
Átök í Ísrael og Palestínu

Það er kominn tími til að tala um frið
Reglulega er leitast eftir stuðningi Íslands við stríð. Íslensk stjórnvöld svara kallinu og styðja hernað gegnum hernaðarbandalagið NATÓ. Á hverju ári eru haldnar heræfingar á landinu og gistinóttum bandarískra hermanna í Keflavík fjölgar.

Ísraelar gera árás á Íran
Ísraelar gerðu árás á Íran í morgun samkvæmt tveimur ísraelskum og þremur írönskum embættismönnum. Árásin er sögð hafa beinst gegn herstöð nærri borginni Isfahan.

Bandaríkin stöðvuðu fulla aðild Palestínumanna að SÞ
Ályktun um fulla aðild Palestínumanna að Sameinuðu þjóðanna var felld í öryggisráðinu í kvöld þegar Bandaríkin beittu neitunarvaldi sínu. Fulltrúi Bandaríkjanna sagði það ekki til marks um andstöðu þeirra við sjálfstætt ríki Palestínumanna.

Opna miðstöð fyrir palestínsk börn
Skóla- og fjölskyldumiðstöð fyrir börn á leikskóla-, grunnskóla- og framhaldsskólaaldri verður komið á fót í kjölfar fjölskyldusameiningar fólks frá Palestínu. Þetta var samþykkt í borgarráði í dag og stefnt er að formlegri opnun mánudaginn 22.apríl.

Stjórnvöld í Katar að endurskoða sáttasemjarahlutverk sitt
Stjórnvöld í Katar segjast vera að endurskoða hlutverk sitt sem sáttasemjarar í deilum Ísraelsmanna og Hamas. Friðarviðræður hafa nú staðið yfir í margar vikur án árangurs.

Ellefu af 33 Palestínumönnum með dvalarleyfi væntanlegir í dag
Fimmtán einstaklingar frá Palestínu sem fengið hafa dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar hafa verið fluttir frá Kaíró í Egyptalandi til Íslands frá því að störfum sendinefndar utanríkisráðuneytisins í Kaíró lauk 8. mars sl.

Ég er ánægð að vera hætt með Rapyd
Ég rek ferðaþjónustufyrirtækið Mývatn Tours í Mývatnssveit ásamt manninum mínum. Við vorum með samning við Rapyd um færsluhirðingu þangað til við heyrðum að stofnandi og forstjóri Rapyd á heimsvísu hefði lýst yfir stuðningi við árásirnar á Gaza.

Ekki normalisera þjóðarmorð: Sniðgöngum Ísrael - Sniðgöngum Eurovision
Það er löngu orðið augljóst að Ísrael fremur þjóðarmorð í Palestínu. Linnulausar árásir Ísraels á Palestínu síðustu 6 mánuði eru skýrt merki um einbeittan brotavilja Ísraels gagnvart alþjóðalögum og vilja Ísraels til að losna við alla Palestínumenn.

Guterres hvetur til stillingar en Ísraelar vilja hefndir
Antonio Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna varar stríðandi fylkingar í Miðausturlöndum við því að auka við spennuna á svæðinu, sem hafi verið yfirdrifin fyrir.

Umfang árásarinnar kom á óvart
Albert Jónsson alþjóðastjórnmálafræðingur segir að umfang árásar Írana á Ísrael sem gerð var í gær komi honum á óvart. Árásin sem slík hafi þó ekki komið á óvart. Albert segir ljóst að Ísraelsmenn muni bregðast við en telur litlar líkur á því að allsherjarstríð brjótist út.

Skutu nánast alla dróna og eldflaugar niður
Ráðamenn í Ísrael segja að um 99 prósent af þeim þrjú hundruð drónum og eldflaugum sem Íranar skutu að landinu í gærkvöldi og í nótt hafi verið skotnar niður. Skaðinn er tiltölulega lítill, miðað við umfang árásarinnar.

Útkoman sem allir óttuðust
Beint stríð milli Írans og Ísraels er niðurstaða langdreginna átaka, sem óttast var mest. Íranir hafa undirbúið hefndaraðgerðir frá því að loftárás, sem Ísraelar voru bendlaðir við, var gerð á ræðismannsskrifstofu Íran í Damaskus í Sýrlandi.

Landtökumenn ganga berserksgang á Vesturbakkanum
Ísraelskir hermenn fundu í dag lík fjórtán ára fjárhirðis sem sagður er hafa verið myrtur en hvarf hans leiddi til mannskæðra árása landtökufólks á Palestínumenn á Vesturbakkanum.

Íranskir sérsveitarmenn tóku stjórn á flutningaskipi
Hermenn frá Byltingarvörðum Írans tóku í morgun stjórn á flutningaskipi nærri Hormuz-sundi. Skipinu var í kjölfarið siglt inn í landhelgi Írans en skipið er sagt tengjast Ísrael, þó því sé siglt undir fána Portúgal.

Óttast að Íran gæti ráðist á Ísrael á allra næstunni
Bandaríkjastjórn segir meiriháttar árás Írana á Ísrael gæti verið yfirvofandi. Spenna á milli ísraelska og íranskra stjórnvalda hefur stigmagnast eftir að íranskur herforingi var felldur í loftárás í Sýrlandi fyrir hálfum mánuði.

