Halla Tómasdóttir
1 2 3 4 5 ›
Halla verði að upplýsa um bílakaupin Sérfræðingar í siðfræði og almannatengslum segja nauðsynlegt fyrir traust og gagnsæi að tilvonandi forsetahjón upplýsi um hvaða afslátt þau fengu þegar þau keypu nýjan bíl hjá Brimborg. Þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir fréttastofu hafa svör ekki borist um það. Innlent 27.7.2024 21:30
Fullkomið gagnsæi mikilvægt, greiði fyrir greiða ekki við hæfi Hvorki Halla Tómadóttir né forstjóri Brimborgar hafa gefið upp hversu mikinn afslátt tilvonandi forsetahjón fengu þegar þau keyptu bíl af umboðinu. Sölumaður umboðsins kallar hins vegar afsláttinn skyldmennakjör. Sérfræðingur í siðfræði segir mikilvægt að fullkomið gagnsæi ríki í málinu. Greiði fyrir greiða sé ekki við hæfi hjá tilvonandi forseta Íslands. Innlent 27.7.2024 12:22
Biðst velvirðingar á myndbirtingunni Egill Jóhannsson forstjóri Brimborgar, biðst velvirðingar fyrir hönd Brimborgar á myndbirtingu frá afhendingu bílsins, sem verðandi forsetahjónin festu kaup á á dögunum. Hann segir að misskilningur hafi orðið um að heimild til myndatöku gilti sem heimild til birtingar. Það sé ekki óalgengt að myndir frá afhendingu nýrra bíla séu birtar með þessum hætti. Innlent 27.7.2024 08:03
Forstjóri Brimborgar á athyglisverðum gestalista Höllu Halla Tómasdóttir tekur við embætti forseta Íslands þann 1. ágúst eða eftir tæpa viku. Þá verður mikið um dýrðir. Sérlegur gestalisti Höllu vekur sérstaka athygli en á hundrað og tíu manna lista eru sjötíu og fimm konur. Á meðal karlmanna á listanum er forstjóri Brimborgar en forsetahjónin verðandi keyptu nýjan bíl hjá fyrirtækinu á dögunum. Innlent 26.7.2024 16:26
Halla heimsótti Guðna Rúm vika er til stefnu þar til Halla Tómasdóttir verður formlega sett inn í embætti forseta Íslands. Fjölskyldur Höllu og Guðna Th. Jóhannessonar hittust á Bessastöðum í dag. Innlent 24.7.2024 14:13
Vonar að árásin gegn Trump veki Bandaríkjamenn Halla Tómasdóttir, verðandi forseti Íslands, segir skotárás sem beindist að Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hryggja sig. Erlent 16.7.2024 13:59
Halla Tómasdóttir rétt kjörin forseti Íslands Halla Tómasdóttir hefur verið löglega kjörin forseti og fullnægir skilyrðum stjórnarskrár lýðveldisins um kjör forseta Íslands. Það staðfesti Landskjörstjórn á fundi sínum í dag. Landskjörstjórn úrskurðaði á fundi sínum í dag um 117 ágreiningsseðla í þremur kjördæmum. Innlent 25.6.2024 13:35
Úr buffi í klút Á Íslandi hefur lengi verið við lýði að þjóðhöfðingjar landsins komi hversdagslegar fyrir en á mörgum öðrum stöðum í heiminum. Það er til dæmis sjaldgæft að lífverðir fylgi forseta hvert fótmál eða að hann keyri lítið sem ekkert sjálfur, eins og sjá má í Bandaríkjunum. Þetta og fleira hefur veitt Íslandi sérstöðu meðal vestrænna ríkja, eflt mjúkt vald okkar og er ein af ótal mörgu ástæðum þess að fólk lítur jákvæðum augum til landsins. Skoðun 14.6.2024 13:01
Flestir ánægðir með kjör Höllu Tómasdóttur Sextíu og þrjú prósent svarenda eru ánægð með kjör Höllu Tómasdóttur í embætti forseta Íslands samkvæmt nýrri könnun Prósents. Tuttugu og fjögur prósent segjast hvorki vera ánægð né óánægð og 13 prósent eru óánægð. Könnunin var framkvæmd dagana 6. til 12. júní. Innlent 12.6.2024 13:59
