
Snjómokstur

„Búumst við hinu versta en vonum það besta“
Borgarstarfsmenn eru nú á fullu við að tryggja niðurföll og tugum flugferða hefur verið aflýst vegna veðurspár, sem gerir ráð fyrir hvassviðri og asahláku. Gular og appelsínuguglar viðvaranir taka gildi ein af annarri frá hádegi.

Snjómokstur hófst um klukkan fjögur í nótt
Eiður Fannar Erlendsson yfirmaður vetrarþjónustu Reykjavíkur segir snjómokstur hafa gengið vel í nótt og í morgun. Snjómokstur hófst um klukkan fjögur í nótt og hefur verið kallaður út aukamannskapur til að ryðja snjónum burt.

Snjómagnið verulegt en ekki óeðlilegt miðað við árstíma
Haraldur Ólafsson veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands segir snjómagnið sem féll um helgina líklega það mesta sem hefur fallið í vetur en ekki óeðlilegt fyrir þennan árstíma.

Segir umferðarmenninguna oft erfiða á Hellisheiðinni
Gottlieb Konráðsson segir snjómokstur hafa gengið vel á Hellisheiði í vetur. Það hafi verið lítill snjór. Meiri skafrenningur og hálka. Hann segir umferðarmenninguna rosalega á Hellisheiðinni og ökumenn oft skapa hættulegar aðstæður með því að flýta sér of mikið.

Snjómokstur hófst klukkan fjögur í nótt
Eiður Fannar Erlendsson yfirmaður vetrarþjónustu í Reykjavíkurborg segir snjómokstur hafa gengið vel í morgun. Færðin sé tiltölulega góð í borginni.

„Bíðum í ofvæni eftir veðurspá næstu daga“
Snjór þekur nú götur og stræti á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Skrifstofustjóri borgarlandsins segir vetrarþjónustu hefjast í borginni í fyrramálið og að beðið sé í ofvæni eftir veðurspá næstu daga.

Reykjavíkurborg salti auðan stíg en ekki flughálan
Yfirlæknir á bráðamóttöku Landspítalans hefur aldrei séð annan eins fjölda hálkuslysa á skömmum tíma, en flughált er víða. Íbúi í Vesturbæ Reykjavíkur segir farir sínar ekki sléttar af hálkuvörnum borgarinnar.

Arðsemi vetrarþjónustu
Fyrsti vetrardagur er að nálgast, þótt haustið hafi verið milt þá eru veðurspárnar farnar að boða breytta tíma.

Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl
Þórir Brynjúlfsson varð fyrir miklu óláni fyrir rúmlega ári síðan, þegar hann kom heim til Íslands eftir að hafa lagt bíl sínum á bílastæði ISAVIA á Keflavíkurflugvelli. Snjó hafði verið mokað upp að og undir bílinn, sem fraus og þrýstist upp í undirvagninn. Bíllinn varð fyrir nokkru tjóni, en ISAVIA og verktakinn sem sá um snjómoksturinn neita að borga tjónið.

Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni
Rekstrarniðurstaða A-hluta Reykjavíkurborgar var neikvæð um 3.292 milljónir króna á þremur fyrstu mánuðum ársins. Það er 1.357 milljónum króna lakari niðurstaða en gert var ráð fyrir. Meðal þess sem skýrir lakari afkomu er vetrarþjónusta borgarinnar, sem fór 782 milljónir króna umfram fjárheimildir.

Fastir bílar loka Steingrímsfjarðarheiðinni
Vegurinn um Steingrímsfjarðarheiði er ófær sem stendur.

Vonskuveður um allt land og vegir víða ófærir
Vonskuveður með mikilli snjókomu gengur yfir Austfirði og Norðurland en víða hefur snjóað og verið mjög hvasst um vestanvert landið. Vegir eru lokaðir um allt land og sums staðar væntir ekki fregna fyrr en á morgun.

Enn lokað um Öxnadalsheiði
Enn er ófært á nokkrum stöðum á landinu, meðal annars um Öxnadalsheiði fyrir norðan og um Þröskulda fyrir vestan.

Kvörtunum vegna vetrarþjónustu fækkað um sjötíu prósent
Ánægja borgarbúa með vetrarþjónustu virðist hafa stóraukist í kjölfar umræddrar heildarendurskoðunnar stýrihóps. Kvörtunum vegna vetrarþjónustu í Reykjavík fækkaði um sjötíu prósent milli ára.

70% færri kvartanir vegna vetrarþjónustu í kjölfar úrbóta
Ánægja með vetrarþjónustu Reykjavíkur hefur stóraukist með breyttu verklagi eftir heildarendurskoðun.

Vorboði Austurlands óvenju snemma í ár
Vegurinn um Öxi var opnaður þann 8. mars og umferð hleypt um veginn. Óvenju lítill snjór var á veginum, en vegurinn hefur ekki verið opnaður svona snemma síðan 2012.

