
Spænski boltinn

Orri Steinn á lista með verðandi framherja Real Madríd
Svissneska tölfræðifyrirtækið CIES hefur birt lista yfir verðmætustu framherja heims sem eru yngri en 21 árs og spila ekki í neinum af sjö bestu deildum Evrópu. Endrick, verðandi leikmaður Real Madríd, trónir á toppi listans en Orri Steinn Óskarsson er í 5. sæti.

Mbappé um skiptin til Real: Draumur að rætast
Franski framherjinn Kylian Mbappé er genginn í raðir Spánar- og Evrópumeistara Real Madríd. Í færslu á samfélagsmiðlum segir Mbappé draum vera að rætast sem og hann birti mynd sér með Cristiano Ronaldo þegar hann var yngri.

Real Madríd staðfestir komu Mbappé
Franski framherjinn Kylian Mbappé hefur skrifað undir fimm ára samning við Spánar- og Evrópumeistara Real Madríd. Félagið greindi frá þessu í dag.

Real Madrid mun festa kaup á Joselu
Real Madrid hefur ákveðið að virkja klásúlu í samningi og festa kaup á framherjanum Joselu.

Mbappe búinn að skrifa undir hjá Real Madrid
Verst geymda leyndarmál fótboltans er nú endanlega komið fram í dagsljósið. Kylian Mbappe hefur skrifað undir samning við spænska stórliðið Real Madrid. Evrópskir fjölmiðlar segja frá þessu.

Harður stuðingsmaður Real Madrid: „Við elskum þessa keppni“
Stöð 2 Sport ræddi við stuðningsmann Real Madrid í tilefni af stórleik kvöldsins á Wembley leikvanginum í London. Hann segir Real ætla að vinna sína keppni einu sinni enn.

Hansi Flick formlega staðfestur sem stjóri Barcelona
Barcelona hefur staðfest ráðningu Hansi Flick sem nýjan þjálfara liðsins eftir að Xavi Hernandéz var sagt upp störfum á dögunum.

Systurfélag Man City komið með sama styrktaraðila og stóri bróðir
Spænska efstu deildarliðið Girona hefur tilkynnt flugfélagið Etihad Airways sem aðal styrktaraðila félagsins næstu þrjú árin. Etihad Airways er einnig framan á treyjum Manchester City en bæði félög eru í eigu City Football Group.

Xavi varaði Flick við: „Hann mun þjást“
Xavi stýrði Barcelona í síðasta sinn í gær. Eftir leikinn varaði hann eftirmann sinn við og sagði að hann ætti erfitt verkefni fyrir höndum.

Barcelona vann síðasta leikinn hans Xavi
Barcelona vann 2-1 útisigur á Sevilla í lokaumferð La Liga, spænsku úrvalsdeildar karla í fótbolta. Um var að ræða síðasta leik liðsins undir stjórn Xavi nema honum og stjórn félagsins snúist aftur hugur.

Bæði lið stóðu heiðursvörð og Toni Kroos tolleraður í leikslok
Heiðursvörður var staðinn fyrir Toni Kroos sem spilaði í gær sinn síðasta leik á Santiago Bernabéu.

Spánarmeistarar Real enduðu tímabilið á markalausu jafntefli
Real Madríd gerði markalaust jafntefli við Real Betis í lokaumferð La Liga, spænsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Nágrannar þeirra í Atlético lögðu Real Sociedad 2-0.

Barcelona Evrópumeistari
Barcelona er Evrópumeistari kvenna í knattspyrnu eftir 2-0 sigur á Lyon í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Mörkin má sjá í fréttinni.

Spilaði með glerbrot í ilinni í tvö ár
Inaki Williams, leikmaður Athletic Club á Spáni, spilaði ómeðvitað með glerbrot í fótnum í tvö ár.

Spútnikliðið endaði sögulegt tímabil á stórsigri
Girona endaði langbesta tímabilið í sögu félagsins með því að vinna stórsigur á Granada í lokaumferðinni.

Lykilmaður Real Madrid missir af úrslitaleik Meistaradeildarinnar
Aurélien Tchouaméni, leikmaður Real Madrid, missir af úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu um þarnæstu helgi vegna meiðsla.

Xavi hætti við að hætta en hefur nú verið rekinn frá Barcelona
Barcelona hefur ákveðið að reka Xavi Hernández, þjálfara liðsins og goðsögn félagsins.

Ummælin höfðu neikvæð áhrif á Nunez sem hugsar hlýlega til Spánar
Darwin Nunez sagði neikvæð ummæli á samfélagsmiðlum hafa haft slæm áhrif á spilamennsku hans á tímabilinu. Hann vildi ekki gefa upp hvort hann væri á förum frá Liverpool en gaf það sterklega í skyn.

Framleiða heimildarmynd um meiðsli Courtois
Meiðsli Thibauts Courtois og lygilega snögg endurkoma hans á knattspyrnuvöllinn verður viðfangsefni nýrrar heimildarmyndar Amazon Prime.

Fyrrum besta knattspyrnukona heims framlengir við Barcelona
Ein besta knattspyrnukona heims, Alexia Putellas, hefur ákveðið að framlengja samning sinn við Barcelona um tvö ár.

Toni Kroos hættir eftir EM í sumar
Þýski knattspyrnumaðurinn Toni Kroos tilkynnti það í dag á samfélagsmiðlum sínum að hann ætli að leggja fótboltaskóna á hilluna eftir Evrópumótið í sumar.

Meistararnir köstuðu frá sér þriggja marka forystu
Nýkrýndir Spánarmeistarar Real Madrid gerðu 4-4 jafntefli er liðið heimsótti Villarreal í næstsíðustu umferð spænsku deildarinnar í knattspyrnu í kvöld.

Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn
Barcelona tryggði sér í kvöld spænska bikarmeistaratitilinn í kvennaflokki er liðið vann ótrúlegan 8-0 sigur gegn Real Sociedad.

Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta
Forráðamenn Barcelona íhuga nú að reka Xavi Hernández stuttu eftir að hann hætti við að hætta sem þjálfari liðsins.

Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar
Barcelona þarf að fá tæplega tuttugu milljarða íslenskra króna í kassann fyrir 30. júní ætli félagið sér að festa kaup á leikmönnum, eða skrá nýja leikmenn, í sumar.

Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti
Barcelona vann 2-0 útisigur á Almería í La Liga, spænsku úrvalsdeild karla í fótbolta. Sigurinn styrkir stöðu liðsins í 2. sæti deildarinnar sem Real Madríd hefur nú þegar unnið.

UEFA setur pressu á City Football Group
UEFA hefur sett City Football Group tvo valkosti fyrir næsta tímabil. Ef ekki verður farið eftir fyrirmælum fyrir 3. júní verður annað hvort Manchester City eða Girona lækkað um tign og látið spila í Evrópudeildinni á næsta ári.

FIFA íhugar að leyfa deildarleiki í öðrum löndum
Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA mun skipa stýrihóp til að rannsaka helstu kosti og galla þess að spila deildarleiki erlendis. Relevant Sports, skipuleggjandi íþróttaviðburða í Bandaríkjunum, er talinn mikill áhrifavaldur á ákvarðanatöku sambandsins.

Spánarmeistarar Real skoruðu fimm
Það var ekki að sjá að Real Madríd hafi gleymt sér í að fagna Spánarmeistaratitlinum þegar liðið tók á móti Alavés. Meistararnir unnu gríðarlega sannfærandi 5-0 sigur.

Barcelona upp í annað sætið
Barcelona er komið upp í 2. sæti La Liga, spænsku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu, eftir 2-0 sigur á Real Sociedad í kvöld.