Halla lætur lítið fyrir sér fara næstu vikurnar Halla Tómasdóttir, nýkjörinn forseti Íslands, ætlar að láta lítið fyrir sér fara á samfélagsmiðlum og fjölmiðlum næstu vikurnar. Halla tekur við embætti forseta í ágúst og segir í nýrri færslu á Instagram-síðu sinni að hún ætli að nýta næstu vikurnar til að koma fyrra starfi sínu í góðan farveg og til að hvílast. Innlent 6.6.2024 22:45
Flestir vilja kalla Björn „forsetaherra“ Skiptar skoðanir eru á því hvað fólk vill kalla Björn Skúlason, eiginmann Höllu Tómasdóttur og þar af leiðandi fyrsta eiginmann forseta Íslands. Lesendum Vísis líst best á að kalla hann forsetaherra eða hreinlega eiginmann forseta. Lífið 5.6.2024 10:59
Kínaforseti óskar Höllu til hamingju með sigurinn Xi Jinping, forseti Kína, óskaði Höllu Tómasdóttur, nýkjörnum forseta Íslands, til hamingju með sigur hennar í nýafstöðnum kosningum. Innlent 4.6.2024 21:30
Guðni og Halla fagna saman Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Halla Tómasdóttir verðandi forseti mættust í stúkunni á leik Íslands og Austurríkis í undankeppni Evrópumeistaramótsins í knattspyrnu sem fer fram á Laugardalsvelli. Lífið 4.6.2024 21:22
„Viðskiptakonan“ sem komst á Bessastaði í annarri tilraun Halla Tómasdóttir verður sjöundi forseti lýðveldisins. En hver er þessi kraftmikla kona sem tókst að heilla þjóðina í annað sinn og nú nægilega mikið til þess að koma sér á Bessastaði? Halla hefur flutt inn fótboltastráka, unnið hjá Pepsi og stýrt umtöluðu partýi í Mónakó. Hennar stærstu mistök voru að taka við starfi framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs. Viðskipti innlent 4.6.2024 10:46
Hvað eigum við að kalla eiginmann forseta? Nú þegar ljóst er orðið að Halla Tómasdóttir verði næsti forseti lýðveldisins þá liggur líka fyrir að eiginmaður hennar, Björn Skúlason, verði fyrsti eiginmaður forseta Íslands. Menning 4.6.2024 09:48
Samdi Höllusmellinn á tuttugu mínútum Matthías Eyfjörð er maðurinn að baki einum óvæntasta smelli ársins, laginu Halla T House Mix því sem Halla Tómasdóttir verðandi forseti Íslands steig trylltan dans við með stuðningsmönnum sínum þegar hún mætti í hús í kosningateiti sitt í Grósku um helgina. Lagið var spilað oft og mörgum sinnum í teiti Höllu af plötusnúðnum Danna Deluxe og hefur slegið í gegn. Líklegt má þykja að það verði spilað oft og mörgum sinnum næstu árin nú þegar ljóst er að Halla er næsti forseti. Tónlist 4.6.2024 09:01
Klútabyltingin: Finndu þinn eigin Höllu-klút Halla Tómasdóttir, verðandi forseti Íslands, er að takast að gera hálsklúta að heitasta klæðnaði dagsins. Halla var fyrst með klút í fyrstu kappræðunum í byrjun maí. Síðan hefur klúturinn orðið eins konar einkennismerki stuðningmanna Höllu sem mættu margir með litla silkiklúta um hálsinn á kosningavöku hennar sem fór fram í Grósku síðastliðið laugardagskvöld. Lífið 3.6.2024 20:01
Annasamir dagar framundan hjá Höllu Guðni Th. Jóhannesson fráfarandi forseti Íslands segir annasama daga bíða Höllu Tómasdóttur nýkjörins arftaka hans þrátt fyrir að hún taki ekki formlega við embættinu fyrr en í ágústbyrjun. Að ýmsu þurfi að huga þangað til að hinn örlagaríki fyrsti ágúst renni upp og innsetning sjöunda forseta lýðveldisins fer fram með pompi og prakt. Innlent 3.6.2024 18:52