Bandaríkjastjórn setur ferðahömlur á sendifulltrúa í Ísrael
Bandaríkjastjórn hefur sett ferðahömlur á bandaríska emættismenn í Ísrael en áhyggjur eru uppi um að Íranir geri árás á landið innan tíðar.

Talað tungum tveim? - Stefáni Einari Stefánssyni svarað
Í grein sinni í Viðskiptamogganum 10. apríl sl. rifjar Stefán Einar Stefánsson blaðamaður og viðskiptasiðfræðingur upp ritdeilu sem við Hjálmtýr Heiðdal áttum við hann fyrir þremur árum. Í þeirri ritdeilu rægði hann okkur sem mest hann mátti, og af nýju greininni að dæma er hann enn við sama heygarðshornið.

Morgunblaðið neitar að birta grein
Meðfylgjandi grein, Lágkúra illskunar?, var send Morgunblaðinu þ. 22. mars s.l. Greinin hefur ekki enn verið birt á síðum blaðsins og litlar líkur á því að svo verði. Greinin er svar við rangfærslum ritstjóra og blaðamanns Morgunblaðsins og á því fullt erindi til lesenda blaðsins.

Bjarni bauð Þórdísi velkomna heim
„Velkomin heim,“ sagði Bjarna Benediktsson þegar hann afhenti Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur aðgangskortið að utanríkisráðuneytinu í morgun. Hann sagðist vita vel að hún tæki við verkefninu eins og fiskur í vatni. Hann hefði tekist á við stór verkefni á þeim sex mánuðum sem hann sinnti embætti en hefði einnig hugsað til lengri tíma.

Æðsti klerkurinn heitir Ísraelum enn hefndum
Ísraelum verður refsað fyrir loftárás sem felldi sjö íranska hermenn á ræðisskrifstofu Írans í Sýrlandi fyrr í þessum mánuði, að sögn æðsta klerks og leiðtoga Írans. Utanríkisráðherra Ísraels hótar árásum á Íran á móti.

Biden segist ósammála nálgun Netanyahu og hann sé að gera mistök
Joe Biden Bandaríkjaforseti sagði í samtali við sjónvarpsstöðina Univision í gær að Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, vera að gera mistök varðandi Gasa og að hann væri ekki sammála nálgun hans.

Fólk hætti að áreita keppendur vegna þátttöku Ísrael
Samtök evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) segja alla ábyrgð á þátttöku þjóða í Eurovision liggja hjá stjórn keppninnar en ekki einstaka keppendum. Þau biðla til fólks um að áreita ekki keppendur vegna þátttöku Ísraels í keppninni.

Fara yfir vopnahléstillögu „ósveigjanlegra“ Ísraela
Hamas-samtökin, sem ráða ríkjum á Gasa segjast nú fara yfir vopnahléstillögu sem Ísraelar lögðu fram þrátt fyrir að hún uppfylli ekki skilyrði samtakanna. Þau saka Ísraela um ósveigjanleika í viðræðum.

Erfiðir dagar í vændum á óreiðukenndu þingi
Bandarískir þingmenn snúa aftur úr tveggja vikna páskafríi í dag, þriðjudag, en þeir standa frammi fyrir þó nokkrum umdeildum og erfiðum málum. Óreiða hefur einkennt þingið þetta kjörtímabil og þá sérstaklega í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, þar sem Repúblikanaflokkurinn hefur haft nauman og minnkandi meirihluta.

Í skjóli hinna hugrökku
Nú hefur sjónvarpsmaðurinn Gísli Marteinn Baldursson tilkynnt þá virðingarverðu ákvörðun sína, að taka ekki að sér að lýsa Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva þetta árið. Gísli þykir almennt bæði fær og fróður lýsandi, enda hefur hann lýst keppninni með hléum frá árinu 2003, og óslitið frá árinu 2016.

Egyptar, Jórdanir og Frakkar vara við áhlaupi á Rafah
Leiðtogar Egyptalands, Jórdaníu og Frakklands hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem Ísraelar eru eindregið varaðir við því að ráðast inn í Rafah á Gasa. Slík árás myndi hafa hættulegar afleiðingar.

Hefur ekki lyst á að koma nálægt Eurovision
Arnar Eggert Thoroddsen tónlistarfræðingur og Eurovisionaðdáandi mun sniðganga keppnina í ár vegna þátttöku Ísraels. Hann segir tilhugsunin um Eurovision gefa honum kvíðahnút í magann.

Gísli Marteinn lýsir ekki Eurovision í ár
Gísli Marteinn Baldursson mun ekki lýsa Eurovision söngvakeppninni í ár. Ástæðan er framganga Ísraels á Gasa og viðbrögð forsvarsmanna keppninnar við henni og skortur þar á.

Mikil eyðilegging í Khan Younis: „Það er ekkert eftir hér“
Palestínumenn lögðu margir leið sína til borgarinnar Khan Younis á suðurhluta Gasastrandarinnar, eftir að ísraelskir hermenn hörfuðu að mestu leyti frá svæðinu um helgina. Borgina segja þeir óþekkjanlega vegna eyðileggingarinnar.

Varnarmálaráðherra Ísrael segir „eftirfylgniaðgerðir“ í undirbúningi
Yoav Gallant, varnarmálaráðherra Ísrael, segir „eftirfylgniaðgerðir“ í undirbúningi á Gasa, meðal annars aðgerðir í Rafah. Greint var frá því um helgina að 98. herdeild Ísraelshers hefði yfirgefið Khan Younis til að ná aftur vopnum sínum.