Lífseigir skaflar á ábyrgð eigenda
Snjóskaflar sem standa í borgarlandinu verða ekki fjarlægðir nema þeir ógni umferðaröryggi. Skrifstofustjóri hjá Reykjavíkurborg hvetur fólk til að láta borgina vita ef snjóhrúga veldur ama.

Rebbi lifði hrottalegt banatilræðið af
Óhug sló á marga á Instagram þegar snjóruðningsmaður vestur á fjörðum sýndi þegar hann ók yfir ref nokkurn á brú. Refurinn komst ekki undan. Viðkomandi hefur verið tekinn á teppið af Vegagerðinni.

Dóra Björt ekki að hæðast að Tómasi
Stóra snjómokstursmálið virðist til lykta leitt. Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Pírata segist hafa farið strax í að skoða athugasemdir Tómasar Skúlasonar eftir að Vísir greindi frá þeim.

Snjómokstursmálið mikla farsællega til lykta leitt
Tómas Skúlason og fjölskylda sofa nú svefni hinna réttlátu í Breiðholti en mikil snjómokstursvél tók ævinlega til hendinni þegar snjór kom úr lofti við svefnherbergisglugga þeirra klukkan fjögur að nóttu til.

„Já, ég er maðurinn sem kvartaði undan snjómokstrinum“
Tómas Skúlason íbúi í Breiðholti stígur fram og játar fúslega að hafa verið sá sem kvartaði undan snjómokstrinum. Tómas telur sig hafa ærna ástæðu til og honum gremst að vera hafður að háði og spotti meðal annars af borgarfulltrúa vegna málsins.

Skellti upp úr yfir óvæntum hávaðakvörtunum
Borgarfulltrúi Pírata segist hafa farið að hlæja þegar hún sá að kvartað hafði verið til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna hávaða við snjómokstur. Kvörtunum hafi hríðfækkað vegna skorts á snjómokstri í Reykjavík.

Allar götur í Reykjavík ættu að vera færar
Götur í Reykjavík ættu að vera greiðfærar eftir snjókomu næturinnar að sögn fulltrúa hjá borginni. Færð er þó víða erfið vegna hálku og gul viðvörun í gildi.

Stelpur moka fyrir gott málefni
Þrjár harðduglegar ellefu ára stúlkur safna nú fyrir Barnaspítala Hringsins með því að moka innkeyrslur og tröppur hjá fólki. Þetta gera stúlkurnar af mikilli hjartagæsku og hugsjón því þær þekkja til spítalans.

Vinna stýrihóps um þjónustuhandbók vetrarþjónustu borið árangur
Snjómokstursmenn hafa staðið í ströngu í allan dag eftir mikla snjókomu í höfuðborginni í gærkvöldi. Víðast hvar er orðið greiðfært og skrifstofustjóri reksturs og umhirðu borgarlandsins segir það stýrihópnum umtalaða um þjónustuhandbók vetrarþjónustunnar að þakka.

Senn líður að jólum
Nú er haustið að skella á okkur af fullum þunga. Hver lægðin á fætur annarri bregður sér yfir landið og léttir á sér yfir okkur. Svo kólnar, og rigningin breytist í slyddu og snjó. Færð spillist og birtutíminn styttist. Við tekur tímabil fram á vormánuði þar sem veghaldarar landsins keppast við að halda akstursskilyrðum eins góðum og hægt er. Verkefni sem er fullt af áskorunum eins og síðasti vetur bar með sér.

Snjóþyngslum og verðbólgu kennt um lakari niðurstöðu
Rekstrarniðurstaða A-hluta Reykjavíkurborgar á fyrstu þremur mánuðum ársins er um 1,8 milljarði króna lakari en áætlanir gerðu ráð fyrir. Í tilkynningu borgarinnar segir að niðurstaðan skýrist að mestu leyti af mikilli verðbólgu og snjóþungum vetri.

Telja hesta og ruslarottur fá betri snjómokstur
Íbúar við Álfabrekku í efri byggðum Fáskrúðsfjarðar eru ósáttir við að vera á meðal alsíðustu íbúa til að fá götu sína rudda eftir snjókomu. Þeir telja „hesta og ruslarottur“ hærra skrifaðar þar sem vegur að gámavöllum og hesthúsum sé yfirleitt ruddur á undan þeirra götu.

Ekki bara lagt til að taka mið af snjómagni
Formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar segir stýrihóp sem átti að endurskoða vetrarþjónustu í borginni hafa gert meira en að leggja til að snjómokstur taki mið af veðri. Það sé ekki stóra niðurstaðan í skýrslunni sem stýrihópurinn skilaði frá sér.

Vilja að snjómokstur taki mið af snjómagni
Á snjóþungum dögum í Reykjavík ræður tækjakostur ekki við ástandið þar sem núverandi verklag tekur ekki mið af snjómagni. Þetta kemur fram í skýrslu stýrihóps sem átti að endurskoða vetrarþjónustu í borginni. Stýrihópurinn leggur til að þessu verði breytt þannig að snjóhreinsun taki mið af veðri.