Selenskí óskar Höllu Tómasdóttur til hamingju Forseti Úkraínu, Vólódímír Selenskí, óskaði nýkjörnum forseta Íslands Höllu Tómasdóttur til hamingju með sigurinn á samfélagsmiðlinum X í dag. Innlent 2.6.2024 22:22
Fínt að það séu ekki bara „kallaforsetar“ Fólki á förnum vegi líst almennt vel á nýkjörinn forseta, og yngri kynslóðin hefur ekki síður sterkar skoðanir á ungangengnum kosningum. Elín Margrét Böðvarsdóttir ræddi við nokkra kjósendur í kvöldfréttum Stöðvar 2 í dag. Innlent 2.6.2024 20:39
Óskar Höllu til hamingju: „Þú verður góður forseti“ Guðni Th Jóhannesson fráfarandi forseti Íslands hefur sent Höllu Tómasdóttur verðandi forseta Íslands bréf þar sem hann óskar henni til hamingju með kjörið. Innlent 2.6.2024 16:54
Svona var ávarp nýkjörinnar Höllu Tómasdóttur Halla Tómasdóttir nýkjörinn forseti Íslands ávarpaði þjóðina frá svölunum á heimili sínu við Klapparstíg nú fyrir skemmstu og hlaut mikil fagnaðarlæti. Innlent 2.6.2024 16:22
Þrjár efstu með 75 prósent atkvæða Eva Heiða Önnudóttir prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands segir tvennt vekja athygli hennar í forsetakosningunum sem fóru fram í gær. Fjöldi kvenna sem fengu góða kosningu og svo mikið fylgi nýkjörins forseta. Innlent 2.6.2024 14:57
Niðurstöður talningar: Kjörsókn með besta móti Landskjörstjórn hafa borist niðurstöður talningar frá yfirkjörstjórnum Norðvesturkjördæmis, Norðausturkjördæmis, Suðurkjördæmis, Suðvesturkjördæmis, Reykjavíkurkjördæmis suður og Reykjavíkurkjördæmis norður. Kjörsókn var mikil, 80,8 prósent. Innlent 2.6.2024 14:27
Fyrsti karlmakinn á Bessastöðum: „Draumaútkoman varð að veruleika” Björn Skúlason er eiginmaður Höllu Tómasdóttur til tuttugu ára. Björn er uppalin í Grindavík og starfar sem kokkur. Björn spilaði lengi fótbolta og æfir í dag Crossfit. Björn og Halla eiga saman tvö börn, Tómas Björn og Auði Ínu. Innlent 2.6.2024 13:50
Ávarpaði stuðningsmenn af svölunum Halla Tómasdóttir, verðandi forseti Íslands, mun ávarpa stuðningsmenn sína af svölum heimilis hennar í miðbæ Reykjavíkur klukkan 16. Innlent 2.6.2024 12:46
Könnun Maskínu daginn fyrir kjördag staðfesti flugið á Höllu Tómasdóttur Könnun sem Maskína gerði daginn fyrir kjördag staðfesti að allar líkur væru á að Halla Tómasdóttir myndi bera sigur úr bítum í kosningunum. Maskínu þótti hins vegar ekki rétt að birta könnun á kjördag. Innlent 2.6.2024 12:31
Var nálægt því að draga framboð sitt til baka „Mér líður furðu vel fyrir utan svefnleysið. Mér er hlýtt í hjarta og hjarta mitt er fullt af þakklæti fyrir ótrúlegan stuðning og ótrúlega gleði, alla leiðina í framboðinu,“ segir Halla Tómasdóttir nýkjörin forseti Íslands. Hún þakkar þjóðinni fyrir traustið og upplýsir að snemma í maí hafi hún verið á mörkum þess að draga framboðið til baka. Innlent 2.6.2024 11:39
„Sigur MBA-gráðunnar, leiðtogafræða og mannauðsstjórnunar“ Þeir eru hálf dasaðir áhugamenn um þjóðmálin sem tjá sig á Facebook í dag en hvergi nærri af baki dottnir. Þar er sigur Höllu Tómasdóttur skoðaður frá ýmsum vinklum. Þar keppast menn við að benda á að ekkert sé að taktískum sigri. Innlent 2.6.2024 11:26
Björn lagði línuna og kjósendur svöruðu kallinu Varla er um það deilt að sigur Höllu Tómasdóttur er ekki síst taktískur. Þegar fyrir lá að baráttan stóð á milli hennar og Katrínar Jakobsdóttur sveiflaðist fylgið til hennar sem aldrei fyrr. Innlent 2.6.2024 10:25