Kennaraverkfall 2024-25
1 2 3 4 5 6 … 13 ›
Nýr borgarstjóri studdi tillögu sáttasemjara Fjöldi kennara minnti á kjarabaráttu sína bæði á pöllunum í borgarstjórnarsal Ráðhúss Reykjavíkur og sömuleiðis fyrir utan húsið. Kjaradeila kennara er í hnút eftir að Samband íslenskra sveitarfélaga hafnaði tillögu sáttasemjara í hádeginu í dag. Nýr borgarstjóri og formaður sambandsins segist hafa stutt tillögu sáttasemjara og skoði sín mál. Innlent 21.2.2025 16:58
Voru búin að segja að þeim hugnaðist ekki tillaga Ástráðs Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga segist hafa kynnt ríkissáttasemjara að þeim litist ekki á innanhússtillögu hans á fundi sem fram fór í gær. Innlent 21.2.2025 15:36
„Þetta eru mikil vonbrigði fyrir okkur“ Íris Björk Eysteinsdóttir, aðstoðarskólastjóri í Hörðuvallaskóla, segir stjórnendur skólans standa með kennurum. Margir þeirra hafa lagt niður störf í dag í kjölfar þess að kjarasamningur sem Ríkissáttasemjari hafði lagt til var hafnað af Sveitarfélögunum. Innlent 21.2.2025 14:43
Skilur vel reiðina sem blossi upp Formaður Félags grunnskólakennara segist hafa fullan skilning á því að kennarar treysti sér ekki til kennslu eftir hádegið í dag eftir útspil Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hún hafi þó ekki vitað af skipulagðri útgöngu kennara víða um landið. Innlent 21.2.2025 14:25
Útganga kennara kom formanninum í opna skjöldu Formaður Kennarasambands Íslands klórar sér í kollinum yfir því að Samband íslenskra sveitarfélaga hafni nú forsenduákvæði í tillögu ríkissáttasemjara sem sambandið samþykkti í janúar. Hann segir útgöngu kennara víða um land í dag hafa verið alfarið án hans vitneskju. Innlent 21.2.2025 14:04
Óljóst með skólahald eftir helgi Hermann Örn Kristjánsson, skólastjóri Sunnulækjarskóla á Selfossi, segist skilja aðgerðir kennara vel, en margir þeirra hafa lagt niður störf í dag í kjölfar þess að kjarasamningur sem Ríkissáttasemjari hafði lagt til var hafnað af Sveitarfélögunum. Innlent 21.2.2025 13:59
Ósáttir kennarar yfirgefa skólana Kennarar í fjölmörgum grunnskólum landsins lögðu niður störf klukkan tólf á hádegi. Formaður félags grunnskólakennara segir ekki um skipulagða aðgerð á vegum félagsins að ræða. Innlent 21.2.2025 12:34
Sveitarfélögin höfnuðu tillögunni á elleftu stundu Samband íslenskra sveitarfélaga hafnaði klukkan 11:59 innanhússtillögu ríkissáttasemjara í deilu kennara við hið opinbera. Kennarar samþykktu tillöguna síðdegis í gær en sveitarfélögin telja sig ekki geta fallist á tvennt í tillögu sáttasemjara. Innlent 21.2.2025 11:29
Kennaraverkföll skella á Verkföll eru skollin á í fimm framhaldsskólum og einum tónlistarskóla en fleiri vofa yfir takist kennurum, sveitarfélögum og ríkinu ekki að ná saman. Fréttastofa tók saman hvar og hvenær verkföllin fyrirhuguðu eru. Innlent 20.2.2025 23:49
Skólameistari gengur út frá því að kennarar leggi niður störf Skólameistari eins framhaldsskólanna sem eru á leið í verkfall að óbreyttu á miðnætti segist ganga út frá því að kennarar leggi niður störf. Það eina sem gæti afstýrt því á þessum tímapunkti sé að deiluaðilar nái saman. Innlent 20.2.2025 23:19
Óvissa um verkföll eftir frestunarbeiðni Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur óskað eftir fresti til hádegis á morgun til að tilkynna afstöðu sína til innanhússtillögu ríkissáttasemjara. Fresturinn er háður samþykki kennara. Innlent 20.2.2025 22:08
Kennarar samþykkja innanhússtillögu Ríkissáttasemjari lagði fram innanhússtillögu í deilu kennara við sveitarstjórnir og ríkið síðdegis í dag. Kennarar hafa þegar samþykkt tillöguna en hið opinbera hefur frest til 22 í kvöld til að svara kalli sáttasemjara. Innlent 20.2.2025 16:13
Kennarastarfið óheillandi... því miður Kennarastarfið er flókið starf sem byggist á mörgum þáttum. Skoðun 20.2.2025 14:03
Uppsagnarákvæði stendur í fólki Kennarar og sveitarfélög eiga enn í rökræðum varðandi launalið kjarasamninga og sömuleiðis uppsagnarákvæði sem sveitarfélögin vilja ekki sjá inni í kjarasamningum. Eining er um framtíðarsýn kennslustarfsins. Innlent 20.2.2025 12:32
Fundi samninganefnda kennara frestað fram á morgun Fundi allra samninganefnda aðildarfélaga Kennarasambands Íslands hjá ríkissáttasemjara var frestað á áttunda tímanum til klukkan ellefu í fyrramálið. Innlent 19.2.2025 20:30
Fleiri ótímabundin verkföll boðuð Félagsfólk Félags leikskólakennara, sem starfar í leikskólum í Hafnarfirði og Fjarðabyggð hefur samþykkt að fara í ótímabundin verkföll, hafi samningar ekki náðst fyrir 17. mars annars vegar og 24. mars hins vegar. Innlent 19.2.2025 14:05
