
Rekstur hins opinbera

Aðgerðir upp á tugi milljarða
Aðgerðir stjórnvalda fyrir Grindvíkinga nema tugum milljarða króna í útgjöld fyrir ríkissjóð. Forsætisráðherra segir endanlegar línur um framtíð Grindavíkur liggja fyrir í febrúar.

Loforð um að taka óvissu Grindvíkinga í fangið
Til skoðunar er hjá yfirvöldum að kaupa allt húsnæði Grindvíkinga. Ríkisstjórnin hyggst ekki taka ákvörðun um það nú en heitir því að óvissa Grindvíkinga verði tekin í fang ríkisins.

Sameiginlegir sjóðir til þess að nýta í slíkum aðstæðum
Fjármála-og efnahagsráðherra segir stöðuna í Grindavík kalla á stærri ákvarðanir. Sameiginlegir sjóðir séu til þess að nýta í slíkum aðstæðum en hún segir að um sé að ræða flókið verkefni. Staðan kalli klárlega á sérlög.

Að leysa Grindvíkinga út „eins og eins árs hallarekstur“ ríkisins
Fulltrúar allra stjórnarandstöðuflokkanna sem mættu í Pallborðið í dag eru sammála um að stjórnvöld eigi að leysa þá Grindvíkinga sem þess óska undan húseignum þeirra. Formaður Miðflokksins telur að stjórnvöld hefðu getað gert mikið betur við að lágmarka þá óvissu sem Grindvíkingar búa nú við.

Stjórnvöld hafi dregið lappirnar
Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, telur að stjórnvöld hefðu átt að vera fyrr tilbúin með að sú sviðsmynd kæmi fram að ekki væri hægt að búa í Grindavík næstu mánuði eða jafnvel ár. Það þurfi að bregðast hratt við til að koma í veg fyrir enn meira tjón hjá Grindvíkingum.

Heildarfasteignamat í Grindavík um 107 milljarðar
Hávær krafa er um að ríkissjóður bæti Grindvíkingum tjón sem íbúar í bænum hafa orðið fyrir vegna jarðhræringanna á Reykjanesi. Ýmsar tölur hafa verið nefndar um hvert verðmæti þeirra sé. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur nú tekið saman heildarfasteignamat bæjarins sem nemur um 107 milljörðum króna.

Telur ríkið eiga að kaupa allt íbúðarhúsnæði í Grindavík
Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur að ríkið eigi að kaupa Grindvíkinga út og tekur þannig undir hugmyndir Vilhjálms Árnasonar, þingmanns sama flokks og íbúa í Grindavík. Þetta segir Óli Björn í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Tólf sagt upp og ellefu öðrum stöðugildum breytt
Breytingar á 23 stöðugildum hjá þjónustu- og nýsköpunarsviði Reykjavíkurborgar voru kynntar í dag. Í breytingunum felast 12 uppsagnir, en í 11 tilvikum verða samningar ekki endurnýjaðir eða ekki ráðið í lausar stöður.

Vill að ríkið kaupi íbúa Grindavíkur út
Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og íbúi í Grindavík, segir það allt of mikla svartsýnisspá að ekki verði búið aftur í Grindavík næstu árin eða áratugi. Það sé fullur hugur í eigendum fyrirtækja að halda starfsemi áfram, sem sé forsenda þess að hægt sé að byggja bæinn upp á nú. Hins vegar sé nauðsynlegt að grípa þá íbúa sem ekki geti hugsað sér að snúa til baka.

Þegar fátt er um boðleg svör
Það þætti líklega stórfrétt og mikið hneyksli ef læknir á Landspítalanum fengi persónulega greitt frá lyfjafyrirtæki í hvert sinn sem hann léti spítalann kaupa ákveðið lyf. Það sama ætti við ef starfsmaður Vegagerðarinnar fengi persónulega greitt frá umboðsaðila fyrir að velja ákveðna vinnuvélategund fyrir Vegagerðina.

Nespresso ekki fyrir óbreytta starfsmenn
Lyfjastofnun vill koma á framfæri athugasemd en stofnunin greiðir ekki fyrir kaffineyslu starfsmanna. Þá hefur borist athugasemd frá starfsfólki LSH og er sagt að spítalinn fjármagni sannarlega ekki lúxuskaffidrykkju klínískra starfsmanna.

Opinberir starfsmenn þamba Nespresso fyrir milljónir
Samkvæmt Opnum reikningum kostar kaffineysla hið opinbera sitt. Starfsmenn ríkisins spara í engu við sig í mat og drykk og alls ekki þegar gæðakaffi er annars vegar.

Enn tveimur skrefum frá sameiningu skólanna
Eyjólfur Guðmundsson rektor Háskólans á Akureyri segir að enn eigi eftir að klára samtalið um samruna áður en verði af honum. Tilkynnt var í dag Háskólaráð Háskólans á Akureyri og Bifrastar hafi samþykkt að hefja sameiningarviðræður.

Næststærsti háskóli landsins í pípunum
Háskólaráð Háskólans á Akureyri og Bifrastar hafa samþykkt að hefja sameiningarviðræður. Frá þessu greindi Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskólamála, að loknum ríkisstjórnarfundi.

Svanhildur drífandi dugnaðarforkur og skarpur greinandi
Vísi hefur borist svar við fyrirspurnum frá utanríkisráðuneytinu sem snúa að skipan Svanhildar Hólm í stöðu sendiherra í Washington.

