Leigumarkaður
3 4 5 6 7 8 9 10 … 10 ›
Leigusalar nýti sér slæma stöðu fólks til að græða Ekki er leyfi fyrir búsetu í leiguherbergjum við Funahöfða í Reykjavík, þar sem eldur kom upp í gær. Borgarfulltrúi segir að verið sé að nýta slæma stöðu leigjenda til að græða á þeim. Áratugur er síðan fjallað var um slæman aðbúnað í húsnæðinu. Innlent 5.4.2023 20:01
Húsaleiga hefur hækkað tvöfalt meira en verðlag, ..sem er furðu gott! Húsnæðis og mannvirkjastofnun birti í gær nýja mánaðarskýrslu um stöðuna á húsnæðismarkaði, einu mikilvægasta viðfangsefni samtímans. Í skýrslunni er dregin upp greining á stöðunni, bæði á leigu- og kaupendamarkaði. Sú greining sem kemur frá stofnunni gefur annað hvort tilefni til viðbragða stjórnvalda eða ekki og hefir því mikil áhrif. Það er þess vegna mikilvægt að greining og framsetning sé vel unnin og að ekki þurfi að efast um heilindi né tilgang í framsetningu. Skoðun 29.3.2023 09:01
Ríkið hreki leigjendur úr íbúðum á Suðurnesjum með yfirboðum Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir ástandið á Suðurnesjum vera orðið ógnvænlegt og óbærilegt vegna aukins fjölda hælisleitenda, hræðslu og ógnandi umhverfis. Fjöldinn hafi þau áhrif að leigjendur á almennum markaði á Suðurnesjum hrekist úr íbúðum sínum þar sem Vinnumálastofnun yfirbjóði leiguna til að hægt sé að tryggja þeim húsnæði. Innlent 28.3.2023 14:10
Óli Björn boðar óbreytt ástand Aukinn ójöfnuður og neyðarástand á húsnæðismarkaði fer ekki framhjá neinum. Með þetta í huga er áhugavert að lesa hvaða lausnir Óli Björn Kárason hefur á vandanum í nýlegri grein1. Lausnir Óla virðast ekki vera aðrar en óbreytt ástand. Skoðun 10.3.2023 10:01
Milljón íbúða verkefnið Besta vopnið gegn verðbólgu og háum vöxtum er langtíma stöðugleiki á húsnæðismarkaði. Skoðun 9.3.2023 20:30
„Akkúrat ekkert“ sem réttlæti svona hátt leiguverð Formaður VR vakti í dag athygli á háu leiguverði fyrir þriggja herbergja íbúð í Reykjavík. Leiguverðið var 375 þúsund krónur. Formaður Samtaka leigjenda segir að ekkert geti réttlætt slíkt verð, það sé þó ekki einsdæmi. Innlent 2.3.2023 21:54
Leiguverð orðið hærra en lágmarkslaunin Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir stöðuna á húsnæðismarkaði orðna algerlega sturlaða. Hann bendir á nýlega auglýsingu, 3 herbergja íbúð sem boðin er til leigu á 375 þúsund krónur á mánuði. Innlent 2.3.2023 10:14
Tilgangurinn með húsnæðisstuðningi ekki að „fita leigufélögin“ Stjórnvöld hækkuðu ekki húsnæðisstuðning til að fita tiltekin leigufélög. Þetta segir Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, í svari sínu við fyrirspurn sem Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar lagði fyrir hana á Alþingi í dag. Innlent 27.2.2023 17:23
Lífeyrissjóðir enn í viðræðum um kaup á hlut Heimstaden á Íslandi Sænska leigufélagið Heimstaden á enn í viðræðum við íslenska lífeyrissjóði um mögulega kaup þeirra á hlut í starfseminni á Íslandi og er stefnt að því að klára viðskiptin á fyrsta ársfjórðungi, að sögn framkvæmdastjóra félagsins á Íslandi. Innherji 21.2.2023 06:00
Láglaunafólk og leigumarkaðurinn Stærsti hluti láglaunafólks á Íslandi býr á leigumarkaði og hefur húsnæðiskostnaður þeirra aukist mikið umfram laun síðastliðinn áratug. Frá árinu 2011 hefur til dæmis álag húsaleigu á lágmarkslaun aukist að minnsta kosti um 15% þ.e. hlutfall lágmarkslauna sem fer í húsaleigu. Skoðun 6.2.2023 07:30
