
Málefni fatlaðs fólks

Mikilvægt framlag fatlaðra barna á barnaþingi
Í síðustu viku afhentu sex börn úr ráðgjafarhópi umboðsmanns barna ásamt Salvöru Nordal, umboðsmanni barna, ráðherrum skýrslu barnaþings 2022. Í skýrslunni eru dregnar fram helstu niðurstöður barnaþingsins sem haldið var í byrjun mars. Þar á meðal mikilvægi þess að standa vörð um réttindi fatlaðra barna.

Segir gjörsamlega óforsvaranlegt að vísa fötluðum flóttamanni úr landi
Framkvæmdastjóri Þroskahjálpar segir það gjörsamlega óforsvaranlegt að yfirvöld ætli að senda írakskan flóttamann, sem notast við hjólastól, til Grikklands. Fjölskylda mannsins segir yfirvöld munu senda manninn út í opinn dauðann með því.

Segir stjórnvöld senda fatlaðan bróður sinn út í opinn dauðann
Fjölskylda fatlaðs manns frá Írak sem vísa á úr landi segir stjórnvöld senda hann út í opinn dauðann fari hann til Grikklands. Nauðsynleg læknisþjónusta sem hann hefur notið hér standi honum ekki til boða þar í landi.

Skert aðgengi fatlaðra jaðri við mismunun og útilokun
Evrópska knattspyrnusambandið, UEFA, sætir gagnrýni í aðdraganda úrslitaleiks Meistaradeildar Evrópu, milli Liverpool og Real Madrid, sem fram fer í París á laugardag. Samtök fatlaðra stuðningsmanna Liverpool segja úthlutun miða fyrir fatlaða einstaklinga jaðra við útilokun og mismunun.

Niðursetningar nútímans
Úrræðaleysi ríkir í búsetumálum fatlaðs fólks með hreyfihömlun sem þarf aðstoð við athafnir daglegs lífs og samfellda þjónustu sem tryggir öryggi þeirra.

Sjáðu Með hækkandi sól á táknmáli
Samskiptamiðstöð heyrnalausra og heyrnaskertra hefur gefið út táknmálsþýðingu íslenska Eurovision-lagsins Með hækkandi sól.

Ekki nýta samninginn í pólitískum tilgangi
Samningurinn um réttindi fatlaðs fólks er mikilvægt plagg. Hann er eitt stærsta verkfærið okkar í baráttunni fyrir réttindum fatlaðs fólks. Við eigum að bera virðingu fyrir honum skilyrðislaust.

Hvað ræður þínu atkvæði?
Kosningapróf fjölmiðla fyrir sveitarstjórnarkosningarnar afhjúpa það sem margt fatlað fólk hefur lengi vitað: að lítill áhugi er fyrir mannréttindum fatlaðs fólks meðal kjósenda, hins opinbera og fjölmiðla.

Mannréttindi fólks með fötlun
Í vetur hefur endurtekið verið í fréttum frásagnir af Hilmari Kolbeins, fjölfötluðum manni, og glímu hans við Velferðarsvið Reykjavíkurborgar. Sorgleg upplifun Hilmars er því miður ekki einstakt tilfelli.

Stöndum vörð um mannréttindi fatlaðs fólks í Árborg
Sveitarfélagið Árborg er ört vaxandi sveitarfélag og hefur fjölgunin gert það að verkum að þjónustuþörf hefur aukist til muna. Við búum í margbreytilegu samfélagi sem kallar á fjölþætta þjónustu við íbúana.

Popúlismi
Popúlismi er skilgreindur sem pólitísk stefna sem reynir að ná til sem flesta hópa fólks sem líður að þeirra mál eru ekki til umræðu í pólitíkinni eða hjá elítunni. Þetta er ákveðin hugmyndafræði sem stjórnmálaflokkar hérlendis hafa tekið til sín þegar þeim vantar einhver málefni til að fjalla um fyrir athyglina.

Garðabær fyrir öll – líka fötluð
Í draumnum hafði allt snarnúist við í þjónustu Garðabæjar gagnvart okkur fjölskyldunni vegna þeirrar þjónustu sem fötluð og langveik dóttir mín þarf á að halda.

„Ég er hræddur um að myndin sé enn svartari“
Á föstudag var skýrsla gerð opinber um heildarendurskoðun laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Þar kom í ljós að á árunum 2018-2020 hafi rekstrarhalli vegna þjónustu við fatlað fólk farið úr 2,9 milljörðum króna og upp í 8,9 milljarða. Rekstrarhalli hafi þrefaldast á þessu tímabili.

Kosningar í sýndarveruleika
Þann 14. maí næst komandi verður kosið til sveitastjórna á Íslandi. Sterkar vísbendingar eru um að fólk með þroskahömlun og skyldar fatlanir sé ólíklegra en aðrir til að nýta kosningarétt sinn, þó mjög mikilvægir hagsmunir séu í húfi í bæði alþingis- og sveitastjórnarkosningum fyrir þennan hóp fólks.

Mosfellsbær þarf að greiða fatlaðri manneskju miskabætur
Mosfellsbær þarf að greiða fatlaðri manneskju í sveitarfélaginu 700 þúsund krónur í miskabætur.

Ómanneskjuleg bið fatlaðs fólks í boði meirihlutans
Löng bið eftir að komast í eigin húsnæði tekur á hvern þann sem í hlut á. En löng bið fyrir fatlaðan einstakling með sértækar þarfir getur verið átakanleg. Ekki bara fyrir einstaklinginn sjálfan heldur fjölskyldurnar líka.