Boðar samninganefndir kennara á fund í dag Allar samninganefndir aðildarfélaga Kennarasambands Íslands hafa verið boðaðar á fund hjá ríkissáttasemjara klukkan 15 í dag. Það staðfestir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari. Innlent 19.2.2025 12:06
Að byggja upp öfluga og flotta leikskóla til framtíðar „Við erum með mikinn metnað er snýr að því að byggja upp öfluga og flotta leikskóla og höfum þess vegna farið í kerfisbreytingar á leikskólaumhverfinu til þess eins að bæta starfsumhverfið,“ sagði bæjarstjóri Kópavogs þegar ljóst er að yfirvofandi eru verkföll í 22 leikskólum bæjarins. Skoðun 18.2.2025 17:32
Sáttasemjari fundaði með forystu Kennarasambandsins Ríkissáttasemjari fundaði með forystu Kennarasambands Íslands í morgun. Samningafundur framhaldsskólakennara og ríkis fór fram í gær og er annar fundur ekki á dagskrá eins og að sögn Ástráðs Haraldssonar ríkissáttasemjara. Innlent 18.2.2025 14:14
„Við hvetjum nemendur til halda sínu striki“ Verkfallsaðgerðir hefjast að minnsta kosti í ríflega þrjátíu skólum á landinu á næstu vikum takist ekki að semja við kennara. Nemendur í Borgarholtsskóla eru áhyggjufullir og óttast tafir á námi. Aðstoðarskólastjóri segir alltaf hættu á brottfalli dragist verkfall á langinn. Innlent 17.2.2025 20:02
Tuttugu prósenta launahækkun kennara enn í boði Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir tuttugu prósenta launahækkun kennara enn standa til boða. Hún fundar á morgun með samninganefnd sveitarfélaga. Innlent 17.2.2025 18:24
Viljum við það besta fyrir börnin okkar? Ef þú myndir spyrja dóttur mína Lailu Sif hvað hún ætlar að verða þegar hún verður stór þá mun hún segja þér að hún ætli að verða kennari. Það er yndisleg tilfinning að sjá hana taka hálf-fullorðna nemendur mína upp að töflu og láta þau reikna erfiðu stærðfræðidæmin sem hún gerir sjálf í þriðja bekk; 3 sinnum 5, 115 plús 45, 30 epli mínus 14, og svo framvegis. Skoðun 17.2.2025 12:00
Verkföll liðki ekki fyrir samningsvilja sveitarfélaga Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga fundaði nú fyrir hádegi með ríkissáttasemjara. Formaður samninganefndarinnar segir yfirvofandi verkföll ekki liðka fyrir samningsvilja en væntir þess að funda með samninganefnd Kennarasambandsins í vikunni sem kemur. Innlent 15.2.2025 11:14
Sér samninginn endurtekið í hyllingum Boðuð hafa verið verkföll í leik- og grunnskólum vegna kjaradeilu kennara, ríkis og sveitarfélaga. Formaður Kennarasambands Íslands vonar að ný verkfallsboðun setji aukinn þrýsting á samningsaðila. Hann er bjartsýnn á að samið verði fyrr en síðar. Innlent 14.2.2025 23:10
Ótímabundin verkföll í öllum leikskólum Kópavogs Félag leikskólakennara boðar ótímabundin verkföll í öllum leikskólum Kópavogs. Félag grunnskólakennara boðar verkföll í grunnskólum í þremur sveitarfélögum; Akraneskaupstað, Hveragerðisbæ og Ölfusi. Innlent 14.2.2025 16:27
„Þurfum að þora að labba yfir brúna saman“ Formaður Kennarasambandsins segir sömu kröfur uppi í öllum kjaraviðræðum kennara. Verið sé að horfa á hvernig nýtt virðismat á kennarastarfinu geti skilað því að sérfræðingar í opinbera geiranum séu á sömu launum og á almenna markaðnum. Góðir áfangar hafi náðst en nú þurfi aðilar að þora að fara yfir brúna saman. Innlent 14.2.2025 11:58
Ég stend með kennurum Menntamálaráðherra var sagður hafa látið þau orð falla að launagreiðendum bæri að koma betur til móts við kennara. Á Alþingi varð við þessar fréttir mikið írafár og spurði stjórnarandstaðan sameinuð hverju sú ósvífni sætti að ráðherra blandaði sér í kjaradeiluna. Skoðun 14.2.2025 08:32
Framhaldsskólakennarar funda áfram á morgun Fundi samninganefnda framhaldsskólakennara og ríkisins, sem hófst klukkan ellefu í morgun, lauk síðdegis og hefur nýr fundur verið boðaður klukkan eitt á morgun. Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari sagði í samtali við fréttastofu að viðræðurnar hefðu snúist um afmarkaðan hluta deilunnar en ekki kröfurnar í heild. Innlent 13.2.2025 20:36
Fundað um afmarkaðan þátt kjaradeilunnar Framhaldsskólakennarar og ríkið hittast hjá ríkissáttasemjara í dag. Rætt verður um afmarkaðan þátt kjaradeilunnar. Þá er fundur með samninganefnd grunnskóla-, leikskóla- og tónlistarkennurum á dagskrá eftir hádegi. Innlent 13.2.2025 10:38
Kennarar funda með sáttasemjara á morgun Samninganefnd Kennarasambands Íslands fundar hjá ríkissáttasemjara á morgun. Samninganefnd sveitarfélaga hefur ekki verið boðuð á sama fund. Formaður samningsnefndar sveitarfélaga segir enn eigi eftir að semja um nokkur atriði en vonar að samningar náist. Innlent 12.2.2025 19:30