„Ég held að það muni algjörlega frysta markaðinn“ Vaxtaákvarðanir Seðlabankans hafa skilað árangri að sögn fasteignasala sem segir húsnæðisverð ekki fara hækkandi. Frekari vaxtahækkanir muni þó frysta markaðinn. Viðskipti innlent 28.1.2023 21:21
Staðan á húsnæðismarkaði hrikaleg Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir stöðu leigjenda hrikalega og það sé alfarið á ábyrgð Seðlabankans og stjórnvalda sem hafa algjörlega brugðist. Innlent 25.1.2023 11:53
Aragrúi af fordæmum séu fyrir kröfum Eflingar Eflingarfólk á heimtingu á meiri hækkunum þar sem húsnæðiskostnaður er mun hærri á höfuðborgarsvæðinu heldur en á landsbyggðinni. Þetta segir sérfræðingur Eflingar sem telur framfærsluuppbót nauðsynlega og þoli enga bið. Ástandið á höfuðborgarsvæðinu sé fordæmalaust en framfærsluuppbót sé það ekki. Innlent 15.1.2023 09:00
Svikarar narra leigjendur í neyð með fölskum gylliboðum Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir að um alveg sérlega ósvífna tegund af svikastarfsemi sé að ræða en brögð eru að því að óprúttnir hrappar geri út á neyð leigjenda. Þeir auglýsa íbúðir til leigu, sem er tilbúningur en heimta sérstakt umsóknargjald svo leigjendur eigi möguleika á að sækja um íbúðina. Innlent 5.1.2023 12:47
Ófögur reynslusaga af samskiptum við leigufélagið Ölmu Katrín María Blöndal hefur hörmungasögu að segja af samskiptum sínum við leigufélagið Ölmu sem hefur verið mjög í deiglunni að undanförnu vegna hækkunar á leigu og hörku í samskiptum við leigjendur sína. Katrín María telur einsýnt að þar á bæ sé hugsað um eitt og aðeins eitt; að græða á þeim sem minna mega sín. Innlent 23.12.2022 09:49
Íbúðum í sölu fjölgar og færri seljast yfir ásettu verði Íbúðum í sölu hefur fjölgað en þær eru nú 2.392 á landinu öllu en voru 2.145 í byrjun nóvember. Þar af eru 1.429 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu og hefur þeim fjölgað um 112. Viðskipti innlent 23.12.2022 06:42
Alma hækkar leigu úkraínskra flóttamanna að meðaltali um 83 prósent Til stendur að leiguverð sextán íbúða sem úkraínskir flóttamenn hafa verið að leigja hækki um allt að 116 prósent. Íbúarnir hafa hingað til leigt af félaginu Einhorn en Alma leigufélag tekur yfir útleiguna í byrjun apríl á næsta ári. Innlent 21.12.2022 17:43
Ragnar Þór boðar birtingu hryllingssagna leigjenda Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir fyrirliggjandi sláandi sögur af samskiptum leigjenda Ölmu. Hann segir að til standi að birta þessar sögur. Innlent 16.12.2022 12:19
Biðst afsökunar á ónærgætni við tilkynningu um hækkun leiguverðs Formaður stjórnar Ölmu leigufélags biðst afsökunar á því að hafa ekki sýnt nægilega nærgætni þegar leigjanda hjá félaginu var tilkynnt um þrjátíu prósent hækkun á leiguverði. Hann segir að búið sé að endurskoða verkferla fyrirtækisins og uppfæra þá. Viðskipti innlent 14.12.2022 11:02
„Óásættanleg“ framganga leigufélaga Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir framgöngu sumra leigufélaga óásættanlega. Hún hvetur leigufélög til að axla ábyrgð og sýna hófstillingu. Vinna við endurskoðun húsaleigulaga hefst fljótlega. Innlent 13.12.2022 22:57
Fákeppni á leigumarkaði Afleiðingar þess að Íbúðalánasjóður hirti rúmlega fjögur þúsund íbúðir af almenningi og afhenti gróðafyrirtækjum hafa verið að koma í ljós æ síðan. Fólki sem er á miðjum aldri og eldra hefur stórfjölgað á leigumarkaði. Ástæða þess er einföld. Skoðun 13.12.2022 15:01
