf á þessu ári út sína fyrstu ljóðabók og var í kjölfarið tilnefnd til Fjöruverðlaunanna í flokki fagurbókmennta. Bókin fjallar um blæðingar og er að sögn Esterar ekkert dregið undan.

Ekki lengur bara blá augu í Myndinni hennar Lísu
Rithöfundurinn Olga Guðrún Árnadóttir hefur breytt einni línu í ljóðinu Myndin hennar Lísu svo lagið faðmi betur fjölbreytileika samfélagsins. Lagið er samið fyrir 46 árum og samfélagið hefur tekið miklum breytingum síðan þá segir Olga.

Mannakjöt vakti lukku á Hrekkjavöku
Útgáfu ljóðabókarinnar Mannakjöts var fagnað rækilega í útgáfuhófi á Tryggvagötu 10 á þriðjudag. Um hundrað manns mættu til að hlusta á rithöfundinn Magnús Jochum Pálsson lesa upp úr bókinni, neyta veiga og kaupa árituð eintök beint frá höfundi.

Birna verðlaunuð fyrir Örverpi
Birna Stefánsdóttir hlaut í dag Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar við hátíðlega athöfn í Höfða. Borgarstjóri veitti Birnu verðlaunin.

Von á „gamla Drake“ og fyrsta ljóðabókin komin út
Fyrsta ljóðabók rappstjörnunnar Drake, Titlar eyðileggja allt, er komin út. Samhliða útgáfunni hyggst rapparinn gefa út plötu þar sem má heyra „gamla Drake“ rappa.

Óumbeðin ástarbréf eldklárra og eftirsóttra gella
Fjöllistahópurinn Eldklárar og eftirsóttar gefa í dag út ljóðabókina Óumbeðin ástarbréf á Slippbarnum við gömlu höfnina í Reykjavík.

Bergþóra hlaut Maístjörnuna fyrir Allt sem rennur
Bergþóra Snæbjörnsdóttir rithöfundur hlaut verðlaunin Maístjörnuna fyrir bók sína Allt sem rennur. Verðlaunin voru veitt í sjöunda sinn í gær. Rithöfundasamband Íslands og Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn veita verðlaunin.

Tilkynntu nafnið með frumsömdu ljóði
Hjónin Ingileif Friðriksdóttir, sjónvarps- og fjölmiðlakona, og María Rut Kristinsdóttir, kynningarstýra UN Women, nefndu dóttur sína og fögnuðu þrítugsafmæli Ingileifar í gær á Uppstigningardaginn.

Ísak Harðarson er látinn
Ísak Harðarson, ljóðskáld og þýðandi, er látinn aðeins 66 ára að aldri.

„Eins og að setja startvökva á gamla díselvél“
Sunna Dís Másdóttir rithöfundur var sigursæl í liðinni viku eftir að hún hlaut hinn svonefnda Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir frumsamið ljóð. Tekið var hús á henni í Gröndalshúsi í Grjótaþorpinu í miðbæ Reykjavíkur, þar sem rithöfundar ýmsir hafa aðsetur í góðu yfirlæti. Innslagið má sjá í Íslandi í dag hér að ofan og hefst á níundu mínútu.

Rannsakar hlut kvenna í íslenskri listasögu næsta árið
Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir hefur verið valin til að gegna rannsóknarstöðu við Listasafn Reykjavíkur sem hefur það að markmiði að rannsaka hlut kvenna í íslenskri listasögu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Listasafni Reykjavíkur.

Ljóða-Jói orti um Bestu deild kvenna
Jóhanni Gunnari Einarssyni er ýmislegt til lista lagt. Hann greinir ekki bara leikina í Olís-deild karla í handbolta fyrir áhorfendum Stöðvar 2 Sports og kennir börnum heldur er hann einnig ljóðskáld.

„Hræðileg kvöð að þurfa að gera eitthvað magnað“
„Það gefur mér mest að lesa, þaðan sæki ég gjarnan innblástur,“ segir rithöfundurinn og sviðslistakonan Ragnheiður Harpa Leifsdóttir sem var að senda frá sér ljóðabókina Urðarflétta. Blaðamaður tók púlsinn á henni og fékk að heyra nánar frá listsköpun hennar.

„Ég myndi aldrei láta það uppi“
Ljóð sem fylgt hafa Vigdísi Finnbogadóttur í gegnum lífið voru gefin út á bók í dag. Hún ber titilinn Ljóðin hennar Vigdísar en fyrrverandi forsetinn valdi öll ljóðin sem birtast í henni. Sjálf segist hún aldrei ætla að láta það uppi hvort hún eigi ljóð eftir sjálfa sig, falin í einhverri skúffunni.

Brynja hlaut Hvatningaverðlaun Vigdísar
Brynja Hjálmsdóttir, skáld og rithöfundur, er handhafi Hvatningarverðlauna Vigdísar Finnbogadóttur sem veitt voru í Safnahúsinu við Hverfisgötu í dag. Guðni Th. Jóhannesson forseti var viðstaddur athöfnina ásamt Vigdísi og fleiri gestum.

Natasha S. hlýtur bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar
Rithöfundurinn Natasha S. hlaut í dag bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir handritið Máltaka á stríðstímum sem kemur í verslanir í dag.

Hugleiðing um fólk og fjársjóði
Ég fæ að kynnast svo mörgum í vinnunni, einstaklingum af öllum stærðum og gerðum. Ég vinn nefnilega með fólki á miðjum aldri sem lent hefur í einhvers konar áföllum, hvort sem heldur af andlegum eða líkamlegum toga.