Tryggjum fötluðum áheyrn í Bæjarstjórn Hafnarfjarðar!
Málefni fatlaðra og þjónustuskyldur sveitafélaga.Það er yfirleitt ekki ágreiningur um hvort sveitarfélög eigi að sinna félagslegum lögboðnum skyldum sínum en hitt er annað mál að oft greinir ráðamönnum á með hvaða hætti og að hve miklu leyti sveitarfélögum ber að sinna þeim.

Áratugi á biðlista hjá Borginni?
Í byrjun þessa árs varð Kjartan Ólafsson, 25 ára. Slík tímamót þykja mörgum nokkuð markverð en ólíkt flestum jafnöldrum sínum vildi hann ekkert vita af afmælinu og neitaði því staðfastlega að hann hefði elst.

Fjarðabyggð fyrir öll
Notendastýrð persónuleg aðstoð er byggð á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf en sú hugmyndafræði gengur út á sjálfsákvörðunarrétt, jöfn tækifæri alls fólks og sjálfsvirðingu. NPA byggir einnig á mannréttindum fatlaðs fólks og réttindum þeirra til þess að lifa sjálfstæðu lífi í samfélaginu.

Er fatlað fólk velkomið í Garðabæ?
Um 15% mannkyns telst til fatlaðs fólks. Til fatlaðs fólks teljast m.a þeir sem eru með langvarandi andlega, líkamlega eða vitsmunalega skerðingu og sem verða fyrir ýmiss konar umhverfishindrunum sem geta komið í veg fyrir fulla og árangursríka samfélagsþátttöku.

Tíu ára draumur varð að veruleika
Íbúar í Stuðlaskarði nýs íbúðakjarna fyrir fatlaða í Hafnarfirði fögnuðu því í gær að hafa eignast nýtt heimili. Um mikil tímamót er að ræða fyrir hópinn. Allir sex íbúarnir eru vinir og voru að flytja úr foreldrahúsum. Íbúarnir eru á aldrinum 28 til 32 ára og eru allir með Downs-heilkenni.

Mun Hæstiréttur verja lögbundin mannréttindi fatlaðs fólks?
Klukkan níu næstkomandi miðvikudagsmorgun fer fram málflutningur í Hæstarétti í dómsmáli sem skiptir mannréttindi fatlaðs fólks á Íslandi gríðarlegu máli. Málið snýst í stuttu máli um það hvort sveitarfélög hafi heimild til að setja kvóta á mannréttindi fatlaðs fólks.

Við eigum öll rétt til náms!
Ég sótti þá mögnuðu ráðstefnu Nám er fyrir okkur öll í vikunni. Þegar ég gekk í salinn fór um mig gleði og baráttutilfinning. Þetta var troðfullur salur af fólki sem á það sameiginlegt að hafa verið sett til hliðar í uppbyggingu íslenska menntakerfisins en segir nú: Hingað og ekki lengra!

Missir heimaþjónustu á þriðjudag og hræðist að enda aftur á bráðamóttöku
Fjölfatlaður 45 ára karlmaður hræðist að lenda varanlega inni á bráðamóttöku um miðja viku þar sem þjónustusamningur borgarinnar við hann er við það að renna út. Hann segist hafa sent borginni ítrekaðar fyrirspurnir en fái ekki svör um hvort samningurinn verði framlengdur svo hann geti verið áfram heima.

Hvenær verða réttindi fatlaðra barna í Garðabæ virt?
Þjónusta við fatlað fólk skal miða að því að fólk fái nauðsynlegan stuðning til þess að geta notið fullra mannréttinda til jafns við aðra og að skapa því skilyrði til sjálfstæðs lífs á eigin forsendum. Þetta er ekki bara skoðun Viðreisnar í Garðabæ á góðri þjónustu, heldur eru þessi skilyrði bundin í lög, skv. lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Ísland verður rampað upp með þúsund römpum
Átaksverkefnið „Römpum upp Ísland“ hófst formlega í dag en tilgangur verkefnisins er að setja upp þúsund rampa um land allt til að auðvelda hreyfihömluðum að komast ferða sinna. Verkefnið kostar um fjögur hundruð milljónir króna og mun taka fjögur ár.

Aðgengi allra, líka þegar snjóar
Síðustu vikur hefur færð á landinu verið mörgum erfið. Við heyrum fréttir af því að fatlað fólk, sem nú þegar glímir oft við erfitt aðgengi almennt, hefur þurft að hætta við læknisheimsóknir og að sækja aðra grunnþjónustu þar sem erfitt hefur verið, ef ekki ómögulegt, að komast úr húsi.

Safna fyrir fatlað fólk í Úkraínu
Þroskahjálp, Átak - félag fólks með þroskahömlun, TABÚ og Öryrkjabandalag Íslands hafa sett af stað söfnun fyrir fatlað fólk í Úkraínu. Þau segja fatlað fólk sérstaklega berskjaldað í stríðsátökum og stöðu þess í Úkraínu grafalvarlega.

Má blöskrar snjóskafl á gangstéttinni við hús Blindrafélagsins
Má Gunnarssyni, íþrótta- og tónlistarmanni, er ekki skemmt varðandi snjómokstur við húsakynni Blindrafélagsins í Hamrahlíð. Már er blindur og á eðli máls samkvæmt ekki auðveld með að komast fram hjá stórum sköflum frekar en aðrir.

Hvenær er nóg, nóg?
Ég var nýlega að ræða húsnæðismál fatlaðs fólks í Kastljósi ásamt bæjarstjóra á höfuðborgarsvæðinu, sem í umræðunni velti fyrir sér hvenær nóg væri nóg. Í rödd bæjarstjórans mátti greina þreytu, jafnvel uppgjöf.