„Hefðuð þið viljað þennan gaur sem bæjarfulltrúa?“ „Hefðuð þið viljað þennan gaur, núverandi formann Ölmu, sem bæjarfulltrúa? Myndu þið treysta honum til þess að koma að ákvarðanatöku um húsnæðismál í Kópavogi? Eða velferðarmál? Málefni öryrkja?“ spyr Hans Alexander Margrétarson Hansen leikskólaleiðbeinandi og stofnandi Pírata í Kópavogi og á þar við Ingólf Árna Gunnarsson framkvæmdastjóra Ölmu leigufélags. Ingólfur var Oddviti Pírata árið 2014. Innlent 12.12.2022 21:02
Segja óhóflegar hækkanir óásættanlegar og vilja leiguþak Þingmenn Flokks Fólksins, Samfylkingar og Vinstri grænna eru sammála um að setja þurfi á leiguþak eða grípa til sambærilegra aðgerða til að bregðast við stöðunni á leigumarkaði. Þingmaður Vinstri grænna á von á að hugað verði að því á næstunni. Þingmaður Samfylkingarinnar segir ríkisstjórnina hafa getað komið í veg fyrir stöðuna en þau hafi svikið loforð um leigubremsu. Innlent 11.12.2022 16:00
Stjórnvöld skapa rammann og nauðsynlegt að sýna þeim þrýsting Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar segir stjórnvöld bera ábyrgð á því að setja umgjörð utan um íbúðamarkaðinn. Hún vísar því á bug að stjórnvöld hafi gert það sem þau geti til þess að sporna við hækkunum. Innlent 8.12.2022 23:18
Segir félagið nauðbeygt til að hækka leiguverð Stjórnendur Ölmu leigufélags segjast nauðbeygðir til að hækka leiguverð á þeim samningum sem eru að renna út en segja að félagið muni eftir fremstu megni reyna að halda þeim hækkunum í lágmarki. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Ingólfi Árna Gunnarsyni, framkvæmdastjóra Ölmu en Ingólfur hefur ekki viljað ræða við fréttastofu vegna nýlegrar hækkunar á leigu öryrkja sem leigt hefur íbúð hjá félaginu undanfarin ár. Innlent 8.12.2022 18:55
Brynja fær íbúð en óttast einangrun á Ásbrú Brynja Hrönn Bjarnadóttir, 65 ára öryrki sem fékk 30 prósenta hækkun á leiguverði í hausinn frá leigufélaginu Ölmu, flytur eftir tvær vikur úr Reykjavík á Ásbrú. Hún er þakklát að vera komin með nýja íbúð en kvíðir einangrun á Suðurnesjum enda geti hún ekki ekið bíl sjálf. Innlent 8.12.2022 15:45
Framkvæmdastjóri Ölmu í felum og neitar að svara spurningum Framkvæmdastjóri leigufélagsins Ölmu hefur ekki viljað ræða við fréttastofu vegna nýlegrar hækkunar á leigu öryrkja sem leigt hefur íbúð hjá félaginu undanfarin ár. Fjármálaráðherra segir hækkunina óforsvaranlega og formaður VR hefur kallað eftir neyðarlögum á leigufélög. Viðskipti innlent 8.12.2022 13:14
Bjarni segir umdeilda hækkun á leiguverði óforsvaranlega Fjármálaráðherra telur umdeilda hækkun íbúðafélagsins Ölmu á leiguverði óforsvaranlega. Þingmaður Flokks fólksins krefst þess að sett verði neyðarlög til þess að vernda leigjendur gegn gegndarlausum hækkunum. Innlent 8.12.2022 11:50
Leigufélag með methagnað krefur öryrkja um þriðjungs hækkun Þrátt fyrir að Íbúðafélagið Alma hafi skilað 12,4 milljarða methagnaði á síðasta ári hækkar félagið leigu hjá sínu fólki um þriðjung eftir áramót. Öryrki segist ekki geta greitt leiguna og sér fram á að lenda á götunni. Innlent 7.12.2022 19:00
Kallar eftir neyðarlögum um leigufélög og myndarlegri aðkomu ríkisins Formaður VR segir að það muni líklega ekki taka lengri tíma en daginn í dag til að meta hvort flötur sé á samningi við Samtök atvinnulífsins. Hann segir gríðarlega mikilvægt að ríkisstjórnin liðki fyrir viðræðum og helst með neyðarlögum um leigufélög. Staða til dæmis leigjenda og fólks með húsnæðislán með breytilegum vöxtum sé alvarlegri en svo að kjarasamningar einir og sér dugi til. Innlent 7.12.2022 13:27