Þrjátíu milljónir til verkefna gegn fíknisjúkdómum
Heilbrigðisráðherra hefur úthlutað þrjátíu milljónum króna í styrki til frjálsra félagasamtaka vegna verkefna sem miða að því að vinna gegn fíknisjúkdómum, einkum ópíóíðafíkn. Hæsti styrkurinn, átta milljónir króna, rennur til verkefnis Matthildar, samtaka um skaðaminnkun.

Dómarinn vann í Hæstarétti og ríkið situr í súpunni
Hæstiréttur hefur dæmt Ástríði Grímsdóttur héraðsdómara í vil í launadeilu hennar við íslenska ríkið. Hæstiréttur taldi að ríkið hafi ekki mátt krefja Ástríði, og um 260 æðstu embættismenn landsins, um endurgreiðslu launa. Meintar ofgreiðslur námu ríflega hundrað milljónum króna í heildina.

Húsnæðisstuðningur framlengdur út veturinn
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ríkisstjórnina munu leggja til að húsnæðisstuðningur ríkisins við Grindvíkinga verði framlengdur út veturinn. Hann átti að renna sitt skeið í lok febrúar.

Bjarni gengur fram af fólki með klíkuráðningum
Bjarni Benediktsson var varla sestur í stól utanríkisráðherra þegar hann tók til við að skipa samherjum sínum á mikilvæga pósta í utanríkisþjónustunni. Ýmsir hafa þetta til marks um að Bjarni sé á útleið úr pólitík, jafnvel að ríkisstjórnin sé á síðustu metrunum og það sé verið að hafa það úr húsinu sem nýtilegt er.

Skella í lás á Húsavík
Tekin hefur verið ákvörðun um að loka starfsstöð Persónuverndar á Húsavík og hefur tveimur starfsmönnum verið sagt upp. Starfsstöðin mun loka dyrum sínum um áramót. Forstjóri segir fjárlaganefnd ekki hafa veitt styrk til verkefnisins og því hafi þurft að loka.

Eigendur skrái kílómetrastöðu í janúar
Alþingi samþykkti um helgina frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um kílómetragjald á rafmagns, vetnis-og tengiltvinnbíla í flokki fólks- og sendibíla. Fyrsta skráning eigenda á kílómetrastöðu á að fara fram fyrir 20. janúar næstkomandi.

Kostar 3.000 krónur að vera of seinn að sækja krakkann
Sveitarfélagið Árborg hefur sent út tilkynningu til foreldra leikskólabarna vegna rúmlega helmingshækkunar á leikskólagjaldi er lúta að frávikum umsamins dvalartíma. Kostar hvert korter nú 1.911 krónur en hækkar upp í 3.000 krónur eftir áramót.

Viðhorfspistlar ársins 2023: Hænsn, hatur og allt þar á milli
Hvað var fólki efst í huga á árinu 2023? Hvar liggja átakalínurnar? Þessar raunverulegu. Hvað er umhugsunarinnar virði?

Mikilvægt samkomulag ríkis og sveitarfélaga í málefnum fatlaðs fólks
Mikilvæg niðurstaða er komin í kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk, en fulltrúar stjórnvalda skrifuðu undir samning þess efnis fyrir helgi. Umfangsmikil greiningarvinna hefur farið fram á tilurð kostnaðarauka sveitarfélaga á undanförnum árum sem liggur að baki þessari niðurstöðu.

„Við munum að sjálfsögðu krefjast þess að sitja í þessum hópi“
Formaður ÖBÍ segir nýtt samkomulag ríkis og sveitarfélaga um breytingu í þjónustu sveitarfélaga við fatlaða í gær fagnaðarefni. Samkomulagið eigi að tryggja fötluðum lögbundna þjónustu frá sveitarfélögum sem hingað til hafi reynst erfitt.

Sex milljarða hækkun í málum fatlaðra
Ríkið og sveitarfélögin skrifuðu undir samkomulag í dag um breytingu í þjónustu sveitarfélaga við fatlaða. Samkomulagið felur í sér flutning sex milljarða króna frá ríkinu fyrir málaflokkinn.

Öllum starfsmönnum Menntamálastofnunar sagt upp
Öllum starfsmönnum Menntamálastofnunar var sagt upp í morgun. Alls störfuðu 46 hjá stofnuninni. Forstjóri stofnunarinnar, Þórdís Jóna Sigurðardóttir, segir þetta ekki hafa komið starfsmönnum á óvart. Meiri stuðningur við skólasamfélagið verði í nýrri stofnun.

Samkeppniseftirlitið segir aðhaldskröfur ekki standast neina skoðun
Samkeppniseftirlitið er harðort í viðbótarumsögn sinni um nýtt fjárlagafrumvarp og segir eftirlit með samkeppni á Íslandi í grafalvarlegri stöðu. Framlög til eftirlitsins séu lækkuð á sama tíma og umsvif í efnahagslífinu aukist.

Eru ungir bændur í SÉR-flokki?
Uppáhalds amma mín og ein merkilegasta og kærleiksríkasta kona sem ég hef umgengist um ævina var mikill Framsóknarmaður. Hún var fædd á Sléttu í Fljótum í Skagafirði, dóttir hreppstjórans í sveitinni og amma Óla Jó kenndi henni að lesa.

Ríki og sveitarfélög næra verðbólguna
Hagsmunavarsla verkalýðshreyfingarinnar fyrir umbjóðendur sína nær til fleiri þátta en kjarasamninga og réttinda launafólks í landinu. Sem sterkasta afl breytinga og umbóta þarf verkalýðshreyfingin ekki síður að standa vörð um hagsmuni almennings gagnvart ríki og sveitarfélögum; „hinu opinbera”.